Vaktin: Allt stefnir í aðra erfiða nótt Rússneskar hersveitir segjast hafa náð yfirráðum í borginni Melitopol í suðausturhluta Úkraínu. Melitopol er fyrsta stóra borgin, utan þeirra sem eru á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í austri, sem fellur í hendur Rússa. Varnarmálaráðherra Breta segir þessar fregnir þó ekki réttar. 26.2.2022 07:37
Vaktin: Hart barist í Kænugarði Loftárásir Rússa hófust aftur klukkan fjögur í nótt að staðartíma í Úkraínu. Nú er sólarhringur liðinn síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu og talið er að tæplega 140 Úkraínumenn hafi fallið í átökunum. 25.2.2022 06:54
Vaktin: Allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu Her Rússlands gerði innrás í Úkraínu eftir skipun frá Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í nótt. Innrásin hófst á sprengjuregni í nokkrum borgum Úkraínu og innrás úr norðri, austri og suðri. 24.2.2022 06:23
Babe Patrol: Nú skal fyrsti sigurinn nást Stelpurnar í Babe Patrol lofa sínum fyrsta sigri í Warzone í streymi kvöldsins. Þær munu verja streyminu þungvopnaðar á Caldera. 23.2.2022 20:31
Heimurinn bíður næstu skrefa Pútíns Ráðamenn víða um heim bíða eftir næstu skrefum Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Stærsta spurningin er hvort hann muni hefja stríð við Úkraínu eða kalla her sinn heim frá landamærunum. 23.2.2022 17:01
Ætla að kynna frekari aðgerðir gegn Rússum í dag Sendiherrar Evrópusambandsins hafa komist að niðurstöðu um frekari refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna hernaðaraðgerða þeirra í Úkraínu. Búist er við því að þær verði samþykktar og kynntar síðar í dag. 23.2.2022 13:51
„Taívan er ekki Úkraína“ Ráðamenn í Kína segja ekki hægt að bera saman aðstæður Úkraínu og Taívans. Hið síðarnefnda ríki hafi ávallt verið óaðskiljanlegur hluti Kína. Í Taívan hafa yfirvöld áhyggjur af því að Kínverjar nýti sér deilurnar í Evrópu til mögulegra hernaðaraðgerða. 23.2.2022 11:48
Frekari innrás og auknar refsiaðgerðir í kortunum Yfirvöld í Úkraínu byrjuðu í morgun að kveðja 18 ára til sextuga menn í varaliði hersins til starfa eftir að Vólódómír Selenskí, forseti, fyrirskipaði slíkt í gær. Rússar hafa flutt herlið inn í austurhluta Úkraínu, á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna en Vladimír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi á mánudaginn sjálfstæði þessara svæða og rúmlega það. 23.2.2022 10:46
Drottningar í Grænu helvíti Stelpurnar í Queens ætla að taka á því í kvöld og reyna að lifa af við gífurlega erfiðar aðstæður. Það ætla þær að gera í leiknum Green Hell, þar sem þær verða strandaglópar í frumskógi. 22.2.2022 20:31
Olíuverð hækkar hratt og hefur ekki verið hærra frá 2014 Olíuverð hafði í morgun ekki verið hærra frá 2014 samhliða mjög svo aukinni spennu í Austur-Evrópu. Spennan við Úkraínu náði nýjum hæðum í gærkvöldi þegar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi sjálfstæði tveggja héraða í Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar, studdir af Rússlandi, ráða ríkjum. 22.2.2022 09:40