Vonast til að vera klár fyrir næsta leik eftir „hné í læri af dýrari gerðinni“ Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, átti svo sannarlega viðburðaríkan leik er lið hans tapaði 0-1 fyrir KR á Meistaravöllum í Pepsi Max deild karla. Sindri Kristinn fékk þungt högg á þriðju mínútu, kláraði leikinn og varði vítaspyrnu. 13.7.2021 15:01
Bjarki Már áfram í Katar Bjarki Már Ólafsson verður áfram hjá knattspyrnufélaginu Al Arabi í Katar þó svo að Heimir Hallgrímsson og Freyr Alexandersson séu horfnir á braut. 13.7.2021 14:01
Vandræði Man Utd meiri en við fyrstu sýn: Leikmenn íhuguðu að fara í verkfall Það gengur allt á afturfótunum hjá kvennaliði Manchester United. Félagið er enn án þjálfara og leikmenn liðsins voru í fúlustu alvöru að íhuga verkfall nú þegar undirbúningur fyrir næstu leiktíð er að fara á fullt. 13.7.2021 13:01
Lebron segist vilja enda ferilinn hjá Lakers Körfuknattleiksmaðurinn LeBron James sagði í viðtali fyrir skömmu að hann ætlaði sér að enda ferilinn hjá Los Angeles Lakers. Þó ekki fyrr en eftir fjögur til sjö ár en Lebron er 36 ára gamall í dag. 13.7.2021 11:30
Úrvalslið EM: Donnarumma, Bonucci, Ronaldo og fleiri góðir EM í knattspyrnu lauk í gærkvöld þegar Ítalía lagði England eftir vítaspyrnukeppni þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. 13.7.2021 10:00
Ísak Andri á láni til ÍBV Stjarnan hefur ákveðið að senda hinn unga Ísak Andra Sigurgeirsson á láni til ÍBV sem leikur í Lengjudeildinni. 12.7.2021 17:00
Maður mótsins aldrei tapað í vítaspyrnukeppni Þegar ljóst var að úrslit Evrópumótsins í fótbolta yrðu útkljáð með vítaspyrnukeppni hefur eflaust farið um margan leikmanninn. Reikna má með að Gianluigi Donnarumma, markvörður Ítalíu, hafi hins vegar verið sá rólegasti. 12.7.2021 16:00
Di María nýtti tækifærið og steig út úr skugga Messi Ángel Di María skoraði markið sem tryggði Argentínu 1-0 sigur á Brasilíu í úrslitum Suður-Ameríkubikarsins. Hann hefur nær alltaf leikið aukahlutverk í liðum sínum enda lítið annað hægt þegar Lionel Messi, Cristiano Ronaldo, Neymar og Kylian Mbappé eru samherjar manns. 12.7.2021 14:31
„Hann er frá Íslandi svo ég skil að honum finnist það“ Norrköping vann 1-0 útisigur á Mjällby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Leikurinn fór fram í 22 gráðu hita, eitthvað sem Ara Frey Skúlasyni, landsliðsmanni Íslands og leikmanni Norrköping, fannst einfaldlega of mikið. 12.7.2021 14:00
Mikið vatn runnið til sjávar síðan síðast en þá munaði 29 stigum á liðunum KR og Keflavík mætast í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikið er í Frostaskjóli en síðast þegar liðin mættust þar munaði 29 stigum á liðunum. Staðan er töluvert öðruvísi í dag. 12.7.2021 13:31