Erlent

Vilja ekki að öryggisráð Sþ ræði kjarnorkutilraunir
Kínverjar eru andvígir því að fyrirhugaðar tilraunir Norður-Kóreumanna með kjarnorkuvopn verði teknar upp í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Enn fleiri rafhlöður innkallaðar
Japanski tölvuframleiðandinn Fujitsu hefur bæst í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa ákveðið að innkalla rafhlöður frá Sony, sem seldar voru með fartölvum fyrirtækisins. Um 287.000 rafhlöður er að ræða að þessu sinni, sem verða innkallaðar í varúðarskyni.

Tafir á afhendingu risaþota frá Airbus
Mörg af stærstu flugfélögum í heimi munu vera að endurskoða pantanir sínar á A380 risaþotum eftir að stjórn EADS, móðurfélags evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, greindi frá því að afhending á risaþotunum myndi dragast fram á haustið 2007.

Harmur eftir blóðbað í skólum
Bandaríkjamenn eru sem í losti eftir röð skotárása í grunnskólum landsins síðustu daga. Í gær dóu úr sárum sínum á sjúkrahúsi tvær stúlkur til viðbótar þeim þremur sem dóu samstundis er 32 ára gamall karlmaður úr nágrenninu skaut á alls ellefu skólastúlkur í litlum skóla Amish-fólks í friðsælli sveit um 80 km vestur af Fíladelfíu í Pennsylvaníuríki í fyrradag.

Mótmæla velferðarniðurskurði
Nærri fimmtíu þúsund Danir mótmæltu niðurskurði í velferðarkerfinu víða um Danmörku í gær. Óánægðir foreldrar, starfsfólk opinberra stofnana og nemendur söfnuðust saman á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn, sem og á aðaltorgum margra annarra borga Danmerkur, að því er fram kom á fréttavef Politiken.

Hagkerfið í Færeyjum vex
Danski Seðlabankinn býst áfram við áframhaldandi framþróun í færeyska hagkerfinu. Eftir nokkur samdráttarár sýnir færeyska hagkerfið framfarir. Þetta sést sérstaklega á hækkandi launum og umbótum á vinnumarkaði. Hagvöxtur er drifinn áfram af háu fiskverði og vaxandi fjárfestingu í fasteignum.

Stjórnarflokkar biðu afhroð
Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, fer fram á það að þing landsins greiði á föstudaginn atkvæði um traustsyfirlýsingu á stjórnina, sem beið verulegt afhroð í sveitarstjórnarkosningum nú um helgina.
Talinn ógna öryggi Svía
Sænski herforinginn Tony Stigsson er ógn við öryggi þjóðar sinnar. Þessu hélt yfirmaður sænskra varnarmála, Håkan Syrén, fram í samtali við blaðamenn sænska blaðsins Dagens Nyheter.

Gusenbauer næsti kanslari
Wolfgang Schüssel, kanslari Austurríkis og leiðtogi Þjóðarflokksins ÖVP, baðst í gær lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, tveimur dögum eftir þingkosningar í landinu. Þau óvæntu úrslit urðu í kosningunum að jafnaðarmenn hrósuðu sigri, hlutu hálfu öðru prósentustigi meira fylgi en flokkur Schüssels.

Ætla að prófa kjarnavopn
Ríkisstjórn Norður-Kóreu tilkynnti í gær að hún myndi gera tilraunir á næstunni með kjarnorkuvopn í þeim tilgangi að styrkja varnir lands síns gegn því sem hún kallar aukinn fjandskap Bandaríkjanna.

Liðþjálfi í fjögurra ára fangelsi
Rússneskur hermaður hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að misþyrma ungum hermanni svo illa að fjarlægja þurfti fótleggi hans og kynfæri.

Tyrkneskri flugvél rænt
Engan sakaði þegar tyrkneskri farþegaflugvél á leið frá Albaníu til Tyrklands var rænt í háloftunum yfir Grikklandi í gær. Ræningjarnir, sem voru tveir óvopnaðir Tyrkir, sögðust vera að mótmæla fyrirhugaðri heimsókn páfa til Tyrklands í næsta mánuði.
Flugvél nauðlent í Teheran
Farþegaflugvél var nauðlent á Mehrabad-flugvelli í Teheran, höfuðborg Írans, í dag. Íranska fréttastofan Fars segir að kviknað hafi í hreyfli flugvélarinnar og því hafi henni verið nauðlent. Sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang. Flugmálayfirvöld þar í borg segja ekkert hæft í þeim fullyrðingum.

Líkast til aðeins einn flugræningi en ekki tveir
Svo virðist sem einn maður hafi rænt tyrkneskri farþegaflugvél í dag en ekki tveir eins og haldið hefur verið fram. Vélin var á leið frá Tírana í Albaníu til Istanbúl þegar henni var rænt og beint til Ítalíu. Flugræninginn mun, að sögn tyrkneskra fjölmiðla, ekki hafa verið að mótmæla væntanlegri heimsókn Benedikts páfa XVI. með flugráninu eins og haldið hefur verið fram.
Man ekki eftir að hafa orðið systrum sínum að bana
Maðurinn sem myrti systur sínar þrjár í Ósló í fyrrakvöld kveðst ekkert muna eftir að hafa orðið þeim að bana. Hann dvelur á geðdeild vegna þess að hann er enn í of miklu losti til að hægt sé að yfirheyra hann.

Farþegum og áhöfn sleppt
Tveir menn sem rændu tyrneskri farþegaflugvél í dag og beindu henni til Ítalíu segjast tilbúinir til að gefast upp og óska hælis á Ítalíu. Flugmálayfirvöld á Ítalíu hafa upplýst þetta. Að sögn ANSA-fréttastofunnar hefur farþegunum 107 og sex manna áhöfn verið leyft að yfirgefa vélina.

Misnotaði börn fyrir 20 árum
Charles Carl Roberts, maðurinn sem skaut 10 skólastúlkur í barnaskóla í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, viðurkenndi fyrir eiginkonu sinni að hann misnotað tvo unga fjölskyldumeðlimi fyrir tveimur áratugum.


Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði til Bandaríkjanna
Sænska vísindaakademían greindi frá því í morgun að Bandaríkjamennirnir John Mather og George Smoot fengju Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði þetta árið fyrir framlag þeirra til að varpa frekara ljósi á tilurð alheimsins.

Ban líklegur arftaki Annan
Flest bendir til að Suður-Kóreumaðurinn Ban Ki-moon verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Hefja tilraunir með kjarnorkusprengjur á næstunni
Stjórnvöld í Norður-Kóreu lýstu því yfir í morgun að þau ætluðu að hefja tilraunir með kjarnorkusprengjur á næstunni. Utanríkisráðherra Japans segir að áform nágranna sinna séu ófyrirgefanleg.

Olíuverðið aftur niður
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hélt áfram að lækka í dag, annan daginn í röð, á helstu fjármálamörkuðum eftir nokkrar verðhækkanir í síðustu viku. Ástæðan fyrir lækkuninni er bjartsýni fjárfesta um auknar olíubirgðir í Bandaríkjunum.

Fjórum rússneskum hermönnum sleppt
Enn ríkir spenna í samskiptum Georgíumanna og Rússa. Fjórum Rússum var í gær sleppt úr haldi í Georgíu og héldu þeir til Moskvu ásamt tveimur rússneskum embættismönnum, sem grunaðir voru um njósnir.

Kallað eftir lokun Guantanamo-búða
Þótt alþjóðir hafi kallað eftir lokun fangabúða bandaríska hersins við Guantanamo-flóa á Kúbu, gengur hægt að rýma þær. Tveir ungir Bretar, aðalhetjur heimildamyndarinnar Leiðin til Guantanamo, fara þó sínar eigin leiðir í að reyna að fá búðunum lokað; þeir segja sögu sína.

Fjórir í valnum eftir skotárás
Fjórir létust eftir að byssumaður réðst inn í lítinn barnaskóla Amish fólks í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær. Byssumaðurinn svipti sig lífi eftir að hafa skotið þrjár telpur beint í höfuðið. Hann mun hafa verið að hefna atburða sem áttu sér stað fyrir tuttugu árum síðan. Sjö manneskjur lágu jafnframt alvarlega slasaðar á sjúkrahúsi eftir árás mannsins.

Áhersla á félagslega ábyrgð
Félagsleg ábyrgð, það er kjarninn í frjálslyndri íhaldsstefnu, sagði David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, við upphaf flokksþingsins í gær. Hann sagði að Íhaldsflokkurinn hafnaði þeirri stefnu ríkis-ábyrgðar" sem Verkamannaflokkurinn hefur fylgt undir forystu Tonys Blair, en vilji í staðinn að almenningur taki sjálft ábyrgð á umhverfi sínu og samfélaginu. Félagsleg ábyrgð það er okkar hugmynd, sagði hann í fyrstu ræðu sinni á flokksþingi Íhaldsflokksins sem formaður flokksins.