„Rosalega frústrerandi“ að trúa því að maður geti betur Kolbeinn Höður Gunnarsson er fljótasti maður landsins en hann hefur á skömmum tíma slegið Íslandsmetin í 60 og 200 metra hlaupi innanhúss. Hann segist nú vera að sýna nokkuð sem hann vissi lengi að hann gæti. 7.2.2023 09:01
„Búin að vera að drepast í hásinunum í tvö og hálft ár“ „Það er þungu fargi af mér létt að ég hafi ekki bara verið að ímynda mér eitthvað, því þetta hefur angrað mig mjög lengi,“ segir Lovísa Thompson, landsliðskona í handbolta, sem hefur komist að rót meins sem hefur plagað hana í tvö og hálft ár. 7.2.2023 08:01
Uppfært: Atsu enn ófundinn Ekki hefur tekist að bjarga ganverska fótboltamanninum Christian Atsu úr rústum byggingar eftir jarðskjálftann mikla í Tyrklandi í fyrrinótt. 7.2.2023 07:32
Gauti meiddist með finnska landsliðinu og missir af leiknum í kvöld Óvissa ríkir um það hvenær Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, lykilmaður í handboltaliði Fram, getur spilað með liðinu í Olís-deildinni eftir að hann meiddist illa í ökkla. 6.2.2023 16:00
Sú reynslumesta ekki með í fluginu í dag Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta, hefur neyðst til að gera eina breytingu á leikmannahópi sínum sem í dag ferðast til Ungverjalands. 6.2.2023 11:31
„Gat ekki staðið í lappirnar og var mjög hrædd“ „Þetta er skelfilegt,“ segir Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslands í fótbolta, sem býr ásamt kærustu sinni í Tyrklandi þar sem risastór jarðskjálfti reið yfir í nótt og hefur orðið fjölda fólks að bana. 6.2.2023 10:34
Segir NHL „hrækja framan í“ úkraínsk börn Tékkneska markmannsgoðsögnin Dominik Hasek hraunaði yfir bandarísku NHL-deildina í íshokkí og framkvæmdastjóra hennar, Gary Bettman, eftir sviðsljósið sem Rússinn Alexander Ovechkin og sonur hans fengu á stjörnuleik NHL. 6.2.2023 09:01
Lýsir Guardiola sem klikkaða prófessornum Chris Sutton veltir fyrir sér í pistli í Daily Mail hvað Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, gangi hreinlega til með umdeildum ákvörðunum sínum að undanförnu. 6.2.2023 08:01
„Vissi að þegar ég kæmi til Íslands vildi ég halda þessu starfi áfram“ Fötluð börn á Íslandi geta nú æft fótbolta undir handleiðslu landsliðskonunnar Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur og ólympíumeistarans Erin McLeod en hjónin, og nýjustu leikmenn Stjörnunnar, hafa tekið að sér þjálfun hjá Öspinni. 6.2.2023 07:30
Mæta Sviss og Þórður fer með yngra lið til Danmerkur A-landslið kvenna í fótbolta er á leið á æfingamót til Spánar í þessum mánuði en í dag var einnig tilkynnt um væntanleg verkefni liðsins í apríl. 3.2.2023 16:30