Austurríki

Kjallarabörnin í Austurríki vel upp alin
Kjallarabörn Fritzl fjölskyldunnar í Austurríki eru sögð ótrúlega vel upp alin.

Reyndi að selja myndir af Fritzl-fjölskyldunni í meðferð
Starfsmaður á sjúkrahúsi því í Amstetten í Austurríki sem fórnarlömb og fjölskylda Josef Fritzl dvelja á var staðinn að því að reyna að selja evrópskum fjölmiðlum myndir af þessu fólki.

Fritzl líkt við Frankenstein
Austurrískir geðlæknar hafa nú hafist handa við að reyna að greina hvað knúði skrímslið frá Amstetten, Josef Fritzl, áfram í brjálsemi sinni. Geðlæknarnir ræða nú við mannin, sem lokaði dóttur sína ofan í kjallara í 24 ár og gat með henni sjö börn, og reyna að skera úr um hvort hann sé sakhæfur eða hvort ekki taki því að rétta yfir honum sökum brjálseminnar en lögfræðingur hans heldur því fram.

Elisabeth Fritzl: „Ég vil aldrei sjá hann aftur"
Hin 42 ára gamla Elisabeth Frizl var aðskilin frá fjölskyldu sinni þegar hún var 18 ára gömul.

Fritzl vann í Danmörku
Austurríkismaðurinn Josef Fritzl, sem læsti dóttur sína inni og misnotaði í 24 ár, vann hjá raftækjafyrirtæki í Danmörku á sjöunda áratug síðustu aldar. Frá þessu greinir Ekstra Bladet í dag.

Ég er ekki maður sem misnotar lítil börn - Fritzl
Austurríski faðirinn Josef Fritzl spurði blaðamann sem hann talaði við hvort það stæðu aðeins neikvæðir hlutir um hann í fjölmiðlum.

Skrímslið frá Amstetten: „Ég er ekki skrímsli“
Josef Fritzl sem lokaði Elisabeth dóttur sína í dýflissu í 24 ár og eignaðist með henni sjö börn segist ekki vera skrímsli. Fritzl hefur verið í gæsluvarðhaldi allt frá því Elisabeth dóttir hans fannst í kjallaranum ásamt þremur börnum sem aldrei höfðu litið dagsljósið.

Fritzl neyddi konu sína á makaskiptaklúbb
Sextíu og fimm ára gamall arkitekt hefur sagt dagblaðinu Österreich frá því að Josef Fritzl hafi neytt konu sína Rosemarie til þess að koma með sér á makaskiptaklúbb

Fritzl er skuldum vafinn eftir misheppnuð fasteignaviðskipti
Josef Fritzl, maðurinn sem lokaði dóttur sína í dýflissu í 24 ár og gat með henni sjö börn er skuldum vafinn. Austurrískir lögreglumenn segja að Fritzl hafi skuldað um tvö hundruð milljónir króna þegar hann var handtekinn á dögunum.

Byrjaði að skipuleggja dýflissuna þegar Elísabet var 12 ára
Josef Fritzl, sem hélt dóttur sinni fanginni í 24 ár, byrjaði að leggja grunn að dýflissu sinni þegar hún var aðeins tólf ára, það er sex árum áður en hann læsti hana inni.

Lét dótturina aðstoða við að reisa dýflissuna
Josef Fritzl, skrímslið frá Amstetten, fékk hjálp frá Elisabeth dóttur sinni við að innrétta dýflissuna þar sem hún mátti hýrast næstu 24 árin. Breska dagblaðið The Sun greinir frá þessu í dag og hefur eftir rannsóknarmönnum í málinu. Elisabeth var 18 ára gömul þegar faðir hennar fékk hana til að aðstoða sig við að innrétta húsnæðið í kjallara heimilis þeirra.

Nauðgaði dótturinni fyrir framan börn þeirra
Það var árið 1984 sem Josef Fritzl lokkaði hina átján ára gömlu dóttur sína Elísabetu með sér niður í kjallara.

Telur Fritzl eiga heima á geðsjúkrahúsi en ekki í fangelsi
Lögmaður Josefs Fritzl, sem sakaður er um að hafa haldið dóttur sinni fanginni í kjallara í 24 ár og nauðgað henni ítrekað, telur að skjólstæðingur sinn eigi fremur heima að geðsjúkrahúsi en í fangelsi.

Kerstin Fritzl ekki hugað líf
Læknar í Austurríki telja ólíklegt að Kerstin Fritzl lifi af veikindi sín. Hún hefur verið í dauðadái á sjúkrahúsi síðan hún var leyst úr kjallaraprísund föður síns.

Eiginkona Fritzl yfirheyrð í dag
Austurríska lögreglan ætlar að yfirheyra eiginkonu Josef Fritzl til kanna hvort satt sé að hún hafi í raun og veru ekkert vitað um þann hrylling sem átti sér stað í kjallara þeirra hjóna.

Rannsaka hvort Fritzl hafi komið fyrir banvænu gasi í kjallaranum
Lögregla í Amstetten í Austurríki rannsakar nú hvort fjölskyldufangavörðurinn og sifjaspillirinn Josef Fritzl hafi komið búnaði fyrir í kjallaradýflissu sinni sem losa myndi banvænt gas út í andrúmsloftið

Prófraun á réttarríkið
Verjandi Josef Fritzl telur að mál hans muni reyna á þanþol réttarríkisins. Margir vilji taka Fritzl af lífi fyrir glæpi sína án dóms og laga, en hann fangelsaði dóttur sína, nauðgaði henni ítrekað og gat með henni 7 börn.

Er Fritzl líka morðingi?
Austurríska lögreglan er sögð vera að rannsaka hvort Josef Fritzl tengist morði á ungri stúlku, sem aldrei hefur verið upplýst.

Ekki mjög orðheppinn kanslari
Kanslari Austurríkis sagði í dag að ríkisstjórnin ætlaði að hrinda af stað ímyndarherferð til þess að endurheimta heiður landsins í samfélagi þjóðanna.

Austurríski pabbinn skemmti sér á Pattaya -myndband
Á meðan Elísabet dóttir hans hírðist með börnum sínum í dýflissunni í Austurríki lifði Josef Fritzl í vellystingum pragtuglega á Pattaya ströndinni í Taílandi.

Skyggnst í sjúkan hug Fritzl
Lið lögreglu, lækna og fólks sem þekkir hinn austurríska Josef Fritzl vinnur nú að því að skilgreina hvernig honum tókst að lifa algjörlega tvöföldu lífi í austurríska smábænum Amstetten

Hélt dótturinni fanginni til að forða henni frá fíkniefnum
Austurríkismaðurinn Josef Fritzl hélt dóttur sinni fanginni í kjallara í 24 ár til þess að koma í veg fyrir að hún ánetjaðist fíkniefnum. Þannig hljómuðu skýringar Fritzl þegar hann var leiddur fyrir dómara í Austurríki í dag.

Faðerni staðfest í Austurríki
DNA próf hafa sýnt framá að Josef Fritzl er faðir allra barnanna sem Elísabet dóttir hans ól í 24 ára fangavist sinni.

Hvað vissi mamman í Austurríki?
Rosemarie Fritzl segir að hún hafi ekki haft hugmynd um að eiginmaður hennar hélt dóttur þeirra fanginni niðri í kjallara húss þeirra í 24 ár.

Af hverju grunaði engan neitt í Austurríki?
Josef Fritzl átti sjálfur fjölbýlishúsið í bænum Amstetten, sem telur 23 þúsund íbúa. Hann bjó ásamt fjölskyldu sinni í einni íbúðinni en leigði ættingjum sínum hinar.

Fritzl var dæmdur kynferðisbrotamaður
Josef Fritzl, sem handtekinn var í fyrradag fyrir að halda dóttur sinni fanginni í kjallara í 24 ár og eignast með henni sjö börn, á að baki sakaferil.

Bjó í 12 ár fyrir ofan kjallarafangelsið
Alfred Dubanovsky, 42 ára starfsmaður á bensínstöð, bjó í tólf ár aðeins örfáa metra frá Elísabetu Fritz og þremur börnum hennar í Amstetten í Austurríki.

Austurríkismenn slegnir óhug
Austurríkismenn eru slegnir óhug eftir að 73 ára fjölskyldufaðir játaði í morgun að hafa fangelsað dóttur sína í kjallaradýflissu í nær aldarfjórðung. Þar nauðgaði hann henni ítrekað. Stúlkan ól föður sínum sjö börn.

Hryllingshúsið í Austurríki
Ýmsar hræðilegar staðreyndir hafa þegar komið í ljós við rannsókn á máli austurríska föðurins sem lokaði dóttur sína niðri í kjallara í 24 ár.

Játar að hafa sjö sinnum barnað dóttur sína
Sjötíu og þriggja ára Austurríkismaður hefur játað að hafa haldið dóttur sinni fanginni í gluggalausum kjallara í 24 ár og getið með henni sjö börn.