Landsliðsþjálfarinn enn jákvæður þrátt fyrir að það sé „stormur á sjó“ „Ég myndi vilja sjá bland af því sem við sáum gegn Rúmeníu og svo síðustu tuttugu mínúturnar gegn Norður-Makedóníu,“ sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari um hvað hann væri til í að sjá í leik Íslands og Þýskalands í kvöld. 8.9.2021 15:30
Leigði einkaflugvél til að komast aftur til Liverpool Naby Keïta, miðvallarleikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, er kominn aftur til Englands eftir að hafa setið fastur í heimalandi sínu Gíneu eftir að valdarán átti sér stað í landinu. Hann leigði sjálfur einkaflugvél til að komast til baka. 8.9.2021 15:01
Leikfær Jóhann Berg segir íslenska liðið þurfa að hlaupa úr sér lungun „Ég æfði í dag og smá í gær (í gær og fyrradag) svo þetta er allt á fínu róli,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson í viðtali við Stöð 2 og Vísi hann væri klár í slaginn er Ísland mætir Þýskalandi í kvöld á Laugardalsvelli. 8.9.2021 14:01
Brasilísku stjörnurnar fá ekki að spila í ensku úrvalsdeildinni um helgina Alls verða átta brasilískir leikmenn brasilíska landsliðsins fjarverandi er enska úrvalsdeildin fer af stað á nýjan leik um helgina. 8.9.2021 13:00
Króatinn Koljanin í KR Króatíski körfuknattleiksmaðurinn Dani Koljanin hefur samið við KR og mun leika með liðinu í efstu deild karla í vetur. Hann er engin smásmíð og lék síðast í efstu deild í Austurríki. 8.9.2021 11:01
Sjáðu mark Kolbeins sem tryggði Íslandi stig gegn Grikklandi Kolbeinn Þórðarson skoraði eina mark íslenska U-21 árs landsliðsins í 1-1 jafntefli liðsins gegn Grikklandi í undankeppni EM 2023. Markið má sjá hér að neðan. 8.9.2021 10:30
Skelfingar landsleikjahlé Tottenham Það gæti þó reynst þrautin þyngri að fullmanna leikmannahóp Tottenham Hotspur gegn Crystal Palace er enska úrvalsdeildin hefst á nýjan leik eftir landsleikjahlé um næstu helgi. 8.9.2021 10:00
Bræður börðust hlið við hlið | Myndir Þeir Kristian Nökkvi Hlynsson og Ágúst Eðvald Hlynsson léku báðir í gær er U-21 árs landslið Íslands gerði 1-1 jafntefli við Grikkland í undankeppni EM 2023. 8.9.2021 09:31
Utan vallar: Hatrið orðið lýjandi fyrir ungt íþróttafólk Þegar fólk nær ákveðnu stigi af frægð og frama hættum við sjá það sem manneskjur. Þau eru ekki lengur mennsk í okkar augum, það er ekki hlutverkið sem við höfum gefið þeim. Við höfum afmennskað þau að mörgu ef ekki öllu leyti. 8.9.2021 08:30
Fyrrum troðslukóngur NBA-deildarinnar á tíunda degi á gjörgæslu Cedrid Ceballos fyrrum troðslukóngur NBA-deildarinnar hefur nú legið í tíu daga á gjörgæslu sökum kórónuveirunnar. Hann biður fólk um að biðja fyrir sér og segir baráttu sína hvergi nærri búna. 8.9.2021 08:01