Mjólkurbikar karla

Mjólkurbikar karla

Umfjöllun um Mjólkurbikar karla í fótbolta.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Það er ekki af­sökun heldur stað­reynd“

4-2 Tap Valsmanna fyrir KR í Mjólkurbikar karla í dag er afrakstur meiðslahrjáðs vetrar samkvæmt Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara Vals. Hann er hundfúll að vera úr leik en segir margt jákvætt í leik sinna manna sem séu skemmra á veg komnir en aðrir.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Flautað af í Ár­bæ vegna snjó­komu

Leikur Fylkis og KFA í Mjólkurbikar karla í fótbolta hefur verið blásinn af vegna ofankomu. Liðin höfðu barist við veðurguðina í rúmar tuttugu mínútur þegar leikurinn var stöðvaður og menn sendir til búningsherbergja.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Vest­firðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“

Bikarmeisturum Vestra verður vel fagnað á Silfurtorgi á Ísafirði í kvöld þar sem til stendur að heiðra liðið sem tryggði sér titilinn með sigri á Valsmönnum á Laugardalsvelli á föstudaginn. Sigurinn er sögulegur fyrir félagið en Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri á Ísafirði, hvetur alla sem geta til að fjölmenna á Silfutorg á eftir.

Innlent