
Myndlist

Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra
Árni Már Þ. Viðarsson, eigandi Gallery Ports segist heltekinn af verkum unga listamannsins Sindra Ploder en hann hefur slegið í gegn með skrímslaverkum sínum sem nú prýða veggi sýningarrýmisins.

Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu
„Vatnið hefur alltaf heillað mig og jafnframt valdið mér ótta. Þótt það hljómi kannski ótrúlega þá hef ég ætíð verið vatnshrædd og er nánast ósynd,“ segir myndlistarkonan Guðbjörg Lind. Hún opnaði nýverið sýninguna Uppáhelling fyrir sæfarendur í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu 17, hafnarmegin.

Fegurðin og gleðin í myndlistinni
Starfsemi Myndlistarfélags Árnessýslu blómstrar nú sem aldrei fyrr því félagsmönnum fjölgar og fjölgar og myndlistarsýningum í takt við það. Nýjasta sýningin, sem heitir "Gróskan” hefur verið opnuð í blómabænum Hveragerði.

„Við eigum ekki hvor aðra heldur veljum við hvor aðra“
Eva Jenný Þorsteinsdóttir myndlistakona og Elísabet Blöndal ljósmyndari kynntust árið 2012 en leiðir þeirra lágu þó ekki saman fyrr en um tveimur árum síðar. Síðan þá hafa þær trúlofað sig, gengið í hjónaband og eignast saman tvö börn, þau Árna Styrmi og Kolfinnu.

Ætlar aldrei að setjast í helgan stein
Haukur Halldórsson er 87 ára gamall og nú hefur Street Art Norge ákveðið að halda sérstaka sýningu honum til heiðurs. Á sýningunni getur að líta verk sem Haukur hefur unnið víðs vegar um heiminn í sex áratugi.

Þessir líklegastir til að ná í gegn í baráttunni um Bessastaði
Aðalsteinn Jörgensen briddsspilari með meiru dundar sér við að teikna í frístundum og nú slagurinn um Bessastaði efstur á blaði.

„Svona ýkta skemmdarfýsn er erfitt að skilja“
Útilistaverk í Grasagarðinum var brotið í sundur og bútunum kastað í tjörn aðeins þremur dögum eftir uppsetningu þess. Myndlistarmaðurinn segir grátlegt að sjá margra mánaða vinnu gerða engu og telur hóp hafa verið að verki. Hann vonast þó til að verkið rísi á ný annars staðar.

Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn
Bandaríski listamaðurinn Richard Serra er látinn 85 ára gamall. Hann var þekktastur fyrir listaverk sín úr stáli sem finna má um heima allan meðal annars í Viðey.

Óforsvaranlegt að 2,1 milljarði verði varið til listaverkakaupa fyrir nýja Landspítalann
Jón Gunnarsson og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp um breytingu á myndlistarlögum, þar sem lagt er til að kvöð um að verja prósenti af heildarkostnaði opinberrar byggingar til listaverkakaupa verði felld niður.

Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu
Listunnendur sameinuðust á Kjarvalsstöðum á laugardaginn við opnun á sýningunni Borghildur Óskarsdóttir: Aðgát. Þar eru til sýnis verk eftir listakonuna Borghildi Óskarsdóttur sem er fædd árið 1942.

Amanda og Brák meðal handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna
Amanda Riffo og Brák Jónsdóttir eru meðal þeirra myndlistarmanna sem hlutu Íslensku myndlistarverðlaunin. Þá fékk Hreinn Friðfinnsson Verðlaunaafhending fór fram í Iðnó í kvöld þar sem var margt um manninn.

Skapari Dragon Ball látinn
Japanski teiknarinn Akira Toriyama, skapari hinnar vinsælu teiknimyndaseríu og sjónvarpsþátta Dragon Ball, er látinn. Hann lést síðastliðinn föstudag, 68 ára að aldri.

Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni
Í Gufunesi, þar sem Áburðarverksmiðja ríkisins var áður, má nú finna fjölbreytta starfsemi. Í einni byggingunni hafa listamenn tekið sér bólfestu. Listamaðurinn Narfi Þorsteinsson og kvikmyndagerðamaðurinn Sindri Steinarsson gerðu myndband um starfsemina sem má sjá hér í pistlinum.

Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði
Menningarlífið iðaði í Hveragerði síðastliðinn laugardag þar sem yfir þúsund manns lögðu leið sína á sýningaropnun Listasafns Árnesinga. Var um að ræða sýningu fimm listamanna sem öll hafa verið áberandi í sýningarhaldi undanfarin ár, bæði erlendis og hérlendis.

Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl
Það var margt um manninn á efri hæð Priksins síðastliðinn föstudag við opnunarteiti Strik Stúdíó. Þotulið úr hönnunarbransanum lét sig ekki vanta og gestir skemmtu sér vel.

Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun
Það var margt um manninn í opnun á nýju rými Gallery Ports síðastliðinn laugardag. Nokkrar stórstjörnur íslenskrar myndlistar stóðu þar á samsýningunni Lost Track en gestir biðu í röð eftir að komast inn og fullt var út úr dyrum.

„Óþekka barnið“ í íslenskri myndlist fer nýjar leiðir
„Ég hef auðvitað upplifað ýmis konar atburði og tráma eins og margir,“ segir myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson og bætir við að mikil heilun eigi sér stað þegar hann máli. Hann opnar sýninguna Rex Spirituum næstkomandi laugardag í VEST.

Þrífst vel í brjálaðri vinnumenningu í New York
„Stundum hef ég verið að vinna tíu daga í röð án þess að fatta það og þarf þá að anda í smá stund,“ segir þrívíddarhönnuðurinn María Guðjohnsen. Hún hefur verið búsett í New York undanfarin ár og tekið þátt í ýmsum spennandi verkefnum á borð við hina virtu listahátíð Art Basel í Miami.

Samtal við mömmu sem olli straumhvörfum
„Ef ég lít til baka þá sé ég að ég var alltaf að búa eitthvað til og skapa. Ég var alltaf að gera eitthvað skapandi en það var enginn að segja mér að fara þessa leið,“ segir listamaðurinn Loji Höskuldsson, sem hefur skrifað nafn sitt með j-i síðan í grunnskóla. Loji er með á samsýningu sem opnar í nýju rými Gallery Port á laugardaginn og eru verkin hans gríðarlega eftirsótt.

Baltasar og Sunneva Ása eiga von á barni
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eiga von á sínu fyrsta barni saman í byrjun ágúst. Um er að ræða fyrsta barn Sunnevu en Baltasar á fjögur börn fyrir.

„Tækifæri til að pæla í fallegri veruleika eftir dauðann“
„Framtíðin kemur bara og við þurfum að díla við það,“ segir þrívíddarhönnuðurinn María Guðjohnsen, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Hún heillast að tæknilegri hliðum listarinnar og er óhrædd við viðfangsefni á borð við dauðann.

Troðfullt í Marshall-húsinu á opnun listrænna systra
Fullt var út úr dyrum í Þulu galleríi í Marshall-húsinu síðastliðinn laugardag við opnun á sýningu systranna og listakvennanna Lilju og Ingibjargar Birgisdætra.

Tóku saman höndum fyrir Hendi næst
Margt var um manninn í Ásmundarsafni í síðastliðinni viku á opnun sýningarinnar Hendi næst.

Leita að listaverkum Erró í einkaeigu fyrir listasýningu
Listasafn Reykjavíkur leitar nú að listaverkum eftir Erró til að sýna á sýningu sem á að opna í september á þessu ári.

Settist í öll sæti Eldborgar og tók 5000 sjálfsmyndir
Þýski listamaðurinn Martin Liebscher leggur mikið á sig fyrir verk sín. Hann heimsótti Hörpu, tónlistar-og ráðstefnuhús, haustið 2022 og tók heldur óhefðbundnar myndir í Eldborg.

Keypti 600 Bónuspoka og gerði úr þeim listaverk um fátækt
Sæmundur Þór Helgason opnaði nýverið Af hverju er Ísland svona fátækt? í Nýlistasafninu. Hann segir að sýningunni sé „sú fegraða ímynd sem Ísland kynnir gjarnan út á við dregin í efa með því að varpa ljósi á ólíkar upplifanir mismunandi fólks í landinu.“

Átta milljónir söfnuðust á listaverkauppboði til styrktar fólki á Gasa
Átta milljónir króna söfnuðust til styrktar neyðaraðstoðar á Gasa á listaverkauppboði sem nýlega fór fram á samfélagsmiðlinum Instagram. Styrkurinn var afhentur Félaginu Ísland-Palestína í dag.

Síðasta LungA-hátíðin haldin í sumar
Listahátíðin LungA, sem haldin hefur verið á Seyðisfirði um árabil, mun fara fram í síðasta skiptið í sumar en 24 ár eru síðan hún var haldin í fyrsta skipti.

Hvetja skemmdarvarg til að hafa samband, spjalla um listina og fá sér vöfflu
Klippt var á snúru hátalara sem spilar hljóðheim listaverksins Hafnarhaus Hringekju sem varpað er á Tollhúsið. Snúran var tengd að nýju og segja listamennirnir að viðkomandi sé velkomið að hafa samband til að ræða verkið, fá sér vöfflur og biðjast afsökunar, ef hann vill.

Græddi milljarða en þótti hann engu að síður hafa verið svikinn
Milljarðamæringurinn Dmitry Rybolovlev hefur tapað máli sem hann höfðaði gegn uppboðshúsinu Sotheby's í Bandaríkjunum, sem hann sakaði um að hafa haft af sér milljónir dollara.