Gafst upp og hljóp á Íslandsvininn Brot í fótbolta eru misjafnlega augljós en brotaviljinn gerist varla skýrari en hjá Natiyu Pantsulaya sem var rekin af velli í leik Úkraínu og Norður-Írlands um sæti á EM kvenna í fótbolta. 14.4.2021 11:30
„Dauðadómur“ fyrir Liverpool að fá á sig mark í kvöld „Það er nánast dauðadómur fyrir Liverpool að fá á sig mark í þessum leik,“ segir Jón Þór Hauksson um stórleik Liverpool og Real Madrid í kvöld, í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. 14.4.2021 10:00
Leyfa áhorfendur á íþróttaviðburðum Yfirvöld hafa dregið til baka ákvörðun um áhorfendabann á íþróttaleikjum og munu hundrað manns geta komið saman í stúku á leikjum næstu þrjár vikurnar. 13.4.2021 17:29
„Góð svör í báðum leikjum“ „Mér finnst margt í ferðinni hafa gengið upp og við náð að innprenta ákveðna hluti í leikmannahópinn,“ segir Þorsteinn Halldórsson eftir fyrstu tvo leiki sína sem landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta. 13.4.2021 17:04
„Sagði engin neitt þegar hún lá þarna“ Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari segir enga í ítalska liðinu hafa kvartað yfir jöfnunarmarki Íslands í vináttulandsleiknum í dag, þó að leikmaður liðsins hafi legið á vellinum vegna smávægilegra meiðsla. 13.4.2021 16:43
Rússar komust á EM Rússland bættist í dag í hóp með Íslandi og öðrum þjóðum sem tryggt hafa sér sæti á Evrópumóti kvenna í fótbolta sem fram fer sumarið 2022. 13.4.2021 16:05
Fyrstu fótboltaleikirnir ekki um helgina en fljótlega Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ vinnur nú að tillögum fyrir stjórn sambandsins um það hvenær Íslandsmótið í fótbolta muni hefjast nú þegar ljóst er að íþróttabanni verður aflétt á fimmtudaginn. 13.4.2021 13:41
Íþróttir leyfðar að nýju Æfingar og keppni í íþróttum verður að nýju leyfð á fimmtudag samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnaaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins. 13.4.2021 12:05
Leikur sem skiptir sköpum fyrir okkar stelpur er 600 kílómetrum frá þeim Þó að íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mæti Ítalíu í vináttulandsleik í Flórens í dag má segja að annar leikur, í öðru landi, skipti enn meira máli fyrir liðið. 13.4.2021 11:30
Ætla sér að slá út „besta lið heims“ í kvöld Mauricio Pochettino segir að PSG þurfi að slá út „besta lið heims“ í kvöld til að komast áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Ljóst er að Bayern München þarf að skora tvö mörk í París í kvöld, eftir að PSG vann leikinn í Þýskalandi 3-2. 13.4.2021 10:00