Innlent Actavis hækkar hlutafé vegna kaupréttarsamninga Stjórn Actavis Group hf. ákvað á föstudag í síðustu viku, 1. desember síðastliðinn, að nýta heimild sína til hækkunar hlutafjár til að mæta skuldbindingum félagsins vegna kaupréttarsamninga við starfsmenn. Viðskipti innlent 4.12.2006 13:35 Tveir karlmenn enn á gjörgæsludeild eftir slys Karlmaður sem slasaðist við æfingu með svokölluðu dráttarsegli fyrir rúmri viku liggur enn á gjörgæsludeild. Þá er maðurinn sem brenndist illa í eldsvoða í Ferjubakka í nóvember enn á gjörgæsludeild þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Innlent 4.12.2006 12:26 Drengurinn á batavegi Átta ára drengur sem slasaðist í árekstri á Sandskeiði á laugardaginn er á batavegi. Hann er enn á gjörgæsludeild en hann hlaut alvarlega áverka í slysinu. Fimm ára stúlka og maður um þrítugt létust í árekstrinum. Innlent 4.12.2006 11:41 Viljayfirlýsing um fríverslunarviðræður undirrituð Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Yu Guangzhou aðstoðarutanríkisviðskiptaráðherra Kína í Peking. Á fundinum var síðan undirrituð viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli ríkjanna og var ákveðið að þær myndu hefjast þegar í upphafi árs 2007. Innlent 4.12.2006 10:31 Íslendingar voru í samstarfi við margar aðrar þjóðir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að Íslendingar hafi verið í samstarfi við margar aðrar þjóðir um að koma í veg fyrir samþykki banns á botnvörpuveiðar á alþjóðlegum hafsvæðum, á allsherjarþingi Sameinuðuþjóðanna nýverið. Innlent 4.12.2006 08:29 Margrét stefnir á toppinn í Frjálslynda flokknum Margrét Sverrisdóttir, sem nýverið var sagt upp starfi sem framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, stefnir á æðstu embætti innan flokksins á flokksþinginu, sem haldið verður í janúar. Þetta kom fram í Kastljósviðtali við hana á RÚV í gærkvöldi. Innlent 4.12.2006 07:49 Bílvelta undir Úlfarsfelli Ökumaður slapp lítið meiddur, en þarf þó að gangast undir rannsóknir á hálsi, eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á Vesturlandsvegi við hringtorgið undir Úlfarsfelli, með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af og valt. Þetta gerðist um klukkan hálf þrjú í nótt og var ökumaður, sem var einn í bílnum, flulttur á slysadeild. Bíllinn er mikið skemmdur. Innlent 4.12.2006 08:16 Frumvarp um RÚV á skjön við samkeppnislög Samkeppniseftirlitið virðist telja frumvarp um Ríkisútvarpið ohf, eins og það er núna, fela í sér samkeppnislega mismunun, með tilliti til þess að RÚV eigi áfram að starfa á auglýsingamarkaðnum og jafnframt njóta ríkisstyrkja. Innlent 4.12.2006 07:44 Búist við nýjum meirihluta í Árborg í dag Búist er við að nýr bæjarstjórnarmeirihluti verði myndaður í sveitarfélaginu Árborg í dag eftir að meirihlutasamstarf Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna brast fyrir helgi. Innlent 4.12.2006 07:32 Stjórnmálamenn fá haturspóst Fjöldi stjórnmálamanna, meðal annars frambjóðendur í prófkjöri vinstri grænna, hefur að undanförnu fengið nafnlaus bréf þar sem óhróðri er ausið yfir múslima. Nokkrir hafa sent lögreglu bréfin til rannsóknar. Innlent 3.12.2006 17:43 Aðskilja þarf akreinar til að fækka banaslysum 27 hafa látist í banaslysum á þessu ári. Framkvæmdastjóri Rannsóknarnefndar umferðarslysa að aðgreina þurfi akreinar á Suðurlands- og Vesturlandsvegi sem fyrst. Innlent 3.12.2006 17:15 Vill ekki að Álfheiður víki fyrir sér Óvíst er hvort reglur um kynjakvóta verði notaðar við uppröðun á lista Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi. Kvótinn þýðir að kona þarf að víkja fyrir karli til að jafna kynjahlutfallið, eftir forval flokksins, í gær. Innlent 3.12.2006 17:02 Guðbergur heiðraður á Ítalíu Innlent 3.12.2006 16:22 Íslensk hitaveita gangsett í Kína Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, gangsetti í dag fyrsta áfanga íslenskrar hitaveitu í borginni Xian Yang í Kína við hátíðlega athöfn. Í borginni búa um fimm milljónir íbúa. Miklar vonir eru bundnar við hitaveituna og er stefnt að því að hún verði sú stærsta í heimi. Innlent 3.12.2006 16:10 Tveir létust Fimm ára stúlka og maður um þrítugt létust í árekstri á Sandskeiði síðdegis í gær. Þrír aðrir voru í bílunum tveimur og voru þeir fluttir á slysadeild. Innlent 3.12.2006 10:03 Kveikt á jólatrénu á Austurvelli í dag Kveikt verður á Oslóartrénu, á Austurvelli, í dag og hefst athöfnin klukkan hálf fjögur með því að Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög. Rúm hálf öld er nú síðan Osló byrjaði að færa Reykjavík jólatré að gjöf. Innlent 3.12.2006 09:25 Ögmundur með flest atkvæði í forvali Vinstri-grænna Ögmundur Jónasson, Katrín Jakobsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir munu leiða lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í höfuðborgarkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi, ef kjörstjórn fer að úrslitum í forvali flokksins sem fór fram í dag. Innlent 3.12.2006 00:04 Ögmundur, Katrín og Kolbrún í fyrsta sæti eftir 700 atkvæði Ögmundur Jónasson er með flest atkvæði í fyrsta sæti hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði í kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu fyrir alþingiskosningar í vor eftir að 700 atkvæði hafa verið talin. Forval fór fram í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ í dag. Katrín Júlíusdóttir hlaut næstflest atkvæði í fyrsta sæti og Kolbrún Halldórsdóttir var þriðja inn í fyrsta sæti í kjördæmunum þremur. Innlent 2.12.2006 22:13 Ljósleiðari í sundur -sambandsleysi á Norðausturlandi Innlent 2.12.2006 21:36 Lést eftir hjartastopp í lögreglubíl um síðustu helgi Rúmlega þrítugur maður sem fékk hjartastopp í lögreglubíl í Reykjavík um síðustu helgi lést í gær. Maðurinn hafði lent í átökum við lögreglu. Málinu hefur verið vísað til ríkissaksóknara. Innlent 2.12.2006 18:05 Ekkert Digital Ísland á Akureyri Innlent 2.12.2006 17:28 Banni létt af Finnair vél Erlent 2.12.2006 17:17 Vinstri grænir í Suðurkjördæmi samþykkja lista Innlent 2.12.2006 17:11 Harma brotthvarf B-lista Innlent 2.12.2006 16:52 Harður árekstur á Suðurlandsvegi Fimm voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á Suðurlandsvegi eftir hádegi í dag. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðum áttum, og fór annar þeirra yfir á öfugan vegarhelming. Innlent 2.12.2006 16:05 Suðurlandsvegur lokaður vegna alvarlegs umferðarslyss Innlent 2.12.2006 15:20 Kveikt á jólatré í Garðabæ Innlent 2.12.2006 14:56 Meira en milljón sinnum í bíó Íslendingar fóru meira en milljón sinnum í bíó, á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þeir sáu alls 163 titla. Vinsælasta myndin á þessum tímabili var "Pirates of the Caribbean 2" en hana sáu 65.216 manns, á 362 sýningum. Innlent 2.12.2006 14:43 "Kjósendur þora ekki að treysta Samfylkingunni." "Vandi Samfylkingarinnar liggur í því að kjósendur þora ekki að treysta þingflokknum - ekki ennþá, ekki hingað til. Of margt fólk sem vill og ætti að kjósa okkur - allur meginþorri Íslendinga sem hafa sömu lífssýn, áhyggjur og verkefni og við - hefur ekki treyst þingflokknum fyrir landsstjórninni. Innlent 2.12.2006 14:03 Skátastúlkur féllu fram af kletti Tvær skátastúlkur meiddust þegar þær féllu fram af kletti í grennd við Hafravatn, í dag. Skátaflokkur úr Garðabæ 6 stúlkur á aldrinum 10-12 ára ásamt 17 ára foringja hafði verið í útilegu í skála við Hafravatn, og fóru í fjallgöngu í morgun. Innlent 2.12.2006 13:41 « ‹ 132 133 134 135 136 137 138 139 140 … 334 ›
Actavis hækkar hlutafé vegna kaupréttarsamninga Stjórn Actavis Group hf. ákvað á föstudag í síðustu viku, 1. desember síðastliðinn, að nýta heimild sína til hækkunar hlutafjár til að mæta skuldbindingum félagsins vegna kaupréttarsamninga við starfsmenn. Viðskipti innlent 4.12.2006 13:35
Tveir karlmenn enn á gjörgæsludeild eftir slys Karlmaður sem slasaðist við æfingu með svokölluðu dráttarsegli fyrir rúmri viku liggur enn á gjörgæsludeild. Þá er maðurinn sem brenndist illa í eldsvoða í Ferjubakka í nóvember enn á gjörgæsludeild þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Innlent 4.12.2006 12:26
Drengurinn á batavegi Átta ára drengur sem slasaðist í árekstri á Sandskeiði á laugardaginn er á batavegi. Hann er enn á gjörgæsludeild en hann hlaut alvarlega áverka í slysinu. Fimm ára stúlka og maður um þrítugt létust í árekstrinum. Innlent 4.12.2006 11:41
Viljayfirlýsing um fríverslunarviðræður undirrituð Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Yu Guangzhou aðstoðarutanríkisviðskiptaráðherra Kína í Peking. Á fundinum var síðan undirrituð viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli ríkjanna og var ákveðið að þær myndu hefjast þegar í upphafi árs 2007. Innlent 4.12.2006 10:31
Íslendingar voru í samstarfi við margar aðrar þjóðir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að Íslendingar hafi verið í samstarfi við margar aðrar þjóðir um að koma í veg fyrir samþykki banns á botnvörpuveiðar á alþjóðlegum hafsvæðum, á allsherjarþingi Sameinuðuþjóðanna nýverið. Innlent 4.12.2006 08:29
Margrét stefnir á toppinn í Frjálslynda flokknum Margrét Sverrisdóttir, sem nýverið var sagt upp starfi sem framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, stefnir á æðstu embætti innan flokksins á flokksþinginu, sem haldið verður í janúar. Þetta kom fram í Kastljósviðtali við hana á RÚV í gærkvöldi. Innlent 4.12.2006 07:49
Bílvelta undir Úlfarsfelli Ökumaður slapp lítið meiddur, en þarf þó að gangast undir rannsóknir á hálsi, eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á Vesturlandsvegi við hringtorgið undir Úlfarsfelli, með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af og valt. Þetta gerðist um klukkan hálf þrjú í nótt og var ökumaður, sem var einn í bílnum, flulttur á slysadeild. Bíllinn er mikið skemmdur. Innlent 4.12.2006 08:16
Frumvarp um RÚV á skjön við samkeppnislög Samkeppniseftirlitið virðist telja frumvarp um Ríkisútvarpið ohf, eins og það er núna, fela í sér samkeppnislega mismunun, með tilliti til þess að RÚV eigi áfram að starfa á auglýsingamarkaðnum og jafnframt njóta ríkisstyrkja. Innlent 4.12.2006 07:44
Búist við nýjum meirihluta í Árborg í dag Búist er við að nýr bæjarstjórnarmeirihluti verði myndaður í sveitarfélaginu Árborg í dag eftir að meirihlutasamstarf Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna brast fyrir helgi. Innlent 4.12.2006 07:32
Stjórnmálamenn fá haturspóst Fjöldi stjórnmálamanna, meðal annars frambjóðendur í prófkjöri vinstri grænna, hefur að undanförnu fengið nafnlaus bréf þar sem óhróðri er ausið yfir múslima. Nokkrir hafa sent lögreglu bréfin til rannsóknar. Innlent 3.12.2006 17:43
Aðskilja þarf akreinar til að fækka banaslysum 27 hafa látist í banaslysum á þessu ári. Framkvæmdastjóri Rannsóknarnefndar umferðarslysa að aðgreina þurfi akreinar á Suðurlands- og Vesturlandsvegi sem fyrst. Innlent 3.12.2006 17:15
Vill ekki að Álfheiður víki fyrir sér Óvíst er hvort reglur um kynjakvóta verði notaðar við uppröðun á lista Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi. Kvótinn þýðir að kona þarf að víkja fyrir karli til að jafna kynjahlutfallið, eftir forval flokksins, í gær. Innlent 3.12.2006 17:02
Íslensk hitaveita gangsett í Kína Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, gangsetti í dag fyrsta áfanga íslenskrar hitaveitu í borginni Xian Yang í Kína við hátíðlega athöfn. Í borginni búa um fimm milljónir íbúa. Miklar vonir eru bundnar við hitaveituna og er stefnt að því að hún verði sú stærsta í heimi. Innlent 3.12.2006 16:10
Tveir létust Fimm ára stúlka og maður um þrítugt létust í árekstri á Sandskeiði síðdegis í gær. Þrír aðrir voru í bílunum tveimur og voru þeir fluttir á slysadeild. Innlent 3.12.2006 10:03
Kveikt á jólatrénu á Austurvelli í dag Kveikt verður á Oslóartrénu, á Austurvelli, í dag og hefst athöfnin klukkan hálf fjögur með því að Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög. Rúm hálf öld er nú síðan Osló byrjaði að færa Reykjavík jólatré að gjöf. Innlent 3.12.2006 09:25
Ögmundur með flest atkvæði í forvali Vinstri-grænna Ögmundur Jónasson, Katrín Jakobsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir munu leiða lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í höfuðborgarkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi, ef kjörstjórn fer að úrslitum í forvali flokksins sem fór fram í dag. Innlent 3.12.2006 00:04
Ögmundur, Katrín og Kolbrún í fyrsta sæti eftir 700 atkvæði Ögmundur Jónasson er með flest atkvæði í fyrsta sæti hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði í kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu fyrir alþingiskosningar í vor eftir að 700 atkvæði hafa verið talin. Forval fór fram í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ í dag. Katrín Júlíusdóttir hlaut næstflest atkvæði í fyrsta sæti og Kolbrún Halldórsdóttir var þriðja inn í fyrsta sæti í kjördæmunum þremur. Innlent 2.12.2006 22:13
Lést eftir hjartastopp í lögreglubíl um síðustu helgi Rúmlega þrítugur maður sem fékk hjartastopp í lögreglubíl í Reykjavík um síðustu helgi lést í gær. Maðurinn hafði lent í átökum við lögreglu. Málinu hefur verið vísað til ríkissaksóknara. Innlent 2.12.2006 18:05
Harður árekstur á Suðurlandsvegi Fimm voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á Suðurlandsvegi eftir hádegi í dag. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðum áttum, og fór annar þeirra yfir á öfugan vegarhelming. Innlent 2.12.2006 16:05
Meira en milljón sinnum í bíó Íslendingar fóru meira en milljón sinnum í bíó, á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þeir sáu alls 163 titla. Vinsælasta myndin á þessum tímabili var "Pirates of the Caribbean 2" en hana sáu 65.216 manns, á 362 sýningum. Innlent 2.12.2006 14:43
"Kjósendur þora ekki að treysta Samfylkingunni." "Vandi Samfylkingarinnar liggur í því að kjósendur þora ekki að treysta þingflokknum - ekki ennþá, ekki hingað til. Of margt fólk sem vill og ætti að kjósa okkur - allur meginþorri Íslendinga sem hafa sömu lífssýn, áhyggjur og verkefni og við - hefur ekki treyst þingflokknum fyrir landsstjórninni. Innlent 2.12.2006 14:03
Skátastúlkur féllu fram af kletti Tvær skátastúlkur meiddust þegar þær féllu fram af kletti í grennd við Hafravatn, í dag. Skátaflokkur úr Garðabæ 6 stúlkur á aldrinum 10-12 ára ásamt 17 ára foringja hafði verið í útilegu í skála við Hafravatn, og fóru í fjallgöngu í morgun. Innlent 2.12.2006 13:41