Eitt boð ber tölurnar uppi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að stóran hluta dreifingar Covid-19 sem greinst hefur að undanförnu megi rekja til eins fjölskylduboðs. Hann segir tölurnar í dag svipaðar og í gær en þó hafi fleiri verið í sóttkví við greiningu. Það gæti verið til marks um línulegan vöxt. 28.11.2020 11:45
Vísbendingar um smit í samfélaginu sem ekki er búið að finna Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að þar á bæ hafi menn miklar áhyggjur af stöðunni vegna faraldurs Covid-19 hér á landi. Sérstaklega af því hve margir eru að greinast smitaðir utan sóttkvíar. 28.11.2020 11:10
Máli Trumps í Pennsylvaínu lýst sem innihaldslausu og vísað frá Áfrýjunardómstóll í Fíladelfíu í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli sem lögfræðingar Donald Trumps, forseta Bandaríkjanna, höfðuðu með því markmiði að breyta úrslitum forsetakosninganna í Pennsylvaínu. 28.11.2020 10:13
Einn smitaður og tuttugu í sóttkví á Vestfjörðum Einstaklingur frá Vestfjörðum sem ferðaðist til höfuðborgarsvæðisins í síðustu viku hefur reynst smitaður af Covid-19. Sá fór aftur heim og eru nú tuttugu komnir í sóttkví vegna málsins. Flestir þeirra á norðanverðum Vestfjörðum en sex sunnan Dýrafjarðarganga. 28.11.2020 10:02
Umhleypingar í kortunum Draga mun í dag úr þeirri suðvestanátt sem hefur ráðið ríkjum á Íslandi undanfarna sólarhringa og er von á norðlægri átt á morgun. Áfram verður éljagangur á sunnan- og vestanverðu landinu og hiti í kringum frostmark. 28.11.2020 08:37
Cher kemur einmana fíl til bjargar Söngkonan Cher er nú stödd í Pakistan þar sem hún tekur þátt í björgun fílsins Kaavan, sem hefur verið kallaður sá fíll heimsins sem er mest einmana. Kaavan hefur varið 35 árum í dýragarði í Pakistan en maki hans dó árið 2012 og síðan þá hefur hann verið einn. 28.11.2020 08:28
Varpa sökinni á Ísrael og heita hefndum Hassan Rouhani, forseti Írans, hefur sakað Ísrael um að ráða Mohsen Fakhrizadeh, helsta kjarnorkuvísindamann Íran af dögum. Fakhrizadeh var hermaður auk þess að vera vísindamaður og var talinn yfirmaður leynilegrar kjarnorkuvopnaáætlunar Írans. 28.11.2020 07:40
Segir ekki koma til greina að hætta árás á Tigrayhérað Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, hafnaði því í dag að hefja viðræður við leiðtoga Frelsishreyfingarinnar í Tigrayhéraði. Abiy hitti þrjá fulltrúa Afríkubandalagsins í í dasg sem voru sendir til að reyna að miðla milli deilandi fylkinga í Eþípóíu en stjórnarher landsins hóf nýverið sókn gegn Frelsishreyfingunni. 27.11.2020 16:52
Helsti kjarnorkuvísindamaður Írans ráðinn af dögum Einn helsti kjarnorkuvísindamaður Írans var myrtur en Ísraelar hafa sagt hann hafa stýrt leynilegri kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins. 27.11.2020 15:05
Kim sagður reiður og óskynsamur Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, er sagður vera reiður þessa dagana og hafa tekið óskynsamar ákvarðanir. Hann er sagður undir miklum þrýstingi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og versnandi stöðu hagkerfis landsins. 27.11.2020 12:53