Innlent
206 207 208 209 210 211 212 213 214 … 334 ›
Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. Erlent 12.10.2006 11:03
Forval VG á höfuðborgarsvæðinu 2. desember Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að forval flokksins vegna þingkosninga í vor í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður og Suðvesturkjördæmi verði haldið þann 2. desember. Innlent 12.10.2006 10:51
Afli meiri í upphafi nýs fiskveiðiárs en í fyrra Nýtt fiskveiðiár virðist hefjast ágætlega því aflinn í nýliðnum september var um 86.500 tonn sem er tæplega 22 þúsund tonnum meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur Fiskistofu. Innlent 12.10.2006 10:39
Flug milli Eyja og Selfoss hefst á næstunni Áætlunarflug á milli Vestmannaeyja og Selfoss hefst um leið og búið verður að endurnýja starfsleyfi fyrir Selfossflugvöll sem rann út fyrir tæpri viku. Flugfélag Vestmannaeyja hyggst fljúga á þessari leið og verður þetta fyrsta áætlunarflug um Selfossvöll til þessa. Innlent 12.10.2006 10:32
Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Exista og VÍS Samkeppnistofnun hefur lagt blessun sína yfir samruna Exista og VÍS. Exista keypti ríflega 80 prósenta hlut í VÍS í sumar og á Exista og dótturfélög þess nú nánast allt hlutafé í VÍS. Innlent 12.10.2006 10:24
Segir starfsmann Landssímans hafa staðfest hleranir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að fyrrverandi yfirmaður í tæknideild Landssíma Íslands hafi hringt í sig í gærkvöld og staðfest að sími Jóns hefði verið hleraður þegar hann var ráðherra. Þetta kom fram í viðtali við Jóhann Hauksson í þættinum Morgunhaninn á Útvarpi Sögu í morgun. Innlent 12.10.2006 09:56
Mótmæla komu herskipsins Wasp til landsins Samtök herstöðvaandstæðinga átelja harðlega það samkomulag sem gert hefur verið um áframhaldandi samstarf Íslands og Bandaríkjanna á sviði hernaðar og hvernig borgaralegum stofnunum eins og Landhelgisgæslunni og lögreglunni skuli blandað í hernaðarlegt samstarf. Segir að þau áform komi berlega í ljós við heimsókn herskipsins Wasp á næstunni. Innlent 12.10.2006 09:26
Stúdentaráð mælir með menntun Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur í dag fyrir meðmælum undir yfirskriftinni „Vér meðmælum öll" fyrir utan aðalbyggingu Háskóla Íslands. Með því vill ráðið koma menntamálum í umræðuna fyrir næstu þingkosningar. Innlent 12.10.2006 09:23
Forsetinn fékk fyrsta eintakið Forseti Íslands tók í dag við fyrsta eintakinu af bókinni og geisladisknum "Ljóð í sjóð", sem MND-félagið gefur út. Í bókinni eru ljóð og myndlist eftir alla helstu listamenn þjóðarinnar og á geisladisknum eru lög sem tónlistarmenn gáfu félaginu. MND, eða hreyfitaugahrörnun, er ólæknandi sjúkdómur en um sex Íslendingar greinast með MND á hverju ári. Innlent 11.10.2006 20:46
Tap fyrir Svíum Íslenska landsliðið tapaði 2-1 fyrir Svíum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi 1-1. Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn í síðustu mínúturnar og átti Eiður Smári Guðjohnsen meðal annars skot í slá sænska marksins. Innlent 11.10.2006 20:15
Davíð trúir ekki á að Jón Baldvin hafi verið hleraður Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra leggur lítinn trúnað á fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra um að sími hans hafi verið hleraður í tíð Viðeyjarstjórnarinnar enda hafi sérfræðingar frá NATO og norsku öryggislögreglunni yfirfarið símann árlega. Davíð telur illboðlegt að hafa ekki sýnilegar varnir á Íslandi og hefði sjálfur sagt upp varnarsamningnum. Hann álasar þó ekki eftirmanni sínum fyrir samninginn sem undirritaður var í Washington í dag - en kallar hann bútasaum. Innlent 11.10.2006 19:29
Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengið ofbeldi og nauðganir Karlmaður á sextugsaldri, Jón Pétursson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað nauðgað fyrrverandi unnustu sinni og svipt hana frelsi og fyrir að hafa ráðist á aðra fyrrverandi sambýliskonu sína með ofbeldi í þrígang. Innlent 11.10.2006 17:39
Veita um 70 milljónir í friðarsjóð SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur einni milljón bandaríkjadala, um 70 milljónum króna til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). Innlent 11.10.2006 17:01
Skrifað undir varnarsamning í Washington - Rice heimsækir Ísland Geir H. Haarde forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skrifuðu undir nýtt samkomulag milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington nú á fimmta tímanum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var einnig viðstaddur undirritunina. Innlent 11.10.2006 16:52
Íbúðalánasjóður eykur hlutdeild sína á markaði Íbúðalánasjóður hefur aukið hlutdeild sína á íbúðalánamarkaði að undanförnu og námu útlán hans á þriðja ársfjórðungi 11,4 milljörðum króna. Til samanburðar námu ný íbúðalán banka og sparisjóða 9,8 milljörðum á sama tímabili eftir því sem fram kemur í Vegvísi Landsbankans. Innlent 11.10.2006 16:42
Valgerður fundaði með Wolfowitz Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Paul Wolfowitz, forseta Alþjóðabankans þar sem meðal annars var rætt um þau málefni sem eru ofarlega á baugi í starfsemi bankans, eins og orkumál og barátta gegn spillingu. Innlent 11.10.2006 16:22
Glitnir styður árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands Glitnir hefur ákveðið að styðja árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands sem nú stendur yfir. Af því tilefni hefur verið skipt um lit á vefsíðu Glitnis auk þess sem höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand eru lýstar með bleiku ljósi. Innlent 11.10.2006 16:10
Sakfelldur fyrir tilraun til ólöglegra fuglaveiða Héraðsdómur Austurlands svipti í dag karlmann skotvopna- og veiðileyfi í eitt ár og sektaði hann um 70 þúsund krónur fyrir tilraun til ólöglegra fuglaveiða með því að hafa ekið bíl utan vega og merktra slóða til þess að komast nær veiðislóð. Annar maður sem var með honum í för var hins vegar sýknaður af sömu ákæruatriðum. Innlent 11.10.2006 15:46
Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Atvinnuleysi í september reyndist eitt prósent og minnkaði um 0,2 prósentustig milli mánaða samkvæmt áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Þegar horft er til septembermánaðar í fyrra hefur atvinnuleysi minnkað um 0,4 prósentustig en þá var það 1,4 prósent. Innlent 11.10.2006 15:19
Vel hægt að taka upp neysluviðmið hér á landi Starfshópur, sem iðnaðarráðherra skipaði til að kanna hvort hægt væri að semja neysluviðmið fyrir Íslands líkt og í nágrannaríkjunum, mælir með því að notuð verði svokölluð útgjaldaaðferð til að áætla framfærslukostnað heimila hér á landi. Jafnframt er lagt til að sérfróðum og hluthlausum aðila verði falið að vinna neysluviðmið með þeirri aðferð í samvinnu við Hagstofu Íslands. Innlent 11.10.2006 14:58
Bókaútgefendur og rithöfundar fagna lækkun virðisaukaskatts Félag íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasamband Íslands fagnar þeim tillögum ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á bókum, blöðum og tímaritum úr 14 prósetum í sjö prósent þann 1. mars næstkomandi enda hafi niðurfelling eða lækkun virðisaukaskatts á bækur um langt skeið verið eitt helsta baráttumál útgefenda og rithöfunda. Innlent 11.10.2006 14:33
Landhelgisgæslan og Þyrluþjónustan fá flugrekstrarleyfi Flugmálastjórn Íslands hefur veitt bæði Þyrluþjónustunni og Landhelgisgæslunni svokallað JAR-OPS 3 flugrekstrarleyfi en það var gert nú um mánaðamótin. Þetta þýðir að Þyrluþjónustan og Landhelgisgæslan mega flytja bæði fólk og vörur. Innlent 11.10.2006 13:42
Sektaður fyrir að hafa auglýst bjór Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag framkvæmdastjóra Rolf Johansen og Co. til greiðslu sex hundruð þúsund króna fyrir hafa brotið áfengislög með því að birta auglýsingar á áfengum bjór í bæði tímariti og dagblaði á síðasta ári. Innlent 11.10.2006 13:36
Unnið að frumhönnun nýs húss að Sogni Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir að bæta þurfi við þrettán plássum á réttargeðdeildina að Sogni. Unnið er að frumhönnun nýs húss sem byggja á á svæðinu. Innlent 11.10.2006 12:50
Gorbatsjov kemur til landsins í dag Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, lendir á Reykjavíkurflugvelli um klukkan fjögur í dag og kemur til landsins í einkaflugvél Björgólfs Thors Björgólfssonar. Innlent 11.10.2006 12:39
Matarpokinn rúmlega helmingi dýrari í Reykjavík en í Danmörku Matarpoki sem keyptur er í Reykjavík er rúmlega helmingi dýrari en ef hann væri keyptur í Danmörku. Ef fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru teknar með í reikningsdæmið er munurinn enn sláandi. Innlent 11.10.2006 12:34
Vill verndar- og nýtingaráætlun innan fjögurra ára Auðlindanefnd iðnaðarráðherra legggur til að Alþingi samþykki verndar- og nýtingaráætlun fyrir auðlindir í jörðu sem lög eða þingsályktun eigi síðar en árið 2010. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í dag. Innlent 11.10.2006 12:43
Varnarsamningur undirritaður síðdegis í dag Stefnt er að því sídegis í dag að undirrita í Washington varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru í Bandaríkjunum vegna þessa viðburðar þau Geir Haarde, forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir,utanríkisráðherra og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Innlent 11.10.2006 12:30
40 bílbeltalausir ökumenn stöðvaðir í gær Lögreglan stöðvaði 40 ökumenn í gær þar sem þeir óku án bílbelta. Þeir eiga allir von á sekt fyrir athæfið. Einnig voru 25 árekstrar í borginni en í fimm þeirra varð slys á fólki. Innlent 11.10.2006 11:37
Jagland í opinberri heimsókn hér á landi Thorbjørn Jagland, forseti norska Stórþingsins, verður í opinberri heimsókn á Íslandi ásamt eiginkonu sinni frá og með deginum í dag til 15. október. Innlent 11.10.2006 11:23