Tóku eigin málaliða af lífi með sleggju Rússneskir málaliðar Wagner Group birtu um helgina myndband sem sýndi meðlim hópsins tekinn af lífi með sleggju. Rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn og tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum, lofaði myndbandið. 14.11.2022 13:10
Leynilegu geimfari lent aftur eftir langa geimferð Geimher Bandaríkjanna lenti um helgina leynilegu geimfari á jörðinni eftir að það hafði verið út í geimi í 908 daga. Það er mettími en áður hafði geimfarið, sem ber heitið X-37B lengst verið 780 daga í geimnum. Þetta var sjötta geimferð X-37B. 14.11.2022 11:15
Selenskí heimsótti Kherson Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Kherson-borg í morgun. Hersveitir Rússa hörfuðu nýverið frá borginni en eru þrátt fyrir það í nokkur hundruð metra fjarlægð, hinu megin við Dniproá. 14.11.2022 10:46
Lavrov sagður hafa farið á sjúkrahús á Balí Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, var fluttur á sjúkrahús í morgun, samkvæmt AP fréttaveitunni. Það var skömmu eftir að hann lenti á Balí á Indónesíu fyrir G-20 fundinn sem fer þar fram en utanríkisráðuneyti Rússlands segir það ekki rétt. 14.11.2022 09:24
Beina spjótum sínum að Trump Áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins notuðu spjall- og fréttaþætti í Bandaríkjunum í gær til að reyna að fjarlægja sig frá Donald Trump, fyrrverandi forseta. Deilt er innan flokksins vegna slæms gengis hans í þingkosningum síðustu viku og vilja margir beina spjótum sínum að Trump. 14.11.2022 09:21
Aukin hætta á skriðuföllum fyrir austan Rigningin á Seyðisfirði mældist tæplega tvö hundruð millimetrar síðustu vikuna. Vegna mikillar rigningu á Suðausturlandi og Austurfjörðum síðustu viku má gera ráð fyrir að grunnvatnsstaða sé há víða á svæðinu. Enn er spáð rigningu á svæðinu í meira en viku. 14.11.2022 07:33
Sófasamvinna í Sandkassanum Strákarnir í Sandkassanum ætla að spila leikina Lovers in a dangerous spacetime og Plate Up í streymi kvöldsins. Báðir leikirnir eru svokallaðir „sófasamvinnuleikir“ og munu strákarnir þurfa að taka höndum saman í kvöld. 13.11.2022 20:32
Einvígi aldarinnar hefst í dag Fyrsti þátturinn af Stjóranum verður sýndur í dag. Þar er um að ræða einvígi aldarinnar þar sem þeir Hjálmar Örn og Óli Jóels keppa um hvor nær betri árangri með lið sitt í fjórðu deildinni í Englandi í Football Manager 2023. 12.11.2022 10:21
Hvetja Rússa sem eru í felum í Kherson til að gefast upp Úkraínumenn segja Kherson-borg hafa verið frelsaða úr höndum Rússa. Borgin var eina héraðshöfuðborgin sem Rússar hafa hertekið frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst í febrúar en forsvarsmenn rússneska hersins tilkynntu á dögunum að til stæði að hörfa þaðan. 11.11.2022 17:18
Óreiðan virðist ráða ríkjum hjá Twitter Frá því auðjöfurinn Elon Musk tók við stjórn samfélagsmiðilsins Twitter hefur mikil óreiða ríkt þar. Musk varaði við því í nótt að gjaldþrot kæmi til greina en fyrr í gærkvöldi hafði hann sagt stöðu fyrirtækisins vera erfiða en margir af æðstu yfirmönnum fyrirtækisins hafa sagt upp á undanförnum dögum. 11.11.2022 14:59