Innlent
226 227 228 229 230 231 232 233 234 … 334 ›
Tvöföldun á hagnaði Mosaic Fashions Tískuvörukeðjan Mosaic Fashions hf. skilaði 5,6 milljóna punda hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta samsvarar 738,4 milljónum íslenskra króna og er rétt rúm tvöföldun á hagnaði félagsins á milli ára. Á sama í fyrra nam hann 2,7 milljónum punda. Mestur hluti hagnaðarins varð til á öðrum ársfjórðungi. Viðskipti innlent 28.9.2006 21:32
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga 15 ára stúlku Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær Eduardo Useda Correa, karlmann á fimmtugsaldri, í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára stúlku. Honum var jafnframt gert að greiða stúlkunni 700.000 kr. í miskabætur. Innlent 28.9.2006 21:29
Fær tæpar sex milljónir í bætur FL Group var í dag dæmt til að greiða manni sem var í starfi hjá félaginu tæpa sex og hálfa miljón króna vegna líkamstjóns sem maðurinn varð fyrir í starfi hjá félaginu. Innlent 28.9.2006 20:52
Hætt kominn í kviksyndi 10 ára drengur var hætt kominn þegar hann sökk upp að hálsi í kviksyndi skammt frá Akureyri. Drengurinn segir Guð hafa bjargað lífi sínu. Það voru hinsvegar dauðlegir menn sem beittu ýtrustu kröftum til að toga hann upp. Innlent 28.9.2006 20:30
Árni Johnsen sækist eftir 1. eða 2. sæti Árni Johnsen fyrrverandi þingmaður sækist eftir 1. eða 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Árni sagði í samtali við NFS að hann vildi vinna að góðum málum fyrir fólkið í landinu og fólkið í sínu kjördæmi. Hann hefði fengið mjög mikla hvatningu en honum hefur meðal annars borist undirskriftarlisti með 1150 nöfnum úr öllum byggðum í kjördæminu. Hann hafi nú ákveðið að taka áskoruninni og er bjartsýnn á framhaldið. Innlent 28.9.2006 19:52
RÚV skyldað til að auka innlent efni Ríkisútvarpið þarf að stórauka innlenda dagskrá í sjónvarpi, samkvæmt þjónustusamningi við ríkisvaldið. Samningurinn verður lagður fyrir þing á mánudag ásamt frumvarpi um breytingu RÚV í hlutafélag. Innlent 28.9.2006 19:18
Þakkaði Íslendingum stuðninginn Viktoras Muntianas, forseti litháíska þingsins, þakkaði íslensku þjóðinni í dag stuðning við Litháen við endurreisn sjálfstæðis landsins. Hann er staddur á Íslandi í opinberri heimsókn í boði forseta Alþingis. Innlent 28.9.2006 19:08
Hálslón er orðið 25 metra djúpt Jökla er horfin úr Jökuldal. Hálslón er orðið 25 metra djúpt. Tappinn var settur í Kárahnjúkastíflu á tíunda tímanum í morgun. Innlent 28.9.2006 18:25
Bein útsending frá myrkvun kl. 21:55 Bein útsending verður frá myrkvuninni í Reykjavíkurborg í kvöld á Vísir.is. Myrkvunin hefst klukkan 22:00 en útsendingin um fimm mínútum fyrr. Hægt verður að fylgjast með þegar ljósin verða slökkt og þar til þau verða kveikt aftur hálftíma síðar. Innlent 28.9.2006 18:24
Kertafleyting til minningar landsins sem hverfur Í kvöld stendur Náttúruvaktin fyrir kertafleytingu við Reykjavíkurtjörn. Í tillkynningu frá samtökunum segir að þar ætli náttúruunnendur á höfuðborgarsvæðinu að koma saman og minnast þess lands sem nú fer undir Hálslón á Kárahnjúkasvæðinu. Innlent 28.9.2006 17:40
Óli H. Þórðarson hættir sem formaður Umferðarráðs Óli H. Þórðarson tilkynnti í dag á fundi Umferðarráðs að hann ætli að hætta sem formaður ráðsins. Nýr formaður verður skipaður frá 1. október næstkomandi. Á fundinum var jafnframt samþykkt ályktun Umferðarráðs þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af endurteknum fréttum af hraðaakstri. Innlent 28.9.2006 17:30
Samskip reka áfram Sæfara Vegagerðin og Samskip hafa framlengt samninginn um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara. Verið er að standsetja nýja ferju sem tekin verður í notkun á samningstímanum. Innlent 28.9.2006 16:42
Dregur úr verðbólgu í október Verðbólga fer úr 7,6% í september í 7,4% í október ef spá greiningardeildar Glitnis gengur eftir. Verðbólgan verður þrátt fyrir það enn fjarri 2,5% verðbólmarkmiði Seðlabanka Íslands og er það þrítugasti mánuðurinn í röð sem hún reynist yfir markmiði hans. Innlent 28.9.2006 16:52
Búið að hreinsa mest allt stöðvarhúsið Búið er að ljúka grófhreinsun á stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar en þar lak saltpéturssýra úr lögn í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur nú að fínhreinsun og verður því verki lokið innan skamms. Innlent 28.9.2006 16:29
Festist í lyftu vegna hunda Lögreglan í Reykjavík sinnir ólíklegustu verkefnum, bæði stórum sem smáum, eftir því sem segir á vef hennar. Það sannaðist um kaffileytið í gær. Þá sat liðlega fertugur karlmaður fastur í lyftu í ónefndu fjölbýlishúsi. Hann hafði verið á ferð með tvo hunda og báru þeir ábyrgð á ástandinu. Innlent 28.9.2006 16:27
Garðmenn til viðræðna við Norðurál um staðsetningu álvers Bæjarstjórn Garðs hefur falið þremur mönnum, bæjarstjóranum, formanni bæjarráðs og byggingafulltrúa bæjarins, að ganga til viðræðna við Reykjanesbæ og Norðurál um hugsanlega staðsetningu álvers. Innlent 28.9.2006 16:08
Hvetur ökumenn til að leggja bílum við myrkvun í kvöld Sjóvá Forvarnahúsið hvetur ökumenn á þeim svæðum þar sem götuljósin verða myrkvuð í kvöld til að njóta myrkursins og leggja bílum sínum á tímabilinu 22-22.30 meðan myrkvunin stendur yfir við upphaf alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Innlent 28.9.2006 15:53
Dagur kjörinn formaður sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi hefur verið kjörinn formaður nýrrar stjórnar sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar, en það var gert á aðalfundi ráðsins á Akureyri í gærkvöldi. Formaður ráðsins var kjörinn í netkosningu meðal sveitarstjórnarmanna og segir í tilkynningu frá Samfylkingunni að þetta muni vera í fyrsta sinn sem sú aðferð er viðhöfð hjá íslenskum stjórnmálaflokki. Innlent 28.9.2006 15:44
Á slysadeild eftir árekstur við kyrrstæðan bíl Þrjár fimmtán ára stúlkur þurftu að leita á slysadeild eftir að bíl, sem þær voru farþegar í, var bakkað á kyrrstæðan bíl. Við stýrið var 17 ára drengur og var áreksturinn svo harður að fjarlægja varð kyrrstæða bílinn af vettvangi vegna skemmda. Innlent 28.9.2006 15:14
FF fagnar nýjum tillögum um íbúðalánamarkað Félag fasteignasala fagnar tillögum stýrihóps félagsmálaráðherra um að staðinn sé vörður um stefnu íslenskra stjórnvalda í húsnæðismálum og að Íbúðalánasjóður gegni þar mikilvægu hlutverki. Innlent 28.9.2006 15:08
Tveir berjast um formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga Nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga verður kjörinn á landsfundi á morgun. Baráttan stendur einkum milli tveggja sveitarstjórnarmanna. Innlent 28.9.2006 14:55
Forsetahjónin heimsóttu Njarðvíkur- og Heiðarskóla í dag Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans Dorrit Moussaieff heimsóttu Njarðvíkur- og Heiðarskóla í Reykjanesbæ í morgun. Heimsóknin var í tilefni af forvarnardegi grunnskólanna sem er í dag. Innlent 28.9.2006 14:30
Einhver dapurlegasti dagur langrar starfsævi „Þetta er einhver dapurlegasti dagur sem ég hef lifað á langri starfsævi vegna þess að hér er verið að hefja mestu mögulegu óafturkræfu umhverfissspjöll sem hægt er að fremja á Íslandi og það á kostnað milljóna ófæddra Íslendinga,“ sagði Ómar Ragnarsson fréttamaður í samtali við NFS, en hann er nú staddur við Kárahnjúka þar sem hann hyggst fara á báti niður gljúfrin sem fara nú undir Háslón. Innlent 28.9.2006 14:40
Þriggja mánaða fangelsi fyrir hótanir í garð fyrrverandi sambýliskonu Tæplega fertugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir alvarlegar hótanir í garð fyrrverandi sambýliskonu sinnar fyrr á þessu ári. Innlent 28.9.2006 14:19
Segja daginn sorgardag á Íslandi Félag um verndun hálendis Austulands og Náttúruverndarsamtök Austurlands hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau segja daginn í dag sorgardag á Íslandi, en eins og kunnugt er hófst fylling Hálslóns í morgun. Félögin segir að með því hafi herför valdsins gegn vesturöræfum við Snæfell hafist og að Ísland verði fátækara í kvöld en það var í morgun. Innlent 28.9.2006 13:51
Níu gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi Níu manns gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga, þar af fjórir sem sækjast eftir forystusætinu. Þetta varð ljóst eftir að framboðsfrestur rann út í gær. Innlent 28.9.2006 13:37
Krefjast stofnanasamnings án tafar Almennur félagsfundur sjúkraliða í Reykjavík og nágrenni krefst þess að gengið verði frá stofnanasamningi við sjúkraliða án frekari tafa. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi í gær. Innlent 28.9.2006 13:28
Stóraukin áhersla á íslenskt efni á RÚV Stóraukin áhersla verður lögð á íslenskt efni hjá Ríkisútvarpinu samkvæmt samkomulagi sem menntamálaráðuneytið og Ríkisútvarpið hafa gert um drög að samningi um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Samningurinn á að skilgreina nánar tilgang og hlutverk RÚV og þær kröfur sem gerðar eru til Ríkisútvarpsins á grundvelli þess frumvarps sem lagt verður fram á fyrstu dögum þingsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Innlent 28.9.2006 12:46
Sprengingar hafnar við Héðinsfjarðargöng Sprengingar eru hafnar við eina dýrustu samgönguframkvæmd sögunnar, Héðinsfjarðargöng. Göngin verða fullbúin eftir þrjú ár. Innlent 28.9.2006 12:32
Fylling Hálslóns hefur gengið vel Jökla var stífluð við Kárahnjúka á tíunda tímanum í morgun og gekk framkvæmdin vel að sögn talsmanns virkjunarinnar. Hálslón er byrjað að myndast og hefur það hækkað um tíu metra við stífluna frá því að tappinn var settur í. Fyrir neðan stíflu er Jökla að hverfa. Innlent 28.9.2006 12:17