Írak

Sprengjum rigndi yfir Falluja
Bandarískir og íraskir hermenn brutu sér leið inn í Falluja í gær þegar þeir hófu stórsókn gegn vígamönnum í borginni. Harðir bardagar geisuðu fram eftir degi. Tugir vígamanna og nokkur fjöldi íbúa lést </font /></b />

Leyniskyttur skutu verktaka
Leyniskyttur skutu til bana fjóra írakska verktaka sem voru á leið frá bandarískri herstöð í morgun. Átök í Írak hafa farið harðnandi undanfarið en bandarískir hermenn hafa ráðist til atlögu á borgina Fallujah. Uppreisnarmenn hafa haft aðsetur í borginni.

Sprengjur dynja á Fallujah
Harðir bardagar geisa í Fallujah í Írak eftir að forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar heimilaði bandarískum hersveitum að gera árás á uppreisnarmenn úr röðum súnníta. Sprengjuárásir dynja á borginni og hafa fjölmargir uppreisnarmenn fallið.

21 lögreglumaður drepinn
Að minnsta kosti tuttugu og einn lögreglumaður var skotinn til bana í árás írakskra andspyrnumanna á lögreglustöð í Haditha sem er 200 kílómetra vestur af Bagdad. Lögregla segir að andspyrnumenn hafi stormað inn, afvopnað lögreglumennina, raðað þeim upp og myrt.

Írökskum ráðherra sýnt banatilræði
Fjármálaráðherra Íraks var sýnt banatilræði þegar öflug bílsprengja sprakk við hús hans í miðborg Bagdad í dag. Ráðherrann, Adel Abdul , sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna fyrir stundu að hann hafi ekki verið heima þegar sprengjan sprakk og því væri hann heill á húfi. Einn lífvarða Mahdis og einn lögreglumaður létust hins vegar í sprengingunni.

Vonast eftir friðsamlegri lausn
Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, segist vona að friðsamleg lausn finnist áður en til þess komi að hernámsliðið í landinu ráðist inn í Falluja eins og hefur verið í bígerð. Borgin er á valdi skæruliða og hafa Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra hug á að breyta þeirri skipan mála.

Neyðarástandi lýst yfir
Bráðabirgðastjórnin í Írak lýsti í gær yfir 60 daga neyðarástandi í landinu. Í gærkvöld var ekki ljóst hvað þessi yfirlýsing þýddi í raun, en talið er líklegt að sett verði útgöngubann og enn meiri áhersla lögð á öryggisgæslu.

Deilt um kosningarnar í Írak
Írakar munu eyða 90 milljónum dollara, sem samsvarar tæpum sjö milljörðum íslenskra króna, til að gera írökskum ríkiborgurum sem búa utan heimalandsins kleift að taka þátt í kosningunum sem fram fara í landinu á næsta ári. Sameinuðu þjóðirnar eru á móti þessari ráðagerð og segja hana of dýra, erfiða í framkvæmd og opna leiðir fyrir hugsanleg svik.

30 látnir og tugir særðir
Að minnsta kosti þrjátíu hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Andspyrnumenn réðust auk þess inn á þrjár lögreglustöðvar þar sem kom til átaka og margir særðust.

37 hafa farist í Samarra
Að minnsta kosti þrjátíu sjö hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Bandarískir og írakskir hermenn réðust inn í Samarra í síðasta mánuði til að ná borginni úr höndum uppreisnarmanna sem berjast hatrammlega á móti.

Þrír breskir hermenn létust í Írak
Þrír breskir hermenn létu lífið þegar ráðist var á þá. Hermennirnir voru meðlimir hersveitar sem var nýlega flutt frá bresku herstjórnarsvæðunum við Basra inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers þar sem hefur verið mun meira um árásir en á breska svæðinu.

9 flugvallarstarfsmenn drepnir
Að minnsta kosti níu létust þegar sprengja sprakk í rútu með starfsmönnum alþjóðaflugvallarins í Bagdad í morgun. Ekki er vitað um fjölda særðra. Einn starfsmaður olíumálaráðuneytis Íraks var jafnframt drepinn þegar byssumenn skutu hann til bana í höfuðborginni.
Aðstoðarborgarstjóri Bagdad myrtur
Aðstoðarborgarstjóri Bagdad var í dag skotinn til bana af byssumönnum í borginni stríðshrjáðu. Fjórir lífverðir borgarstjórans særðust í árásinni. Skæruliðasamtökin „Her Ansar al-Sunna“ hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum.
Falin sprengiefni í Írak
Peter Bouckaert, Starfsmaður mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sagði frá því í gær í samtali við fréttastofu AP að hann hafi tilkynnt bandarískum hermönnum um falinn geymslustað í borginni Baqouba, 55 kílómetrum norðaustur af Baghdad, í maí á síðasta ári.

Voru að hlýða skipunum
Íslensku friðargæsluliðarnir þrír sem slösuðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl sögðust hafa verið að hlýða skipunum er þeir stóðu vörð um teppabúð sem yfirmaður þeirra var að versla í. Þremenningarnir komu heim í gær. </font /></b />
Segjast hafa aflífað 11 Íraka
Íröksku skæruliðasamtökin Her Ansar al-Sunna segjast hafa drepið ellefu menn úr þjóðvarðaliði Íraka sem þeir rændu í síðustu viku. Samtökin halda þessu fram á vefsíðu sinni í dag þar sem einnig eru birtar myndir af hinum meintu fórnarlömbum.

Fleiri Bretar til Bagdad
Bretar byrjuðu í morgun að flytja hluta herliðs síns frá Basra í Suður-Írak í átt til Bagdad, að ósk Bandaríkjamanna en í óþökk fjölmargra breskra þingmanna, þeirra á meðal þingmanna úr Verkamannaflokki Tonys Blairs forsætisráðherra. Mun friðvænlegra hefur verið í Basra en í Bagdad og mannfall þar hverfandi miðað við í höfuðborginni.

Miklu magni sprengiefna stolið
Nokkur hundruð tonn af sprengiefnum eru horfin úr vopnabúri Írakshers. Sprengiefnunum var stolið úr vopnabúri sem Alþjóða kjarnorkumálastofnunin hafði bent Bandaríkjaher sérstaklega á að hafa eftirlit með. Þjófar hafa ítrekað stolið sprengiefnum þar og hafa líkur verið leiddar að því að hluti efnisins hafi verið notaður í árásum vígamanna í Írak.
Búlgarar særðust í sprengingu
Tveir búlgarskir hermenn særðust alvarlega þegar bílsprengja sprakk í Kerbala í suðurhluta Íraks í dag. Þetta er haft eftir talsmanni varnarmálaráðuneytis Búlgaríu.

51 hermaður drepinn
Lík 51 írasks hermanns fundust á afskekktum vegi í austurhluta Íraks í gær, skammt frá írönsku landamærunum

Heilsugæsla sprengd upp
Öflug sprengjuárás var gerð á heilsugæslustöð í Bagdad, höfuðborg Íraks. Að sögn talsmanns Bandaríkjahers særðist enginn í árásinni

Bandarískur embættismaður drepinn
Bandarískur embættismaður var drepinn í sprengjuárás í Írak í morgun. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, greindi frá þessu í tilkynningu fyrir stundu.
Flutti 12 fanga í laumi frá Írak
Bandaríska leyniþjónustan, CIA, hefur flutt tólf fanga í laumi út úr Írak á síðustu sex mánuðum til yfirheyrslna.

49 lík írakskra hermanna finnast
Lík fjörutíu og níu írakskra hermanna hafa fundist skammt norðaustur af Bagdad að sögn yfirvalda í Írak. Þrjátíu og sjö fundust í gær og tólf við viðbótar í morgun. Svo virðist sem skæruliðar hafi setið fyrir hermönnunum þar sem þeir voru á leið heim í leyfi.

13 hið minnnsta látnir
Níu fórust þegar öflug bílsprengja sprakk í morgun við bandarísk-írakska herstöð í vesturhluta Íraks. Ekki færri en fimmtíu særðust í sprengingunni og segja talsmenn sjúkrahússins á staðnum ástæðu til að ætla að tala fallinna muni hækka. Auk þess féllu fjórir í sjálfsmorðsárás á eftirlitsstöð norður af Bagdad fyrir stundu.
Írakskur maður hálshöggvinn
Talsmenn hers Ansars al-Sunna, herskárra samtaka, lýstu því yfir í dag að írakskur samverkamaður Bandaríkjahers hefði verið hálshöggvinn í dag og settu myndir á Netið því til staðfestingar. Manninum var rænt í borginni Mósúl í norðurhluta Íraks.

Grátbiður um hjálp
Margaret Hassan, sem situr í haldi mannræningja í Írak, grátbiður bresk stjórnvöld að kalla hersveitir sínar heim frá Írak á myndbandsupptöku sem arabísk sjónvarpsstöð sýndi í dag.

Breskir hermenn á átaksvæði
Breska ríkisstjórnin ákvað að senda 850 breska hermenn inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers í Írak svo Bandaríkjamenn geti sótt fram gegn íröskum vígamönnum af meiri krafti. Bretarnir taka sér stöðu vestur af Bagdad á svæði þar sem súnnímúslimar hafa gert daglegar árásir á bandaríska hermenn og íraska lögreglumenn.

Átta ára dómur fyrir misþyrmingar
Bandaríski hermaðurinn Ivan Fredericks var í gær dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir að misþyrma föngum í fangelsinu Abu Ghraib í Írak. Fredericks, háttsettasti hermaðurinn til að verða ákærður fyrir fangamisþyrmingar, játaði sök í fyrradag.

Fjölskylda fórst í loftárás
Sex manna fjölskylda lét lífið þegar bandarískir hermenn skutu eldflaugum að miðborg Falluja í fyrrinótt. Fólkið hafði að sögn nágranna sinna nýlega snúið aftur heim eftir að hafa flúið borgina um nokkurra daga skeið vegna hættunnar sem þar ríkir.