
Sjálfstæðisflokkurinn

„Þetta er auðvitað alveg óásættanleg mæling fyrir Sjálfstæðisflokkinn“
Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir mælinguna óásættanlega fyrir flokkinn. Prófessor í stjórnmálafræði segir fylgisbreytingu Samfylkingarinnar vera að festa sig í sessi.

Sammála um alvarleika en ósammála um ábyrgð
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eru sammála að um alvarlegt mál sé að ræða. Þau eru þó ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að ábyrgð fjármálaráðherra í því.

Samfylkingin langstærsti flokkurinn og ríkisstjórnin fellur enn
Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningum og er nú 34,2 prósent. Könnunin fór fram 1. til 22. júní.

Katrín Jakobsdóttir stundi ómerkilega pólitík
Jóhann Páll Jóhannsson segir það ómerkilega pólitík hjá forsætisráðherra að segja að allir sem komu að söluferlinu á Íslandsbanka þurfi að standa skil á gjörðum sínum nema fjármálaráðherra. Trúi hún því að undirbúningur sölunnar standist skoðun ætti hún að falla frá andstöðu sinni við skipun rannsóknarnefndar.

Hannes segir sig úr bæjarstjórn Kópavogs
Hannes Steindórsson, fasteignasali, ætlar að segja af sér sem bæjarfulltrúi í Kópavogsbæ á bæjarstjórnarfundi á morgun til að einbeita sér að fasteignasölu og barnauppeldi. Fyrr í mánuðinum seldi hann allan hlut sinn í fasteignasölunni Lind.

Sumarið kemur og fer en það er alltaf von
Við verðum víst að sætta okkur við þann veruleika að geta ekki stjórnað veðurfarinu en við getum þó haft jákvæð áhrif á aðra þætti í samfélaginu sem og okkar eigin viðhorf. Það má kannski segja að það sé lúxusvandamál að pirra sig yfir veðurfarinu í stað þess að njóta bara útiveru, bæjarhátíða eða annarra skemmtilegra verkefna, sem eru nokkur hérna í Sveitarfélaginu Árborg.

„Það er enn fullt af spurningum ósvarað“
Kristrún Frostadóttir segir ljóst að ekki var vel staðið að sölu Íslandsbanka. Með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins sé komin önnur rannsóknin sem sýni að pottur var verulega brotinn í ferlinu. Ríkisstjórnin þurfi að taka forystu í málinu og setja á fót rannsóknarnefnd.

Óttast að síðasti hvalurinn hafi verið veiddur
Nefndarmenn atvinnuveganefndar eru ekki allir sáttir við ákvörðun ráðherra að fresta hvalveiðum. Nefndin fundaði í dag með ráðherra.

Meirihlutinn gerir starfsmenn að blórabögglum
Fyrr í vikunni komst upp að starfsmenn Reykjavíkurborgar hefðu á íbúaráðsfundi rætt sín á milli hvernig skyldi nýta sér vanþekkingu fundarmanna á reglunum til að „kæfa“ mál sem eru óþægileg fyrir meirihluta Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Framsóknar.

Minnast Árna Johnsen með hlýju: Bóngóður vinur sem sat aldrei auðum höndum
Árni Johnsen, þingmaður, tónlistarmaður og blaðamaður, var jarðsunginn í dag frá Landakirkju í Vestmannaeyjum. Samferðamenn hans í pólitík og öðrum störfum minnast hans með hlýju.

Hreinn aðstoðarmaður á ný í dómsmálaráðuneytinu
Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hreinn aðstoðar í dómsmálaráðuneytinu en hann aðstoðaði einnig síðustu tvo ráðherra í ráðuneytinu.

„Mér fannst þetta góður fundur“
Svandís Svavarsdóttir hefur ekki áhyggjur af ríkisstjórnarsamstarfinu þrátt fyrir hörð orð úr átt Framsóknar og Sjálfstæðisflokks á hitafundi um hvalveiðar í kvöld. Ákvörðun hennar um frestun hvalveiða hafi verið fagleg og vel undirbyggð þó tímasetningin hafi verið óheppileg.

Stjórnin gæti haltrað áfram í ástlausu hjónabandi
Stjórnarandstaðan greinir á um hvort að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um bann við hvalveiðum hafi verið rétt en tímasetningin kom flestum á óvart. Það blasi við að sambúðin á ástlausu stjórnarheimilinu sé orðin krefjandi.

Segir ákvörðun ráðherrans til marks um ósanngjarna og óeðlilega stjórnsýslu
Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir ákvörðun Matvælaráðherra um tímabundið bann við hvalveiðum vera til marks um ósanngjarna og óeðlilega stjórnsýslu. Formaður atvinnuveganefndar segir að nefndin muni koma saman til fundar sem allra fyrst til að fá skýringar frá ráðherranum.

Ráðherrar til bjargar Reykvíkingum?
Á síðustu dögum þingsins samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins um breytingu á lögum um útlendinga. Breytingin sneri m.a. að rýmkuðum reglum um dvalarleyfi á grundvelli samnings um vistráðningu (au pair). Nú verður því heimilt að endurnýja leyfin í eitt ár, að hámarki í tvö ár, en áður var ekki heimilt að endurnýja slík dvalarleyfi.

Gremja hafi kraumað undir niðri í ríkisstjórninni
Matvælaráðherra telur ákvörðun hennar um að stöðva hvalveiðar tímabundið ekki stofna stjórnarsamstarfinu í hættu. Formaður Starfsgreinasambandsins segir ákvörðun ráðherra til skammar og reiðarslag fyrir starfsfólk Hvals Hf.

Svandís segir stjórnarsamstarfið ekki í hættu
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra telur umdeilda ákvörðun sína um að stöðva hvalveiðar sem áttu að hefjast á morgun ekki hafa nein áhrif á stjórnarsamstarfið.

Teitur Björn vill kalla atvinnuveganefnd saman
Verulegur urgur er nú í herbúðum Sjálfstæðismanna vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að banna hvalveiðar.

Þingmanni Sjálfstæðisflokks brugðið við ákvörðun Svandísar
Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis segir það fara eftir því hvernig matvælaráðherra vinni úr málinu, hvort tímabundið bann hennar á hvalveiðum hafi áhrif á stjórnarsamstarfið.

Stjórnarslit líklegri í dag en í gær
Prófessor í stjórnmálafræði segir ekki hægt að líta fram hjá möguleikanum á því að ákvörðun matvælaráðherra sé svar við framgöngu ráðherra Sjálfstæðisflokksins í gær. Alvarlegur ágreiningur sé greinilega kominn upp á stjórnarheimilinu.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf leiðsögn í útlendingamálum
Þá er hann farinn. Eini ráðherrann sem virtist að minnsta kosti hafa skilning á þeim gríðarlega vanda sem við er að eiga í útlendingamálum.

„Ráðherrann mun ég sitja uppi með ævilangt“
Brynjar Níelsson, sem var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar fyrrverandi dómsmálaráðherra, segist kveðja dómsmálaráðuneytið með söknuði.

„Jón Gunnarsson er karl og ég er kona“
Guðrún Hafsteinsdóttir hefur tekið við embætti dómsmálaráðherra. Að hennar mati þarf að bregðast við auknu streymi fólks hingað til lands með einhverjum hætti. Hún segir þó að það sé munur á sér og forvera sínum.

„Ég er í svo stórum skóm, númer 46“
Formleg lyklaskipti fóru fram í dómsmálaráðuneytinu í dag. Jón Gunnarsson færði Guðrúnu Hafsteinsdóttur, nýbökuðum dómsmálaráðherra, lyklakippu í formi Íslands og í fánalitunum, aðgangskort og stærðarinnar blómvönd.

Jón kvaddur á Bessastöðum: „Hann er litríkur“
Jón Gunnarsson, fráfarandi dómsmálaráðherra, gekk út af sínum síðasta ríkisráðsfundi, allavega í bili, fyrir skömmu. Félagar hans í ríkisstjórn sögðu flestir að söknuður verði af honum.

„Jón hefur verið að fylgja stefnu flokksins og ég mun fylgja stefnu flokksins“
Guðrún Hafsteinsdóttir, nýsleginn dómsmálaráðherra, segir fyrirrennara sinn Jón Gunnarsson hafa verið gríðarlega öflugan í starfi. Hann hafi ýtt mikilvægum málum úr vör og hún muni sigla þeim örugglega í höfn og nefnir sérstaklega útlendingamálin, sem séu þau mikilvægustu í íslensku samfélagi.

Þrýst verði á Guðrúnu að fylgja stefnu Jóns
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að staðan í útlendingamálum sé grafalvarleg og þrýstingur verði á Guðrúnu Hafsteinsdóttur, sem tekur við embætti dómsmálaráðherra í dag, að fylgja eftir stefnu Jóns Gunnarssonar í málaflokknum.

Bein útsending: Ríkisráðsfundur á Bessastöðum
Ríkisráð, sem forseti Íslands og ráðherrar í ríkisstjórn skipa, mun funda á Bessastöðum klukkan tíu í dag. Það er eftir að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í gær að Guðrún Hafsteinsdóttir myndir taka við af Jóni Gunnarssyni sem dómsmálaráðherra.

„Nú er ég bara dottinn í það“
„Ég er nú bara dottinn í það hérna í Borgarnesi, þó ekki á rafskútu,“ segir Brynjar Níelsson léttur í bragði þegar blaðamaður sló á þráðinn til að leita viðbragða við vendingum í ráðherraliði Sjálfstæðisflokks. Lyklaskipti verða í dómsmálaráðuneyti á morgun þegar Guðrún Hafsteinsdóttir tekur við sem dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni, sem valdi sér Brynjar sem aðstoðarmann fyrir um átján mánuðum síðan.

Guðrún inn sem ráðherra, Jón út
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkti að Guðrún Hafsteinsdóttir tæki við af Jóni Gunnarssyni sem dómsmálaráðherra á fundi sem fór fram í hádeginu. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, segist ekki óttast sundrung vegna ákvörðunarinnar.