

Ég verð að viðurkenna að mér datt aldrei í hug að það sem fór á milli mín og forstjóra 365 væri samningur. Viðbrögðin koma mér algjörlega í opna skjöldu. Mikið er þetta leiðinlegt...
Hér er fjallað um kvæði eftir Matthías – þó ekki þann eina sanna – mávapláguna á Reykjavíkurtjörn og rónana sem eru alltaf að sníkja pening af pabba hans Kára...
Ef marka má upphafið ætlar Nicolas Sarkozy að reynast margbrotnari forseti en margir töldu. Það hefur komið mörgum á óvart að hann skipaði Bernard Kouchner sem utanríkisráðherra. Kouchner er stofnandi samtakanna Læknar án landamæra, nýtur mikillar virðingar, en er til vinstri í stjórnmálum...
Nýr þingmaður VG og náinn vinur Steingríms J. segir að VG og Framsókn séu sammála um að leggja til við forsetann að Ingibjörg Sólrún fái umboð til stjórnarmyndunar með myndun þriggja flokka R-listastjórnar fyrir augum....
Það er sagt að Geir og Ingibjörgu Sólrúnu ætti að reynast hægðarleikur að mynda ríkisstjórn. Það er þó ekki alveg víst. Maður gengur út frá því að þetta verði stjórn sem byggir á jöfnum skiptum, flokkarnir fái jafn mörg ráðuneyti og að stjórnarsáttmálinn verði nokkuð jöfn málamiðlun. En hvað fær Samfylkingin fyrir sinn snúð?
Þegar kjósendur tala, þá er betra að svara með auðmýkt en hroka. Annars er eins og menn séu að segja að þeir séu bjánar. En líklega var þetta fólk úr öðrum flokkum sem kaus Sjálfstæðisflokkinn til þess eins að geta strikað út Björn Bjarnason...
Framsókn hikar og Sjálfstæðisflokkurinn hikar líka. Innan beggja flokkanna er andstaða gegn því að treina stjórnarsamstarfið áfram. Hversu mikil alvara er í viðræðum Geirs við framsóknarmenn? Kann að vera að hann viti að þetta sé vonlaust...
Þingmenn Framsóknar eru ekki nema sjö. Það gæti verið praktískt erfitt fyrir flokkinn að starfa í ríkisstjórn. En á því er lausn. Ráðherrar flokksins munu ekki setjast á þing, heldur verður kallað á varamenn. Þannig komast líka fleiri framsóknarmenn að...
Þetta er vandasamt spil. Flokksleiðtogar verða að sýna áhuga, en samt ekki of mikinn. Þá virkar það eins og þeir séu á útsölu. En þeir verða líka að passa sig á að missa ekki af tækifærinu. Ljóst er að bæði Vinstri grænir og Samfylkingin þrá að komast í stjórn...
Kosningarnar verða gerðar upp í Silfri Egils í dag. Meðal gesta í þættinum eru Þorgerður Katrín, Össur, Ögmundur, Margrét Sverris, Hannes Hólmsteinn, Gunnar Smári, Hallgrímur Helgason, Björn Ingi og Jón Magnússon...
Hér er smá stöðutékk kvöldið fyrir kosningar en síðar í greininni eru vangaveltur um stjórnarmyndun að þeim loknum. Niðurstaðan er að líklegustu kostirnir séu Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eða Samfylking, VG og Framsókn...
Starfsfélagar mínir í Íslandi í dag tóku saman eftirfarandi lista yfir loforð ráðherra síðasta misserið og nú er spurt hvort þetta séu kosningavíxlar? Þið verðið að dæma um það sjálf. Vinstri græn vilja banna stór loforð ráðherra síðustu mánuði fyrir kosningar – ætli sé ástæða til þess?
Eins og stendur aukast líkurnar á að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi stjórn dag frá degi. Maður heyrir að sjálfstæðismenn eru unnvörpum að komast á þá skoðun að það sé raunhæfasti kosturinn. Þeir voru dálítið heillaðir af Vinstri grænum en svo hugsuðu þeir sig aðeins betur um...
Annars vegar er bílastæðisminn með sinn groddaskap og hins vegar ofstækisfull verndunarsjónarmið. Við þurfum aðeins meira loft í þessa umræðu...
Hér er fjallað um úttekt Guðmundar Ólafssonar á verkum ríkisstjórnarinnar frá því í Silfri Egils, umræðum um fáránlegt kosningakerfi og hvernig við getum ráðið bót á því, auglýsingar frá flokkunum og hringingar í kjósendur...
Ef úrslit kosninganna verða þau að ríkisstjórnin heldur velli og Samfylkingin og VG þurfa að eyða enn einu kjörtímabili í stjórnarandstöðu, munu þessir flokkar þurfa að endurskoða hernaðarlist sína gjörsamlega. Annars blasir við að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar verði eilífðarvél.
Andstæðingar Vinstri grænna eru að draga upp alls konar skemmtilegheit úr fortíð íslenskrar vinstri hreyfingar. Sumt af því kemur Vinstri grænum kannski lítið við eins og andstaða við litasjónvarp, kreditkort og tölvupóst...
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra rifjar upp gamla takta úr hljómsveitinni Upplyftingu í baráttulagi Framsóknar sem finna má á vef flokksins. Magnús hefur engu gleymt þegar hann syngur lagið Árangur áfram, ekkert stopp með barnakór...
Væntingarnar voru talsverðar og vonbrigðin því mikil. Liðsmenn Íslandshreyfingarinnar virðast aðallega fá útrás með því að ráðast á fjölmiðlamenn. Margrét Sverrisdóttir skrifar grein þar sem hún úthúðar fjölmiðlamönnum, finnur umfjöllun þeirra um kosningarnar allt til foráttu...
Grímsey er stórkostlegur staður og móttökurnar þar í alla staði höfðinglegar. Hins vegar skildist mér á vinafólki mínu þar að íbúarnir væru ekkert sérlega pólitískir – þeir hefðu til dæmis miklu meiri áhuga á fiski en pólitík...
Trúa menn því í alvörunni að Ólafur Ragnar Grímsson fari að beita klækjabrögðum til að koma vinstri stjórn til valda í landinu? Eða er þetta barasta paranoja í Styrmi Gunnarssyni?
Menn eru að velta fyrir sér hvers vegna kosningabaráttan sé jafn dauf og raun ber vitni. Við vorum að búast við mest spennandi kosningum í mörg ár. Nú er eins og þetta sé allt að koðna niður. Aðalástæðan er líklega sú að það er ekki verið að takast á um nein málefni sem fólki finnst skipta verulegu máli...
Svo er það auglýsing Framsóknarflokksins þar sem Samúel Örn og Siv eru að kyssast. Hún er hræðileg. Eða eins og einhver sagði: "Áin þrjú hafa hlotið nýja merkingu….Á, Ái, Ááááíii!!"
Ein ríkasta þjóð hlýtur að geta leyft sér eitthvað metnaðarfyllra en að byggja þarna fornminjar sem enginn hafði hvort sem er sýnt áhuga í marga áratugi. Götumyndin þarna er ekkert til að varðveita, hún var tætingsleg og ljót...
Ég kom í fyrsta sinni á ævinni inn í hús Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Missti svo út úr mér í kosningaútsendingu þar að þetta væri spillingarbæli. Ég stend fyllilega við það. Mér var gjörsamlega ofboðið að koma inn í þessa byggingu...
Frakkar kunna enn að borða góðan mat. Þeir taka sér löng og góð sumarfrí. Þeir hafa það sem kallast savoir vivre. Ég sé satt að segja ekki að þeir geti lært mikið af enskumælandi þjóðum....
Sumt í fagurfræði nasismans – og líka kommúnismans – virkar yfirþyrmandi og glæsilegt, ekki síst nú á tíma þegar list virðist felast í því að reyna enn að hneyksla borgarana – sem eru löngu hættir að hneykslast...
Helmingaskipti eins og hafa verið tíðkuð í ríkisstjórn síðustu tólf ár virka hjákátleg ef annar flokkurinn er fimm sinnum stærri en hinn. Hugsanlega ættu að vera lög um þetta. Skipti á jöfnu myndu heldur ekki ganga nema Framsókn kalli til fólk sem er utan þings til að manna ráðherrastóla...
Mestöll starfsemin í þessum húsum var hin óyndislegasta og ekki eftirsjá að neinu í því sambandi. Húsin höfðu verið vanvirt með alls konar breytingum. Þau voru til skammar eins og nánast allt umhverfi Lækjartorgs...
Svo var klykkt út með að eftir tuttugu ár myndi Kata verða eins og mamma sín. Því var jafnvel haldið fram að prinsinn hefði séð þá þróun fyrir og þess vegna sagt stúlkunni upp...