Gerðu umfangsmiklar árásir á Írana í Sýrlandi Her Ísraels segist hafa gert árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi í nótt. Þær hafi beinst gegn sveitum Írana sem hafi skotið eldflaugum að Ísrael í gær. 20.11.2019 11:57
Segja Bandaríkjamönnum að skipta sér ekki af Hong Kong Kínverjar hafa skilgreint alla gagnrýni á ástandið í Hong Kong og meðhöndlun yfirvalda á mótmælendum sem skammarverð afskipti af innanríkismálum Kína. 20.11.2019 11:00
Óttast fjölda dauðsfalla í mótmælunum í Íran Sameinuðu þjóðirnar óttast að fjölmargir séu dánir eftir umfangsmikil mótmæli þar í landi. 19.11.2019 16:18
Sagði símtalið umdeilda óviðeigandi Alexander Vindman, meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, segir umdeilt símtal Donald Trump og Volodymir Zelensky, forseta Bandaríkjanna og Úkraínu, hafa verið óviðeigandi. Það hefði ekki verið rétt af Trump að biðja erlendan þjóðarleiðtoga að rannsaka bandarískan borgara og pólitískan andstæðing hans. 19.11.2019 15:30
Blása á sögusagnir um heilsu Trump Óundirbúin ferð Donald Trump á sjúkrahús um síðustu helgi hefur vakið spurningar um heilsu hins 73 ára gamla forseta Bandaríkjanna. 19.11.2019 14:24
Tveimur gíslum Talibana sleppt úr haldi eftir rúm þrjú ár Talibanar hafa sleppt tveimur vestrænum gíslum sem hafa verið í haldi þeirra frá 2016. Það var gert í skiptum fyrir þrjá leiðtoga Talibana sem var sleppt var úr haldi ríkisstjórnar Afganistan. 19.11.2019 11:47
Death Stranding: Einstakur leikur sem er grútleiðinlegur á köflum Death Stranding er einhver undarlegasti leikur sem ég hef spilað. Mér finnst í raun erfitt að koma orðum utan um hvað mér finnst um þennan leik, því ég er nokkuð viss um að það sé ekki til annar leikur eins og Death Stranding. 19.11.2019 10:00
Bjóða Trump að svara spurningum þingmanna Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, bauð í gær Donald Trump, forseta, að mæta á fund þingmanna og svara spurningum þeirra varðandi rannsókn fulltrúadeildarinnar á mögulegum embættisbrotum forsetans. 17.11.2019 23:33
Óttast blóðbað í Hong Kong Lögregluþjónar hafa ráðist til atlögu gegn mótmælendum sem haldið hafa til í tækniháskóla í Hong Kong síðustu daga. Umsátursástand ríkir þar og hefur lögreglan beitt táragasi og vatnsbyssum gegn mótmælendum sem hafa svarað með eldsprengjum og örvum. 17.11.2019 22:50
Trump segist vera sá eini sem geti hjálpað Kim Bandaríkin og Suður-Kórea munu fresta heræfingum sem til stóð að halda í von um að það muni bæta líkurnar á samkomulagi við Norður-Kóreu vegna kjarnorkuvopna og eldflauga einræðisríkisins. 17.11.2019 22:00