Erlendar
254 255 256 257 258 259 260 261 262 … 264 ›
Svisslendingar áfram Svisslendingar eru komnir á HM í Þýskalandi á næsta ári, þrátt fyrir 4-2 tap í Tyrklandi í kvöld. Fyrri leikurinn endaði með sigri Svisslendinga 2-0 og því fara þeir áfram á mörkum skoruðum á útivelli. Tuncay Sanli skoraði þrennu fyrir Tyrki í leiknum, en það dugði ekki til og því sitja þeir eftir með sárt ennið í þetta skiptið. Sport 16.11.2005 20:44
Læt ekki teyma mig út í að spreða peningum Arsene Wenger, stjóri Arsenal, ætlar ekki að taka upp budduna í janúar og spreða peningum í leikmenn nema einhver sérstakur leikmaður verði á lausu. Því er haldið fram að eitthvað sé til af peningum í bauknum hjá Arsenal þó félagið tali um að halda að sér höndum, en nöfn þeirra Dirk Kuyt og Fernando Torres hafa verið nefnd í því sambandi. Sport 16.11.2005 19:02
Held að Henry fari frá Arsenal Ruud Gullit, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea og Newcastle, telur að Thierry Henry muni líklega yfirgefa Arsenal fljótlega, úr því að hann hefur neitað að framlengja samning sinn við enska félagið. Gullit telur að Barcelona væri kjörið lið fyrir Frakkann. Sport 16.11.2005 18:54
Trinidad og Tobago á HM í fyrsta sinn Lið Trinidad og Tobago komst í dag á HM í fyrsta skipti í sögunni þegar liðið lagði Bahrein 1-0 á útivelli og samtals 2-1. Trinidad verður því minnsta þjóðin sem tekur þátt í lokakeppni HM í Þýskalandi á næsta ári, því aðeins um ein milljón manna búa í Trinidad og Tobago. Sport 16.11.2005 18:15
Ronaldo, Baptista og Zidane klárir gegn Barcelona Real Madrid er nú óðum að fá stjörnur sínar til baka úr meiðslum fyrir leik ársins í spænska boltanum á laugardaginn, en þá mætast erkifjendurnir Barcelona og Real Madrid í uppgjöri stórliðanna á Spáni. Sport 16.11.2005 17:53
Við spiluðum eins og kerlingar Age Hareide, þjálfari Norðmanna var ekki sáttur við frammistöðu sinna manna gegn Tékkum í fyrri leik liðanna um laust sæti á HM í Þýskalandi næsta sumar, en síðari leikurinn fer fram í Tékklandi nú í kvöld. Hareide sagði að sínir menn hefðu spilað eins og kerlingar, en það fór fyrir brjóstið á nokkrum löndum hans. Sport 16.11.2005 17:37
Sektaður um 1000 pund fyrir að hrækja á barn Vandræðagemlingurinn El Hadji Diouf hjá Bolton var í dag sektaður um 1000 pund fyrir að hrækja á ellefu ára gamalt barn eftir leik Bolton og Middlesbrough í nóvember á síðasta ári. Líklegt þótti að Diouf yrði dæmdur í bann vegna atviksins, en hann slapp með skrekkinn. Diouf á yfir höfði sér dóm vegna ölvunaraksturs á dögunum, en hann hefur átt mjög erfitt með að hegða sér vel undanfarið. Sport 16.11.2005 17:27
Sigur hjá Ólafi og félögum Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænsku úrvalsdeildinni, sigraði Arrate 24-20 í gærkvöld og því heldur liðið toppsæti deildarinnar ásamt Barcelona. Ólafur lét lítið fyrir sér fara í leiknum og náði ekki að skora. Börsungar sigruðu Bidasoa með níu mörkum 38-29 og Barcelona og Ciudad eru því efst og jöfn með 16 stig eftir 9 leiki. Sport 16.11.2005 17:21
Pistons með áttunda sigurinn í röð Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Detroit Pistons unnu áttunda leik sinn í röð í upphafi leiktíðar þegar liðið tók á móti Boston Celtics. Sport 16.11.2005 16:28
Allt annað en Madrid yrði skref aftur á bak "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, hefur látið hafa það eftir sér að úr því útlit sé fyrir að Michael Ballack sé að fara frá Bayern, sé Real Madrid eini raunhæfi kosturinn fyrir hann því annarsstaðar nái hann ekki að bæta sig sem knattspyrnumaður. Sport 16.11.2005 16:08
Ástralir tryggðu sér sæti á HM 2006 Ástralir tryggðu sér í dag sæti á HM í Þýskalandi eftir frækinn sigur á Ungverjum í vítaspyrnukeppni í Sydney. Marco Breciano skoraði mark Ástrala á 35. mínútu og því var staðan jöfn 1-1 samanlagt, en Ástralir höfðu betur í vítakeppninni. Sport 16.11.2005 15:47
Dallas - Denver í beinni Leikur Dallas Mavericks og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu klukkan 01:30 í nótt á NBA TV. Þar verður athyglisvert að fylgjast með einvígi þeirra Dirk Nowitzki hjá Dallas og Carmelo Anthony hjá Denver. Sport 15.11.2005 18:06
Reo-Coker ökklabrotinn Úrvalsdeildarlið West Ham varð fyrir miklu áfalli í dag þegar í ljós kom að fyrirliði liðsins Nigel Reo-Coker er með brákað bein í ökkla og verður frá í um sex vikur. Sport 15.11.2005 17:36
Toppbaráttan hefur opnast aftur Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að baráttan um enska meistaratitilinn hafi opnast aftur eftir að Chelsea tapaði fyrir Manchester United á dögunum, en Chelsea hefur unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum í öllum keppnum. Sport 15.11.2005 16:10
Ég stend í þakkarskuld við Martin Jol Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham þakkar Martin Jol knattspyrnustjóra sínum fyrir að hafa gefið sér tækifæri til að bjarga ferlinum eftir að hann kom sem lánsmaður til Lundúna frá AS Roma á Ítalíu. Sport 15.11.2005 15:03
Southgate hefur náð sér af meiðslunum Gareth Southgate, fyrirliði Middlesbrough, hefur náð sér af nárameiðslum sem hafa haldið honum frá keppni síðan í endaðan október og verður væntanlega í liði Boro sem mætir Fulham á sunnudag. Sport 15.11.2005 14:42
David Moyes er ekki falur Forráðamenn Everton hafa brugðist harkalega við getgátum um að David Moyes verði næsti knattspyrnustjóri skoska stórliðsins Glasgow Rangers, en Alex McLeish stjóra Rangers hefur verið gefinn tveggja vikna frestur til að rétta hag skosku meistaranna, ella verði honum vikið úr starfi. Sport 15.11.2005 13:45
Utah setti vafasamt félagsmet Þrír leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Memphis vann auðveldan sigur á Los Angeles Lakers, Utah tapaði heima fyrir New York Knicks og Golden State vann auðveldan sigur á Chicago Bulls. Sport 15.11.2005 13:06
Tottenham minnir á Ajax Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids segir að ungt lið Tottenham í dag minni hann á Ajax-liðið sem hann spilaði með í byrjun tíunda áratugarins, en það lið vann hollensku deildina þrjú ár í röð og sigraði í Meistaradeildinni. Sport 14.11.2005 16:50
Memphis - LA Lakers í beinni Leikur Memphis Grizzlies og Los Angeles Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt og hefst hann um klukkan eitt eftir miðnætti. Í gær var sýndur leikur Sacramento og New York, þar sem Larry Brown og félagar unnu sinn fyrsta sigur í deildinni í vetur. Sport 14.11.2005 17:09
Clichy meiddist um helgina Arsenal hefur orðið fyrir því áfalli að missa bakvörðinn Gael Clichy í meiðsli, en talið er að hann sé fótbrotinn eftir að hann meiddist í leik með u-21 árs liði Frakka á White Hart Lane um helgina. Sport 14.11.2005 16:30
Borðaði Snickers í morgunmat og hneig niður í lyftu Mikil skelfing greip um sig í herbúðum Los Angeles Lakers á sunnudagsmorguninn þegar úkraínski miðherjinn Slava Medvedenko féll í yfirlið í lyftu þegar liðið var að yfirgefa hótel og var fluttur á spítala í skyndi. Sport 14.11.2005 17:46
Guðjón vonsvikinn, en refsar leikmönnum ekki Notts County tapaði á heimavelli fyrir Cheltenham í ensku 3. deildinni um helgina, en þó Guðjón Þórðarson hefði verið mjög vonsvikinn með tapið, ætlar hann ekki að refsa leikmönnum sínum með aukaæfingum eins og hann hefur oft gert þegar hann er ósáttur við frammistöðu þeirra. Sport 14.11.2005 14:56
Hefur augastað á Arjen Robben Martin Jol hefur áhuga á að kaupa hollenska vængmanninn Arjen Robben til Tottenham ef hann verður á lausu og í viðtali við hollenska sparksíðu sagði stjórinn að Tottenham ætti nóg af peningum og myndi gera tilboð í Robben ef sú staða kæmi upp. Robben er sagður hafa verið upp á kant við stjóra sinn Jose Mourinho undanfarið. Sport 14.11.2005 13:55
Góð helgi hjá Jóni og Loga Jón Arnór Stefánsson og Logi Gunnarsson gerðu ágæta hluti með liðum sínum á Ítalíu og í Þýskalandi um helgina. Jón Arnór skoraði 13 stig fyrir Napoli þegar það lagði Varese með ellefu stiga mun 94-83, en 18 stig Loga Gunnarssonar dugðu ekki fyrir Bayeruth þegar liðið tapaði fyrir Crailsheim með fjórum stigum, 74-70 í þýsku 2. deildinni. Sport 14.11.2005 14:37
Útilokar ekki að snúa aftur til Englands Miðjumaðurinn sterki hjá Juventus, Patrick Vieira, segist bera mikla virðingu fyrir Roy Keane hjá Manchester United og útilokar ekki að taka stöðu hans í liðinu í framtíðinni þó hann sé ánægður á toppnum á Ítalíu. Sport 14.11.2005 15:07
Íhugar að fara frá Liverpool Pólski markvörðurinn Jerzy Dudek segir að hann vilji fara frá Liverpool ef hann nær ekki að vinna sér sæti í byrjunarliðinu áður en félagaskiptaglugginn á Englandi opnast í janúar. Sport 14.11.2005 13:48
Gaf 1,2 milljónir dollara í Katrínarsjóðinn Framherjinn Kevin Garnett hjá Minnesota Timberwolves var heldur betur rausnarlegur fyrir helgina, þegar hann gaf sérstökum styrktarsjóði fórnarlamba fellibylsins Katrínar 1,2 milljónir dollara úr eigin vasa, eða um 70 milljónir íslenskra króna. Sport 14.11.2005 14:27
Viðurkennir áhuga á að fjárfesta í Liverpool Bandaríski milljarðamæringurinn Robert Kraft hefur viðurkennt áhuga sinn á að fjárfesta í Liverpool eftir að hafa átt fund með Rick Parry, yfirmanni enska félagsins. Kraft þessi og fjölskylda hans eru eigandi New England Patriots í ameríska fótboltanum. Sport 14.11.2005 13:34
Ledley King þarf í uppskurð Varnarmaðurinn Ledley King hjá Tottenham þarf að fara í uppskurð á hné og mun í kjölfarið verða frá keppni í að minnsta kosti sex vikur, þetta kom í ljós eftir að hann frestaði að fara í aðgerð en ákvað að leika með enska landsliðinu gegn Argentínu um helgina. Sport 14.11.2005 13:23
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent