Fréttir af flugi
51 52 53 54 55 56 57 58 59 … 144 ›
Sjö látnir eftir að vél flughersins hrapaði Flugvél nígeríska flughersins hrapaði skömmu eftir flugtak í morgun með þeim afleiðingum að allir sjö um borð létust. Talið er að vélarbilun hafi leitt til slyssins. Erlent 21.2.2021 19:21
Brak úr farþegaflugvél hrundi á íbúabyggð Brak úr hreyfli flugvélar United Airlines hrundi niður á íbúðabyggð nærri Denver í Colorado eftir að vélin tók á loft frá flugvellinum í Denver. 231 farþegi og tíu áhafnarmeðlimir voru um borð, en flugvélin náði að snúa aftur og lenda með alla heila á húfi. Erlent 20.2.2021 22:56
Talsverður gangur í sölu á flugi til Tenerife Flugsæti eru að seljast upp í ferðir til Tenerife nú um páskana. Harðar aðgerðir á borð við skimanir, sóttkví og neikvætt próf gegn Covid19 virðist lítil áhrif hafa haft á bókanir, segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita. Innlent 20.2.2021 20:01
Flugvirkjar afar ósáttir við úrskurð gerðardóms Langvinnri kjaradeilu flugvirkja við ríki lauk með niðurstöðu gerðardóms. Hún var birt á vef á vef ríkissáttasemjara í dag. Innlent 18.2.2021 16:27
Fékk ekki að millilenda þrátt fyrir „gulltryggingu með tveimur mótefnamælingum“ Ísold Guðlaugsdóttir er búsett í Svíþjóð. Hún var búin að vera á Íslandi í um tvo mánuði en var snemma í gærmorgun mætt á Keflavíkurflugvöll þar sem hún átti flugmiða heim til Stokkhólms með millilendingu í Kaupmannahöfn. Hún fékk aftur á móti ekki að fara um borð í vélina til Kaupmannahafnar þar sem hvorugt skjalið sem hún var með í höndunum um að hún væri með mótefni gegn covid-19 var tekið gilt. Annað reyndist of gamalt og hitt of nýtt. Innlent 17.2.2021 23:23
Mörg flugfélög í samstarf við UNICEF um dreifingu bóluefna Flugfélög um allan heim leggjast á eitt um að koma bóluefna gegn COVID-19 til fátækari ríkja heims. Heimsmarkmiðin 17.2.2021 10:13
Lent á Íslandi eftir nærri tveggja ára kyrrsetningu Icelandair endurheimti í dag tvær fyrstu Boeing 737 Max-þotur sínar eftir nærri tveggja ára kyrrsetningu og lentu þær í Keflavík með stuttu millibili upp úr hádegi. Flugstjóri fyrri vélarinnar segir endurkomu þeirra gefa von um nýja og betri tíma fyrir félagið. Innlent 14.2.2021 21:36
Bregðist ferðasumarið þyrfti Icelandair sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð Forstjóri Icelandair segir stefnt að því að hefja áætlunarflug til borga í Bandaríkjunum snemma í sumar. Stór hluti af 51 milljarðs króna tapi félagsins á síðasta ári sé vegna afskrifa á flugvélum. Taki ferðalög ekki við sér í sumar þurfi félagið sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð í haust. Viðskipti innlent 14.2.2021 18:00
Fyrstu MAX-vélarnar komnar til landsins Fyrstu tvær Boeing 737 MAX-þotur Icelandair lentu á Keflavíkurflugvelli á öðrum tímanum í dag. Alls á Icelandair sex slíkar vélar. Innlent 14.2.2021 14:27
Sá sjötti sem kemur til greina í fimm manna stjórn Icelandair Steinn Logi Björnsson, sem starfaði um árabil hjá Icelandair, mun gefa kost á sér í stjórn Icelandair group. Hann er sá sjötti sem gefið hefur kost á sér til setu í fimm manna stjórn félagsins. Aðalfundur félagsins fer fram 12. mars. Viðskipti innlent 13.2.2021 13:44
Icelandair selur restina af hlut sínum í Icelandair Hotels Icelandair Group hefur gert samning við Berjaya um sölu félagsins á 25% eftirstandandi hlut í hótelfélaginu. Berjaya á fyrir 75% hlut í Icelandair Hotels. Söluverðið er um 440 milljónir króna eða 3,4 milljónir Bandaríkjadala og kemur til greiðslu við afhendingu hlutarins og þegar skilmálar samningsins hafa verið uppfylltir. Viðskipti innlent 11.2.2021 09:33
Bláfugl, SA og gervivertaka Það hefur verið með hreinum ólíkindum að vera þátttakandi í kjaraviðræðum FÍA og Bláfugls undanfarnar vikur og mánuði. Sá málflutningur og aðgerðir sem boðið hefur verið upp á af hálfu Bláfugls er bein ógn við vinnumarkaðinn á Íslandi og að mínu mati liggur allur vinnumarkaðurinn undir í þessari deilu. Skoðun 10.2.2021 08:00
Segja flugmanninn hafa farið gegn þjálfun sinni og reglum Flugmaður þyrlunnar er sagður bera ábyrgð á banaslysinu sem Kobe Bryant, þrettán ára dóttir hans og sjö aðrir dóu í Kaliforníu í fyrra. Flugmaðurinn Ara Zobayan, var meðal þeirra sem dóu, en rannsakendur samgönguslysa segja hann hafa farið gegn þjálfun sinni og reglum þegar hann flaug inn í þykkan þokubakka þann 26. janúar í fyrra. Erlent 9.2.2021 21:50
Rekstur Icelandair í ár aðeins þrjátíu prósent af því sem var fyrir faraldur Icelandair gerir ráð fyrir að rekstrarumfang félagsins á þessu ári verði aðeins þrjátíu prósent af því sem var áður en heimsfaraldurinn skall á. Forstjórinn Bogi Nils Bogason segir verulega óvissu um hve marga starfsmenn verði hægt að endurráða í sumar. Viðskipti innlent 9.2.2021 20:12
Segir Icelandair getað lifað fram á vor 2022 þótt ekkert fari í gang Forstjóri Icelandair segir félagið geta lifað í rúmt ár til viðbótar án þess að nokkuð fari í gang og kveðst bjartsýnn á að þurfa ekki að nýta ríkisábyrgð sem Alþingi samþykkti síðastliðið haust. Fyrirtækið var rekið með 51 milljarðs króna tapi á síðastliðnu ári. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Viðskipti innlent 9.2.2021 13:16
Flugmenn í þjálfun keyptu fimm þúsund hótelnætur Á sama tíma tíma og flugheimurinn er í djúpri lægð vegna kórónufaraldursins hefur þjálfun erlendra flugmanna í flughermum Icelandair stóraukist. Þannig sendu erlend flugfélög fimm þúsund flugmenn í þjálfun til Hafnarfjarðar í fyrra. Viðskipti innlent 7.2.2021 16:55
Icelandair auglýsir stöður flugstjóra Icelandair hefur undanfarið auglýst stöður flugstjóra, bæði fyrir farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX og Boeing 757 farþegaþotum, á meðal starfandi flugmanna hjá félaginu. Viðskipti innlent 7.2.2021 13:31
Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila Bandaríski fjárfestirinn Michelle Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila sem haldi á hlutunum fyrir sig. Hún sé þó raunverulegur eigandi hlutanna, en er þó ekki á meðal tuttugu stærstu hluthafa samkvæmt hluthafalista. Viðskipti innlent 4.2.2021 20:47
Tillaga um orkuskipti í flugi samþykkt á Alþingi Þingsályktunartillaga umhverfis- og samgöngunefndar um orkuskipti í flugi var samþykkt samhljóða með atkvæðum 53 viðstaddra þingmanna á Alþingi í dag. Innlent 3.2.2021 14:08
„Umhverfis- og samgöngunefnd að stela málinu mínu“ Mælt var fyrir þingsályktunartillögu um orkuskipti í flugi á Alþingi í dag. Í henni er lagt til að skipaður verði starfshópur sem á að móta stefnu og aðgerðaáætlun um málið. Markmiðið er að byrjað verði að nota umhverfisvæna orkugjafa í innanlandsflugi innan tíu ára. Innlent 2.2.2021 16:44
Flugmenn Icelandair búa sig undir að fljúga Maxinum á ný Flugmenn Icelandair gangast núna undir endurþjálfun á Boeing 737 Max-þotur eftir að Flugöryggisstofnun Evrópu aflétti nærri tveggja ára flugbanni í síðustu viku. Félagið hyggst byrja að ferja þoturnar aftur til Íslands í kringum næstu helgi. Innlent 1.2.2021 22:15
Fjölskylda fórnarlamba flugslyssins höfðar mál gegn Boeing Indónesísk fjölskylda farþega sem létust í flugslysinu þegar vél flugfélagsins Sriwijaya Air hrapaði í Jövuhafi, úti fyrir ströndum Indónesíu, fyrr í þessum mánuði hefur höfðað mál gegn flugvélaframleiðandanum Boeing. Fjölskyldan segir flugvélina, sem var af gerðinni Boeing 373-500, hafa verið „gallaða og óeðlilega hættulega.“ Erlent 31.1.2021 23:31
Áforma að ferja tvær Boeing 737 Max-þotur til Íslands í næstu viku Icelandair er byrjað að undirbúa endurkomu Boeing 737 MAX-véla félagsins inn í flugreksturinn eftir að Flugöryggisstofnun Evrópu aflétti kyrrsetningu vélanna síðastliðinn miðvikudag. Stefnt er að því að tveimur MAX-þotum verði flogið frá Spáni til Íslands í síðari hluta næstu viku. Viðskipti 29.1.2021 14:11
Flugvirkjar Icelandair byrjaðir að búa fyrstu MAX-vélina undir flug Flugvirkjar eru fjölmennsta flugstéttin hjá Icelandair um þessar mundir. Tvær umfangsmiklar stórskoðanir standa yfir í viðhaldsstöð félagsins Keflavík auk sem byrjað er að gera fyrstu MAX-vélina klára fyrir flug á ný. Viðskipti innlent 27.1.2021 21:13
Boeing 737 Max fá græna ljósið í Evrópu Flugöryggisstofnun Evrópu hefur gefið græna ljósið á að Boeing 737 Max flugvélarnar geti flogið um loftin blá í Evrópu. Þar með er 22 mánaða banni á flugvélunum lokið í kjölfar tveggja flugslysa sem kostuðu 346 manns lífið. Viðskipti erlent 27.1.2021 12:30
Stór farþegaþota rifin í fyrsta sinn á Íslandi Fyrsta niðurrif farþegaþotu, sem fram fer hérlendis, er langt komið í Keflavík. Flugvirkjar Icelandair luku í dag við að ná síðasta hjólastellinu undan Boeing-þotu en flugstjórnarklefinn fer svo á flugsafnið á Akureyri. Viðskipti innlent 27.1.2021 10:50
Þrýstingsfall í flugvél Bláfugls vegna leka við frakthurð Þrýstingsfall varð í einni af Boeing-fraktflugvélum flugfélagsins Bláfugls í gærmorgun þegar vélin var á leið frá Dublin til Keflavíkur. Þrýstingsfallið uppgötvaðist þegar vélin var skammt frá Færeyjum. Innlent 27.1.2021 10:23
Gjöld vegna Covid-19 vottorðs geta margfaldað ferðakostnað Fleiri ríki gera nú kröfu um að flugfarþegar framvísi vottorði um neikvæða niðurstöðu úr nýlegu Covid-19 prófi þegar þeir koma til landsins. Frá og með deginum í dag þurfa allir sem koma til Bandaríkjanna að hafa undir höndum slíkt vottorð en fyrr í mánuðinum tók sú breyting til að mynda gildi í Englandi og Danmörku. Viðskipti innlent 26.1.2021 13:11
Munu bjóða upp á flug milli Keflavíkur og Manchester á næsta ári Breska flugfélagið Jet2.com og ferðaskrifstofan Jet2CityBreaks ætla að bjóða upp á flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands sumarið 2022. Viðskipti innlent 22.1.2021 11:10
ASÍ fussar og sveiar yfir uppsögnum Bláfugls Alþýðusamband Íslands fordæmir það sem sambandið kallar enn eina tilraunina til félagslegra undirboða í flugrekstri hér á landi. Vísað er til uppsagnar fragtflugfélagsins Bláfugls sem sagði upp ellefu flugmönnum í desember í hagræðingarskyni. Viðskipti innlent 21.1.2021 16:29