Lög og regla
40 41 42 43 44 45 46 47 48 … 120 ›
Gögn sanna sekt segir Jón Gerald Jón Gerald Sullenberger segir að ríkislögreglustjóri sé með gögn frá sér undir höndum sem sanni sekt sakborninga í Baugsmálinu í 6 ákæruliðanna. Skýringar hans ganga þvert á skýringar sakborninga. Sex ákærur af fjörutíu í Baugsmálinu lúta að viðskiptum sem tengjast Nordica, fyriræki Jóns Geralds Sullenberger í Bandaríkjunum. Innlent 13.10.2005 19:43
Skrif um Baugsmálið í Bretlandi Breskir fjölmiðlar fjalla áfram um Baugsmálið en á mjög misjöfnum nótum. Öll helstu dagblöðin eru með blaðamenn hér á landi til að kanna ákærurnar og viðbrögð við þeim. Innlent 13.10.2005 19:42
Útlendingar veltu bílum Lögreglumenn landsins höfðu í ýmis horn að líta í gær. Jafnframt var þyrla Landhelgisgæslunnar send í sjúkraflug svo fátt eitt sé nefnt. Innlent 13.10.2005 19:42
Verður rekið í réttarsal Yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, Jón H. B. Snorrason, segist ekki munu svara þeim þungu ásökunum sem forstjóri Baugs hefur borið á embætti Ríkislögreglustjóra. Hann segir málið verða rekið í dómsal. Innlent 13.10.2005 19:42
Neituðu öll sök Klukkan 13:30 í dag var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur, mál ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs og fimm örðum tengdum fyrirtækinu. Allir ákærðu mættu fyrir dómi og hlýddu á þegar ákærur voru lesnar. Þau voru samhljóða þegar þau sögðu ákærurnar vera rangar og lýstu sig jafnframt saklaus af öllum ákæruatriðum. Innlent 13.10.2005 19:42
Segjast öll saklaus Sakborningarnir í Baugsmálinu segjast allir saklausir. Þeir ákærurnar ekki byggðar á traustum grunni og eru sannfærðir um sýknudóm í málinu. Búist er við að málinu ljúki í síðasta lagi fyrir haustið 2006. Innlent 13.10.2005 19:42
Eðlileg skýring á ákæruatriðum Enska lögfræðifyrirtækið Capcon-Argen Limited sem fór yfir ákærurnar 40 í Baugsmálinu, að beiðni Baugs, segir ekkert óeðlilegt við hegðun Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Forstjóri fyrirtækisins kynnti skýrslu sína á Hótel Nordica í morgun. Innlent 13.10.2005 19:42
Flugliðinn enn í haldi vegna morðrannsóknar Stúlkan sem myrt var á varnasvæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli síðastliðið sunnudagskvöld hét Ashley Turner. Hún var fædd í Fredrick í Marylandríki 20. mars árið 1985. Hún gekk til liðs við bandaríska flugherinn að loknu framhaldsskólanámi og að þjálfun lokinni kom hún til starfa í tæknideild björgunarsveitar varnarliðsins. Hún lætur eftir sig foreldra og bróður. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og er liðsmaður flugliðs varnarliðsins enn í haldi vegna rannsóknarinnar. Innlent 13.10.2005 19:42
Meint brot samþykkt í úttekt Enska lögfræðifyrirtækið Capcon-Argen Limited sem fór yfir ákærurnar 40 í Baugsmálinu að beiðni Baugs, segir ekkert óeðlilegt við hegðun Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og hófst kynning á skýrslunni á Hótel Nordica klukkan níu í morgun. Innlent 13.10.2005 19:42
Blaðamannafundur á Hótel Nordica Blaðamannafundur þar sem breskir lögfræðingar kynna skýrslu um Baugsmálið hófst á Nordica Hótel klukkan níu í morgun, en stjórn Baugs boðaði til fundarins. Breska lögfræðifyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum á fyrirtækjum, en það hóf að fara í gegnum ákærurnar í Baugsmálinu fyrir um fimm vikum. Innlent 13.10.2005 19:42
Björgunarbátur tekur þátt í leit Leit stendur nú yfir að 23 ára Þjóðverja sem varð viðskila við gönguhóp sinn á Hornströndum í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað um eittleytið með 9 manns um borð og fjóra leitarhunda. Björgunarbátur frá Ísafirði er á leiðinni með 25 manns um borð og nú þegar leita björgunarmenn sem og ferðamenn að manninum. Innlent 13.10.2005 19:42
Maður sem leitað var að fundinn 23 ára Þjóðverji sem leitað var að á Hornströndum eftir að hann varð viðskila við gönguhóp sinn þar í gær er fundinn. Ekkert amaði að honum. Að sögn lögreglu á Ísafirði sagðist maðurinn hafa ákveðið að skoða sig um á svæðinu og hitta svo ferðafélaga sína í Hornvík og var hann því mjög hissa þegar hann heyrði að hans væri leitað. Innlent 13.10.2005 19:42
Hagnaðist ekki persónulega Ákærðu í Baugsmálinu lýsa sig saklausa af þeim tölulið ákærunnar sem snýr að kaupum Jóns Ásgeirs Jónssonar, þáverandi forstjóra Baugs, á Vöruveltunni hf. sem meðal annars rak verslanakeðjuna 10-11. Innlent 13.10.2005 19:42
Meint bókhaldsbrot vega þyngst Í Baugsmálinu er ákært fyrir fjörutíu töluliði en telja verður að ákæruliðirnir sem varða þyngstu refsinguna snúist um mun færri ákæruliði. Helstu lögbrotin varða brot gegn almennum hegningarlögum. Innlent 13.10.2005 19:42
Eitt stærsta mál dómsins "Það má leiða líkum að því að þetta verði eitt stærsta málið sem farið hefur hér fram," segir Helgi I. Jónsson, dómsstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:42
Leita ferðamanns á Vestfjörðum Allar björgunarsveitir við Ísafjarðardjúp eru í iðbragðsstöðu og þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna 23 ára Þjóðverja sem varð viðskila við gönguhóp sinn á Hornströndum í gær. Talið er að hópurinn hafi verið á leið frá Hælavík yfir í Hornvík þegar maðurinn týndist, en mikil þoka var á svæðinu. Innlent 13.10.2005 19:41
Eðlilegt að dómarar vikju Eðlilegt væri að allir hæstaréttardómarar vékju í kjölfar tengsla þeirra við Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara þegar Baugsmálið verður tekið fyrir í Hæstarétti. Þetta sagði Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns í þættinum Íslandi í dag í gær. Innlent 13.10.2005 19:42
Leita Þjóðverja á Hornströndum Björgunarsveitir við Ísafjarðardjúp eru nú á leið á Hornstrandir til að leita að 23 ára gömlum Þjóðverja. Þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig á leiðinni vestur með leitarhunda að sunnan. Innlent 13.10.2005 19:41
Talinn hafa berað kynfæri sín Karlmaður um þrítugt var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi grunaður um að hafa berað kynfæri sín fyrir framan tvær níu ára gamlar stúlkur í suðvesturhluta borgarinnar í gær. Ekki er enn ljóst hvort um sama mann hafi verið að ræða en lögreglan rannsakar málið. Innlent 13.10.2005 19:41
Sérfræðingar komnir til landsins Sérfræðingar á vegum bandaríska hersins eru komnir til landsins vegna rannsóknar á morðinu sem framið var á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt. Tvítugur varnarliðsmaður hefur verið handtekinn, grunaður um morðið. Íslensk lögregluyfirvöld og rannsóknardeild bandaríska sjóhersins rannsaka málið með bandarísku sérfræðingunum. Innlent 13.10.2005 19:41
Ryðja þurfi réttinn fyrir Baugsmál Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður telur að ef Baugsmálið fari fyrir Hæstarétt þurfi að ryðja réttinn og fá nýja dómara. Hann segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara vera vanhæfan og sömuleiðis alla samstarfsmenn hans í réttinum. Þetta sagði Brynjar í þættinum Íslandi í dag í gær. Feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson sögðu í <em>Fréttablaðinu</em> um helgina að Jón Steinar hefði átt beina aðild að því að farið var að rannsaka Baug. Innlent 13.10.2005 19:41
Kona myrt á varnarliðssvæði Tvítug varnarliðskona var myrt á varnarsvæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli á miðnætti í nótt. Varnarliðsmaður er í haldi herlögreglunnar grunaður um verknaðinn. Íslensk kona er í haldi lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Hún er talin hafa verið vitni að verknaðinum og getað gefið mikilvægar upplýsingar. Innlent 13.10.2005 19:41
Konan var myrt með hnífi Hnífur var notaður sem morðvopn að sögn heimilda fréttastofu þegar varnarliðsmaður myrti tvítuga varnarliðskonu á miðnætti í nótt. Það hefur þó ekki fengist staðfest. Áverka var að finna á hnakka konunnar en ekki er víst hvort þeir hafi leitt dauða hennar, segir á vef <em>Víkurfrétta</em>. Innlent 13.10.2005 19:41
Enn í öndunarvél eftir bílslys Konan sem slasaðist alvarlega í árekstri á þjóðveginum við Hallormsstaðarskóg við Egilsstaði á þriðjudaginn er enn í öndunarvél á gjörgæsludeild og er líðan hennar eftir atvikum. Tveir samferðamenn hennar voru úrskurðaðir látnir við komuna á sjúkrahús. Innlent 13.10.2005 19:41
Sauðfé sækir í garða á Ísafirði Lögreglan á Ísafirði hefur haft í nógu að snúast við að reka rollur úr bæjarlandinu. Á <em>Lögregluvefnum</em> kemur fram að nærri daglega hafi rollurnar komið til beitar í húsagörðum, nýræktinni í snjóflóðavarnargarðinum og inni í Tunguskógi, bæjarbúum til mikils ama. Hafa lögreglu borist margar kvartanir vegna þessa en eigendurnir fjárins vísa á bæjaryfirvöld sem ábyrgðaraðila þar sem bærinn eigi að girða af bæjarlandið og passa að gera við ef eitthvað bilar þar. Innlent 13.10.2005 19:41
Tvítug varnarliðskona myrt Tvítug bandarísk varnarliðskona fannst látin á svæði varnarliðsins Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt. Varnarliðsmaður var í kjölfarið handtekinn grunaður um að hafa orðið henni að bana. Von var á bandarískum rannsóknarmönnum til landsins í gærkvöldi til þess að veita aðstoð við rannsókn málsins. Innlent 13.10.2005 19:41
Frívaktarlögga sneri þjóf niður Lögreglukona á frívakt sneri niður þjóf á veitingastaðnum American Style í gærkvöld. Maðurinn, sem var sagður í annarlegu ástandi, reyndi að stela veski af ófrískri konu en var fljótt snúinn niður af lögreglukonunni. Hún hélt honum niðri með annarri hendi meðan hún kallaði til lögreglu á vakt sem kom og færði manninn í fangageymslur. Innlent 13.10.2005 19:41
Neitar aðkomu að Baugsmáli Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari segir í yfirlýsingu sem birt er í <em>Morgunblaðinu</em> og <em>Fréttablaðinu</em> í dag að hann hafi ekki verið þátttakandi í samsæri um að koma á Baug tilefnislausum sökum. Hann hafi einungis unnið ósköp venjuleg lögmannsstörf fyrir Jón Gerald Sullenberger, en feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson sögðu í Fréttablaðinu um helgina að Jón Steinar hefði átt beina aðild að því að farið var að rannsaka Baug. Innlent 13.10.2005 19:41
Konu sleppt eftir yfirheyrslur Íslenskri konu, sem yfirheyrð var hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli vegna morðsins á tvítugri varnarliðskonu á miðnætti í nótt, hefur verið sleppt. Talið var að hún hefði verið vitni að verknaðinum, sem var framinn á svæði varnarliðsins, og var hún þess vegna færð til yfirheyrslu. Varnarliðsmaður sem grunaður er um verknaðinn er enn í haldi herlögreglunnar. Innlent 13.10.2005 19:41
Útskrifaður af gjörgæslu í dag Maðurinn sem slasaðist alvarlega þegar bíll hans valt eftir útafakstur við Skriðukaustur í Fljótsdal í gærmorgun útskrifast af gjörgæslu í dag. Maðurinn, sem var einn í bílnum, var grunaður um ölvun við akstur. Innlent 13.10.2005 19:41