Fréttir
196 197 198 199 200 201 202 203 204 … 334 ›
Nýjasta tækni í Vestmannaeynni VE Engir togvírar verða notaðir á nýjasta togara Vestmannaeyinga, og karlarnir þurfa ekki einu sinni að gera að aflanum lengur. Þetta undra fley er nýja Vestmannaeyin VE, sem útgerðarfélagið Bergur Huginn lét smíða fyrir sig í Póllandi og er komið til heimahafnar í Eyjum. Nýjungin er sú að í stað togvíra verða notuð svonefnd ofurtog, sem skyldari eru köðlum en vírum. . Innlent 16.3.2007 12:01
Fagna uppbyggingu háskólasamfélags á Keflavíkurflugvelli Stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands fagnar áætlunum um uppbyggingu alþjóðlegs háskólasamfélags á Keflavíkurflugvelli. Í yfirlýsingu frá ráðinu segir að þáttur Háskóla Íslands í samningnum um uppbygginguna sé gríðarmikilvægur. Til standi að kenna þær greinar sem HÍ standi framarlega í auk þess að stunda rannsóknir á þeim sviðum. Innlent 16.3.2007 11:54
Skyrútflutningur til Bandaríkjanna fimmfaldast Útflutningur á Skyr.is til Bandaríkjanna sló öll met í vikunni þegar níu tonn voru flutt þangað í flugi. Þetta er tæplega fimmföldun á útflutningi til Bandaríkjanna á nokkrum vikum. Að meðaltali kaupa Íslendingar 20 tonn af Skyr.is í viku hveri. Ástæða aukningarinnar er sú að íslenskar mjólkurafurðir voru í vikunni í fyrsta sinn seldar til verslana Whole Foods verslunarkeðjunnar í New York og Boston. Innlent 16.3.2007 11:42
Þróunarsamvinna fær aukið vægi Þróunarsamvinna verður þungamiðja málþings átta sjálfstæðra mannúðarsamtaka á Íslandi sem haldið verður í Norræna húsinu 23. mars næstkomandi. Sífellt fleiri láta sig þróunarsamvinnu varða og hefur samvinna efnaðri þjóða við þær fátækari fengið aukið vægi á undanförnum árum. Innlent 16.3.2007 10:57
Metárhjá MP Fjárfestingarbanka MP Fjárfestingarbanki skilaði 1.315 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 613 milljóna króna hagnað ári fyrr. Þetta er methagnaður í sögu bankans. Lagt verður til á aðalfundi bankans í lok mars að greða 18 prósenta arð eða 192,6 milljónir króna. Viðskipti innlent 16.3.2007 10:46
Styrmir og Kjartan yfirheyrðir í dag Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins og Kjartan Gunnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins verða yfirheyrðir í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í morgun voru þeir Jón Lárusson lögreglumaður og Þórður Þórisson framkvæmdasjtóri 10/11 verslananna yfirheyrðir. Innlent 16.3.2007 10:34
Hálka og snjóþekja víða um land Víða um land er nú hálka og snjóþekja og éljagangur á Norður- og Vesturlandi. Vegagerðin bendir á að ásþungi hefur verið takmarkaður við 10 tonn um allt land, með undantekningum, vegna aurbleytu og hættu á slitlagsskemmdum. Innlent 16.3.2007 10:19
Íslensk börn safna fyrir fátæk í þróunarlöndum Nærri þrjú þúsund börn um allt land hafa safnað fjármagni til byggingar heimavista í Pakistan og Kenýa. Nemendur úr 150 bekkjum í 105 skólum gengu í hús frá miðjun febrúar og söfnuðu framlögum í söfnuninni „Börn hjálpa börnum.“ í samvinnu við ABC hjálparstarf. Söfnunni lýkur í dag og mun Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra afhenda 12 milljón króna styrk við athöfn í Melaskóla kl. 11. Innlent 16.3.2007 10:01
Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 0,22% Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan mars, hækkaði um 0,22 prósent frá fyrra mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Vísitalan hefur hækkað um 13,2 prósent síðastliðna tólf mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Viðskipti innlent 16.3.2007 09:09
Baugsmálið í dag Tveir dagar eru eftir af vitnaleiðslum í málinu og í dag munu meðal annarra koma fyrir dóminn þeir Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Innlent 15.3.2007 22:36
Ósamræmi hjá lögreglu Lögreglumönnum ber ekki saman um hvenær fyrsta yfirheyrslan yfir Jóni Gerald Sullenberger fór fram. Hætt var við rannsókn á tugum tilvika vegna ábendinga frá sakborningum sem þóttu réttmætar. Innlent 15.3.2007 22:36
Vodafone skrifar undir á Indlandi Forsvarsmenn breska farsímarisans Vodafone undirrituðu í gær formlegan samning um kaup á 67 prósenta hlut í indverska fjarskiptafélaginu Hutchison Essar. Félagið er fjórða stærsta fjarskiptafélag Indlands og þykir hafa opnað Vodafone dyrnar á einn af mest vaxandi farsímamörkuðum í heimi. Viðskipti erlent 15.3.2007 21:31
Máni tilnefndur til Emmyverðlauna fyrir Latabæjartónlist Máni Svavarsson, höfundur tónlistarinnar í þáttunum um Latabæ, er á meðal þeirra sem tilnefndir eru til Emmy verðlauna í ár fyrir tónlistarstjórnun og tónverk (Outstanding Achievement in Music Direction and Composition). Þetta er fyrsta tilnefning íslensks tónlistarmanns til verðlaunanna. Tónlist 15.3.2007 22:24
Mikil spenna í Ekvador Fjölmenni gerði árásir að þingmönnum í Ekvador í dag. Múgurinn henti steinum í þá og lömdu bíla þeirra en átök á milli stjórnarandstöðuþingmanna, sem eru í meirihluta, og forsetans Rafael Correa, aukast sífellt. Erlent 15.3.2007 23:37
Býst við að þingi ljúki á laugardag Forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, á von á því að þingi ljúki á laugardag. Sólveig átti fund með formönnum þingflokkanna í kvöld og sagði þetta að honum loknum, í samtali við Sjónvarpið. Þingfundur hófst klukkan 20:52 í kvöld og má búast við því að hann verði fram á nótt. Innlent 15.3.2007 23:27
Komin aftur til Bretlands Utanríkisráðherra Bretlands skýrði frá því í dag að fólkinu sem var rænt í Eþíópíu fyrir 12 dögum síðan væri komið til Bretlands á ný. Því var sleppt á þriðjudaginn var og var það við góða heilsu. Fólkið var þá afhent yfirvöldum í Erítreu en talið er að ættbálkahöfðingjar á svæðinu þar sem þeim var rænt hafi samið um lausn þeirra. Erlent 15.3.2007 22:51
Höfðatún frá Skúlagötu að Borgartúni lokað tímabundið Höfðatún frá Skúlagötu að Borgartúni verður lokað tímabundið vegna framkvæmda við lagnir og innkeyrslumannvirki nýbygginga á Höfðatorgi. Lokanir verða mismiklar eftir því hvaða framkvæmdir eru í gangi hverju sinni, en alls munu þær standa yfir frá 19. mars – 8. ágúst. Fyrst í stað verður einni akrein haldið opinni í hvora átt en frá miðjum apríl til ágúst verður Höfðatúni lokað fyrir allri almennri umferð. Innlent 15.3.2007 22:30
Forseti Írans vill ávarpa öryggisráð SÞ Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, hefur beðið um leyfi til þess að ávarpa öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til þess að verja kjarnorkuáætlanir þjóðar sinnar. Forseti öryggisráðsins, hinn Suður-afríski Dumisani Kumalo, skýrði frá þessu nú í kvöld. Erlent 15.3.2007 22:02
Nemendur Melaskóla afhenda ABC barnahjálp framlög sín Söfnunni “Börn hjálpa börnum 2007” lýkur með táknrænum hætti í hátíðarsal Melaskóla á morgun, föstudaginn 16. mars kl 11. Þá munu nemdur skólans afhenda Guðrúnu Margréti Pálsdóttur og Sigurlínu Þ. Sigurjónsdóttur hjá ABC barnahjálp söfnunarbauka sína. Af þessu tilefni mun utanríkisráðherra afhenda raunsarlegt framlag að upphæð 12 milljónir kr.til landakaupa í Pakistan þar sem skólarnir verða reistir. Innlent 15.3.2007 21:51
Krefjast afsagnar forsætisráðherra Ungverjalands Lögregla og mótmælendur í Ungverjalandi tókust á í kvöld eftir að um eitt hundrað þúsund mótmælendur í miðborg Búdapest kröfðust afsagnar forsætisráðherra landsins, Ferenc Gyurcsany. Þetta eru stærstu mótmælin í landinu síðan árið 2005 en þá krafðist almenningur þess að hann segði af sér eftir að hann viðurkenndi að hafa logið til stöðu ríkisfjármála. Forsætisráðherrann laug þá til þess að auka líkurnar á því að hann yrði kosinn á ný. Erlent 15.3.2007 21:28
Stjórnarandstaðan gagnrýndi ríkisstjórnina Miklar umræður voru í kvöld á alþingi um störf þingsins. Stjórnarandstaðan gagnrýndi ríkisstjórnina harkalega fyrir framgöngu sína í auðlindamálinu. Ingibjörg Sólrún sagði tillöguna sjónarspil og Geir H. Haarde sagði eðlilegt að þar sem samstaða hefði ekki náðst um hana hefði hún farið aftur í stjórnarskrárnefnd. Innlent 15.3.2007 21:07
Spánverjar samþykkja jafnréttislög Spænska þingið samþykkti í dag lög um jafnrétti karla og kvenna. Lögin kveða á um jafnan rétt karla og kvenna til atvinnutækifæra og um fæðingarorlof karlmanna. Sósíalistastjórn Spánar hefur leitast við að auka jafnrétti á Spáni allt frá því hún tók við völdum árið 2004. Forsætisráðherra Spánar, Jose Luis Rodriguez Zapatero skipaði þá konur í helming ráðherrastóla í ríkisstjórn sinni. Erlent 15.3.2007 20:48
Íraksfrumvarp fellt í öldungadeild Frumvarp um að kalla bandaríska hermenn í Írak heim fyrir 31. mars á næsta ári var í dag fellt í öldungadeild bandaríska þingins. Fyrr í dag hafði nefnd fulltrúadeildarinnar samþykkt frumvarp sem kveður á um að bardagabúnir hermenn verði kallaðir heim fyrir september á næsta ári. Kosið verður um það í næstu viku. Erlent 15.3.2007 20:16
Engin virk byggðastefna í landinu Sérfræðingur í hagfræði segir að engin virk byggðastefna sé rekin í landinu. Hann telur að fyrir vikið hafi Byggðastofnun úr litlu að moða og hlutverk hennar sé óljóst. Innlent 15.3.2007 20:02
Datt á snjóbretti Ungur drengur féll og slasaðist við snjóbrettaiðkun á skíðasvæðinu í Tungudal á Ísafirði í kvöld. Ekki er vitað um meiðsli drengsins en lögregla og björgunarsveitarmenn eru að sækja hann í brekkuna á þessari stundu. Farið verður með drenginn á sjúkrahúsið á Ísafirði og athugað með meiðsli hans. Innlent 15.3.2007 19:57
„Stjórnarandstaðan sveik loforð sín“ Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í samtali við Vísi að stjórnarandstaðan hefði svikið loforð sín um greiða fyrir lausn auðlindamálsins. Hann sagði tillögu stjórnarflokkanna hafa verið í meginmáli eins og tillögu stjórnarandstöðunnar sem kom fram á fundi hennar þann 5. mars síðastliðinn. Því væru þessi málalok merki um sneypuför stjórnarandstöðunnar sem væri nú á flótta undan sínum eigin yfirlýsingum. Innlent 15.3.2007 19:34
Hermennirnir hugsanlega heim fyrir september árið 2008 Nefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti nú síðdegis áætlun demókrata um að kalla alla bardagabúna hermenn heim frá Írak fyrir fyrsta september á næsta ári. Nefndin samþykkti aukafjárútlát til stríðsrekstursins en með þungum skilyrðum. Erlent 15.3.2007 19:15
Ný hlébarðategund fundin Vísindamenn á Indónesíu hafa fundið nýja tegund af hlébörðum sem helst er að finna á Borneó og Súmötru. Áður var talið að þeir tilheyrðu hlébarðategund sem var að finna á meginlandi Suðaustur-Asíu. Vísindamenn telja að um sömu tegund hafi verið að ræða þar til fyrir rúmlega milljón árum, en þá hafi skilið á milli og tvær tegundir hlébarða þróast. Erlent 15.3.2007 17:47
Þjóðstjórn skipuð Hreyfingar Fatah og Hamas hafa komið sér saman um skipan óháðs fræðimanns í embætti innanríkisráðherra í þjóðstjórn Palestínumanna. Þetta var síðasti ásteytingarsteinn viðræðnanna og var stjórnin kynnt í dag. Hana skipa 9 Hamas-liðar, 6 fulltrúar Fatah og 3 óháðir í innanríkis-, fjármála- og utanríkisráðuneyti. Þing greiðir atkvæði um stjórnina á laugardaginn. Erlent 15.3.2007 17:40
Sjúkrahús í niðurníðslu í Írak Sjúkrahús eru skítug í Írak, lyf vantar og læknar hverfa frá landinu í stórum hópum. Mikil þörf er á læknisaðstoð í Írak þar sem fjölmargir örkumlast í átökum á degi hverjum. Forsætisráðherra Bretlands segir ekki hægt að kenna vesturveldunum um hörmungarnar í landinu nú. Erlent 15.3.2007 17:34