Slökkvilið
1 2 3 4 5 6 … 70 ›
Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Fjögurra bíla árekstur varð við N1 í Ártúnsbrekku í morgun. Einn var fluttur á slysadeild. Aðeins er verið að aka eina akrein í vesturátt og því töluverðar tafir. Innlent 3.11.2026 08:33
Hrákinn endaði í andliti og auga Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir miður þegar sjúkraflutningamenn verði fyrir aðkasti eða hótunum á meðan þeir sinna starfi sínu. Greint var frá því í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær að hrækt hefði verið á sjúkraflutningamann aðfaranótt sunnudags. Um tuttugu prósent segja í könnun að þeir hafi orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í vinnunni. Innlent 2.11.2026 20:03
Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Síðasti bíll keyrði af vettvangi um klukkan eitt í nótt eftir að vinnu lauk við að reykræsta og hreinsa upp svæðið við fjölbýlishús í Norðlingaholti þar sem upp kom eldur á ellefta tímanum. Þá var einn fluttur á slysadeild og skoðaður vegna gruns um reykeitrun en sá virtist ekki hafa hlotið lífshættulega áverka að sögn varaslökkviliðsstjóra. Innlent 1.11.2026 08:06
Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Viðbragðsaðilar fluttu einn á slysadeild til skoðunar og björguðu hundi af svölum eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti í Reykjavík í kvöld. Innlent 31.10.2026 23:53
Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ræst út vegna elds sem kom upp í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti í Reykjavík. Innlent 31.10.2026 23:06
Tóku á móti barni í sjúkrabíl Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins tók á móti barni í sjúkrabíl í gær. Að sögn slökkviliðsins var um að ræða myndarlegan dreng, gekk fæðing vel og heilsast móður og barni mjög vel. Innlent 26.10.2026 07:20
Brikk lokað í óákveðinn tíma Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í 109 verkefnum síðastliðinn sólarhring. Í tveimur þeirra voru kallaðir til dælubílar en rest voru boðanir á sjúkrabíla. 26 boðanir voru á forgangi. Eldur kviknaði í húsnæði Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði. Innlent 20.10.2026 06:43
Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld í verslunarhúsnæði við Norðurbakka í Hafnarfirði. Innlent 19.10.2026 18:36
Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Frá því í sumar gátu iPhone-notendur sem eiga iPhone 14 eða nýrri sent SMS á Neyðarlínu séu þeir á svæði sem ekkert símasamband er á og geta þannig nálgast Neyðarlínuna í gegnum gervihnött. Viðskipti innlent 18.10.2026 21:03
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur haft nóg að gera síðasta sólarhring og þurft að sinna fjölda útkalla vegna veðurs. Innlent 18.10.2026 10:27
Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var í nótt kallað út vegna bruna í lyftara í Straumsvík. Í tilkynningu á Facebook kemur fram að slökkvilið hafi farið í sams konar útkall fyrir viku síðan. Innlent 17.10.2026 07:45
Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð segir tímabært að koma upp vindmælingastöð í miðbænum á Siglufirði. Það sé verulegt tjón víða í bænum vegna óveðursins í gær. Hviðumælingar sýndu að sterkasta hviðan sem fór yfir í gær var um 56 metrar á sekúndu. Þök fuku af þremur húsum, palletta á bíl og aðrir lausamunir fuku. Innlent 15.10.2026 08:58
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í kerskála í álverinu í Straumsvík um hádegisbil í gær. Forstjóri Rio Tinto segir starfsmenn hafa brugðist hárrétt við, eldsupptök eru enn ókunn. Innlent 11.10.2026 17:02
Eldur í álverinu í Straumsvík Eldur kom upp í flutningstæki í kerskála í álverinu í Straumsvík. Hann kom upp á tólfta tímanum. Erfitt var að komast að tækinu svo að flytja þurfti það út til að slökkva eldinn. Innlent 10.10.2026 12:13
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Allar tiltækar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út að Hringbraut í kvöld þar sem kviknað hafði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í íbúðarhúsnæði. Innlent 7.10.2026 20:36
Bílvelta á Vesturlandsvegi Bíll valt á Vesturlandsvegi við Bauhaus síðdegis í dag í kjölfar áreksturs. Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki mikil slys á fólki. Nokkrar umferðartafir voru á meðan bílunum var komið af veginum. Búið er að opna fyrir umferð. Innlent 7.10.2026 15:46
Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni og formaður borgarráðs, segir unnið að nokkrum sviðsmyndum um framtíðarnotkun húsnæðis eða lóða sem Reykjavíkurborg sagði upp við listamenn víða um borg. Brunavörnum hafi verið verulega áfátt og ekki hafi verið hagkvæmt að laga eða endurgera húsin. Innlent 30.9.2026 17:45
Eldur á Hellu Eldur kviknaði á geymslusvæði á Hellu. Hann kom upp í plaströrum sem lágu á jörðinni við gámaþyrpingu. Eldsupptök eru ókunn. Innlent 27.9.2026 15:21
Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Tveir dælubílar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu og sjúkrabíll voru kallaðir að íbúðarhúsi á Norðurbakka í Hafnarfirði vegna tilkynningar um reyk frá fjölbýlishúsi. Þá reyndist reykurinn koma frá lyftu hússins. Innlent 27.9.2026 14:12
Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Efnalekinn í fiskvinnslu Hnýfils á Óseyri á Akureyri orsakaðist af því að stíflueyðir sem hellt var í niðurfall í morgun blandaðist við þrifaefni sem notað var á gólfin síðdegis með þeim afleiðingum að klórgas myndaðist. Slökkvilið segir störf hafa gengið vel á vettvangi. Innlent 23.9.2026 21:21
Eldur í bíl í Heiðmörk Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir miðnætti í nótt vegna eldsvoða í bíl í Heiðmörk nærri Rauðhólum. Innlent 20.9.2026 01:25
Alelda bíll í Kópavogi Eldur logar í bíl sem stendur við Fífuhvamm í Kópavogi. Innlent 16.9.2026 22:34
Sleppt að lokinni yfirheyrslu vegna hótelbruna Rannsókn á bruna á Center Hotel Skjaldbreið er enn í gangi. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur einn verið yfirheyrður vegna málsins en verið sleppt vegna málsins. Mikið tjón varð á hótelinu og á verslunininni Andrá. Innlent 16.9.2026 10:10
Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun segir íbúa í grennd við Toppstöðina í Elliðaárdal ekki þurfa að óttast asbestmengun þrátt fyrir að asbest sé í húsinu. Heljarinnar tiltekt sé fram undan. Innlent 15.9.2026 17:34
Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Eldsupptök í Toppstöðinni í Elliðaárdal liggja ekki fyrir en slökkviliðsstjóri segir að umgangur virðist hafa verið um húsið sem eigi að vera mannlaust. Ekki er talið að um altjón sé að ræða og enn er stefnt að opnun miðstöðvar jarðaríþrótta í húsinu. Innlent 15.9.2026 11:47
Eldur í Elliðaárdal Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík á sjöunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna eldsins. Innlent 14.9.2026 18:34
Slökkvilið í Hafnarfjörð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna reyks í heimahúsi í Hafnarfirði á fimmta tímanum í dag. Innlent 13.9.2026 16:44
Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á Álftanes á tólfta tímanum vegna elds í íbúð í fjölbýlishúsi á Álftanesi. Allar stöðvar voru sendar af stað vegna elds sem átti eftir að koma í ljós að var vegna eldamennsku. Tekist hafði að slökkva eldinn þegar fyrsti bíll mætti á vettvang. Innlent 7.9.2026 12:06
Tvær tilkynningar um eld Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eldsvoða á hóteli í Hlíðunum. Í raun reyndist mikill reykur koma frá bakaraofni á hóteli. Innlent 7.9.2026 06:17
Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Lögreglan var kölluð til aðstoðar Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á ellefta tímanum í gærkvöld vegna umferðarslyss austan við bensínstöðina Olís í Norðlingaholti. Sjö voru fluttir á slysadeild en altjón varð á bílnum. Innlent 5.9.2026 09:37