![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)
Al-Qaida er enn á ný á kreiki í Evrópu, miðað við yfirlýsingu sem birtist undir hádegi. Samtökin hóta þar Dönum og Ítölum vegna starfa þarlendra í Írak og Afganistan.
Dagarnir sjötti og sjöundi júlí 2005 marka djúp spor í sögu Lundúnabúa, hvor með sínum hætti. Fyrri daginn ljómaði borgin af æstum fögnuði yfir því að hafa verið útnefnd til að hýsa Ólympíuleikana árið 2012, en morguninn eftir brast á hryllingur hryðjuverka með röð sprenginga í almenningssamgöngukerfi borgarinnar.
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, telur að árásirnar á Lundúnir í gær sýni að ríki heims séu ósamstíga og illa undir það búin að glíma við hryðjuverkaógnina.
Hryðjuverkamenn fá ekki að eyðileggja lífsmáta okkar segir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands.
Fimmtíu létust í árásunum í London að sögn innanríkisráðherra Bretlands, Charles Clarke. Þetta var haft eftir ráðherranum fyrir stundu.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, stappaði stálinu í þjóð sína í gær og fullyrti að hún myndi hryðjuverkaárásirnar í Lundúnum ekki láta buga sig. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hétu stuðningi sínum við ríkisstjórnina í þessum þrengingum.
"Hin Leynilegu samtök heilags stríðs al-Kaida í Evrópu" sem lýst hafi sig ábyrg fyrir hryðjuverkunum í London í gær hafa hótað Dönum og Ítölum sömu örlögum styðji þessar þjóðir áfram við bakið á Bandaríkjamönnum í hernaði þeirra í Írak og Afganistan.
Samtökin sem lýst hafa ábyrgð á hendur sér vegna árásanna í London eru ekki áður ókunn, eins og fullyrt hefur verið af sérfræðingum
Mannskæðasta árás sem Lundúnabúar hafa orðið fyrir frá stríðslokum var gerð í gær. Fjögur sprengjutilræði voru framin á háannatíma í lestum og strætisvögnum borgarinnar. Að minnsta kosti 38 biðu bana og 700 slösuðust, sumir mjög alvarlega.
Sérfræðingar í hryðjuverkavörnum segja að aldrei verði hægt að koma algjörlega í veg fyrir árásir á borð við þær sem gerðar voru á Lundúnir í gær. Vopna- og sprengiefnaleit á hverjum einasta farþega væri alltof kostnaðar- og tafsöm til að hún væri réttlætanleg.
Hið minnsta tveir eru látnir og 90 eru slasaðir eftir sprengingarnar í Lundúnum í morgun. Að sögn talsmanns lögreglunnar var um sex sprengingar að ræða.