Argentína

Argentína

Höfuðborg: Buenos Aires. Mannfjöldi: 46,2 milljónir (2025). Flatarmál: 2.780.400 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Dramatískasta viður­eignin í alþjóðafótboltanum“

„Þetta er sennilega dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum, sem er merkilegt í ljósi þess að þessar þjóðir hafa sjaldan mæst og hafa ekki leikið landsleik núna í rúm tuttugu ár,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og fótboltaáhugamaður, um undanúrslitaviðureign Englands og Argentínu sem fram fer í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Hafna því að hanta­veiran hafi borist frá hjara veraldar

Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia.

Erlent
Fréttamynd

Messi er ekki enn búinn að á­kveða sig

Argentínska goðsögnin Lionel Messi hefur enn ekki tekið ákvörðun um það hvort hann muni spila á HM í fótbolta í sumar þrátt fyrir að það sé aðeins 81 dagur þar til Argentína byrjar titilvörn sína.

Fótbolti
Fréttamynd

Hætta ó­vænt við tónleikaferðalög sín

Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu.

Tónlist
Fréttamynd

Draumur að skipu­leggja kvenna­verk­fall í Þýska­landi

Konur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss skipuleggja nú kvennaverkfall að fyrirmynd þess íslenska. Margrét Rún Guðmundsdóttir, kosningastýra Kvennalistans þáverandi og kvikmyndagerðarkona, er heiðurforseti skipulagsteymisins í Þýsklandi. Adrienne Goehler, ein skipuleggjenda, segir markmið skipuleggjenda að alheimsverkfall fari fram þann 9. mars. Hún segir þegar skipulagshópa víða um heim og auglýsir eftir einum á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdu for­setann og alla leik­menn í bann

Forráðamönnum argentínska knattspyrnusambandsins var lítið skemmt þegar leikmenn Estudiantes de la Plata þar í landi neituðu að standa heiðursvörð um nýkrýnda meistara Rosario Central. Rosario fékk afhentan nýjan meistaratitil með skömmum fyrirvara.

Fótbolti
Fréttamynd

Milei vann stór­sigur í Argentínu

Javíer Milei forseti Argentínu leiddi flokk sinn til stórsigurs í þingkosningum sem fram fóru í landinu um helgina. Kosið er um hluta þingsæta á miðju kjörtímabili fosetans og er sigurinn sagður skýrt merki um að landsmenn séu margir ánægðir með áherslur hans í efnahagsmálum sem hafa endurspeglast í miklum niðurskurði og frjálshyggju.

Erlent
Fréttamynd

Allt undir hjá for­setanum hárprúða

Argentínumenn ganga í dag til þingkosninga sem taldar eru prófsteinn fyrir Javier Milei, hinn hárprúða forseta landsins. Róttæk frjálshyggja hans er undir í kosningunum enda hægara sagt en gert að koma stefnumálum sínum í gegn án fleiri sæta í þinginu.

Erlent