Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Akrein í austurátt frá Selfossi verður lokuð til klukkan sautján síðdegis í dag vegna framkvæmda. Vegfarendur eru beðnir um að keyra um með gát og virða allar merkingar. 8.7.2026 09:53
Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Málað var yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju í nótt með íslensku fánalitunum. Í samtali við fréttastofu staðfestir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að gjörningurinn hafi ekki verið á vegum kirkjunnar. 8.7.2026 08:47
Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Paul Watson býður nú peningaverðlaun, tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvern þann sem vísað getur á staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals ehf. 8.7.2026 08:06
Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Byggðaráð Múlaþings lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Sveitarfélagið er sérlega víðfeðmt og teygir sig frá Borgarfirði eystri suður á Djúpavog. 8.7.2026 07:33
Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Suðvestlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag, vindur þrír til tíu metrar á sekúndu. Skýjað er yfir landinu en bjart að mestu á austanverðu landinu. Hiti gæti náð allt að tuttugu og fimm stigum um helgina. 8.7.2026 06:51
Umferð eykst milli ára Umferð á Hringveginum eykst um eitt prósent milli ára samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar á fyrstu sex mánuðum ársins. Telst sú aukning lítil þar sem árleg aukning frá árinu 2022 til 2025 nam 4,8 prósentum. 8.7.2026 06:31
Handtekinn eftir röð innbrota Alls gistu þrír fangageymslur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Hún hafði afskipti af fjölmörgum ökumönnum í nótt og maður var gripinn eftir röð innbrota. 8.7.2026 06:30
„Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“ 7.7.2026 11:09
Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Næringarfræðingur sem var til viðtals í Bítinu í morgun rak upp stór augu þegar Sigmar Vilhjálmsson, þáttarstjórnandi, dró upp þrjá próteindrykki og próteinbúðing í nesti. „Ég er að keyra svolítið á þessu,“ viðurkennir Sigmar. Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur, var þangað komin til að ræða fæðubótarefni. 6.7.2026 22:14
Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Gul veðurviðvörun tekur gildi á Suðurlandi í fyrramálið klukkan sex og stendur fram til klukkan fjórtán síðdegis. 6.7.2026 20:43