Þáttastjórnendur grínast með endalok Trump-tímabilsins Donald Trump hefur átt í stormasömu sambandi við marga af stjórnendum spjallþátta Bandaríkjanna. Hann hefur deilt opinberlega við einhverja þeirra og gagnrýnt aðra á Twitter. Þeir virðast þó flestir hæstánægðir með að Trump láti af embætti í dag. 20.1.2021 11:47
Vaktin: Innsetningardagur Bidens Joe Biden sór embættiseið og tók við völdum sem 46. forseti Bandaríkjanna í dag. Það gerir hann í skugga gífurlegrar öryggisgæslu vegna árásarinnar á þinghúsið í byrjun mánaðarins og faraldurs nýju kórónuveirunnar. 20.1.2021 11:01
Ma sendi frá sér stutt myndband en sást síðast í október Kínverski auðjöfurinn Jack Ma ávarpaði hóp kennara í Kína í myndbandi sem birt var í morgun og var það í fyrsta sinn sem hann sést opinberlega frá því í október. Við það hækkuðu hlutabréf í félagi hans, Alibaba, verulega. 20.1.2021 09:35
Gagnrýna WHO og Kínverja fyrir hægagang í upphafi faraldursins Sérfræðingaráð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem skipað var í vor til að kanna viðbrögðin við faraldri nýju kórónuveirunnar gagnrýnir Kína og stofnunina sjálfa fyrir að ekki hafi verið brugðist nógu snemma við. 19.1.2021 16:46
500 ára málverk fannst í skáp og enginn vissi að því hefði verið stolið Lögregluþjónar hafa handtekið mann á Ítalíu eftir að 500 ára gamalt málverk fannst í eldhússkáp hans. Málverkinu hafði verið stolið af safni en starfsmenn þess vissu þó ekki af þjófnaðinum. 19.1.2021 15:18
Pútín ekki hræddur við Navalní Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir að forsetinn óttist ekki stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní, sem var úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald í gær. Þá þykir líklegt að yfirvöld Rússlands muni koma í veg fyrir áætluð mótmæli vegna handtöku Navalní um helgina. 19.1.2021 14:22
Skilur eftir sig „djúpríki“ Trump-liða Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, mun skilja eftir sig mikinn fjölda opinberra starfsmanna sem voru upprunalega pólitískt skipaðir í störf sín. Erfitt mun vera fyrir ríkisstjórn Joe Biden að koma þessum mönnum frá. 19.1.2021 12:20
Dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskylduna Tælensk kona hefur verið dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskyldu landsins. Er það lengsti dómur sem hefur verið veittur varðandi brot sem þetta í landinu. Lögin í kringum konungsfjölskyldu Taílands þykja einkar ströng og hefur ákærum á grundvelli þeirra farið fjölgandi. 19.1.2021 11:20
Hafa áhyggjur af fjölgun afbrigða Með sífellt aukinni dreifingu nýju kórónuveirunnar hefur nýjum afbrigðum veirunnar sem veldur Covid-19 fjölgað. Hvert smit gefur vírusnum tækifæri á að stökkbreytast og verður líklegra að afbrigði líti dagsins ljós sem geti gert skimun og meðferð erfiðari og jafnvel afbrigði sem núverandi bóluefni virki ekki gegn. 19.1.2021 10:19
Mánudagsstreymið: Leita uppruna Óla Jóels Í kvöld munu strákarnir í GameTíví leita uppruna Óla Jóels. Það mun þeir gera á júratímabilinu í leiknum Ark: Survival Evolved. 18.1.2021 19:29