Dagskráin í dag: Olís-deildin fer af stað, Seinni bylgjan og Íslendingar í Evrópudeildinni Það er nóg framundan á Stöð 2 Sport í dag. Olís-deild karla í handbolta hefst, Íslendingar verða í eldlínunni í Evrópudeildinni í fótbolta. Þá eru lærisveinar José Mourinho að sprikla í Sambandsdeild Evrópu. 16.9.2021 06:00
Wall fetar í fótspor Harden og Westbrook | Leitar á ný mið John Wall hefur náð samkomulagi við forráðamenn Houston Rockets um að yfirgefa félagið þegar nægilega gott tilboð berst. Hann mun ekki leika með liðinu í NBA-deildinni í körfubolta í vetur. 15.9.2021 23:30
Búið að draga í undanúrslitin: Bikarmeistararnir fara á Ísafjörð og Keflavík á Skagann Nú rétt í þessu var dregið í undanúrslit Mjólkurbikars karla. Vestri - eina liðið úr Lengjudeildinni sem er í undanúrslitum - fær bikarmeistara Víkings í heimsókn á meðan Keflavík mætir ÍA á Akranesi. 15.9.2021 23:01
Klopp taldi sína menn hafa týnst í eigin spilamennsku og telur að fólk horfi ekki nóg á fótbolta Jürgen Klopp var sáttur með endurkomu sinna manna gegn AC Milan í kvöld. 15.9.2021 22:31
Eftir markasúpuna gegn Leipzig bað Pep stuðningsmenn City að fylla völlinn um helgina Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, hrósaði RB Leipzig fyrir leik kvöldsins en lærisveinar hans unnu 6-3 sigur er liðin mættust í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. 15.9.2021 22:10
Grótta skoraði átta gegn Aftureldingu Grótta gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk er liðið vann 8-0 sigur á Aftureldingu í Lengjudeild karla í kvöld. Hvorugt lið hefur að neinu að keppa og ljóst að gestirnir úr Mosfellsbæ eru farnir í vetrarfrí. 15.9.2021 21:45
Mbappé meiddur af velli er PSG mistókst að vinna | Haller skoraði fjögur í Portúgal Öllum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er nú lokið. 15.9.2021 21:30
Rodrygo hetja Real Real Madríd vann mikilvægan 1-0 útisigur á Ítalíumeisturum Inter í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Leikið var í Mílanó. 15.9.2021 21:05
Fyrirliðinn hetjan er Liverpool hóf Meistaradeildina á sigri Liverpool tók á móti AC Mílan á Anfield í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikurinn var frábær skemmtun en glæsimark fyrirliðans Jordan Henderson sá til þess að Liverpool fór með 3-2 sigur af hólmi. 15.9.2021 21:00
Markasúpa á Etihad er heimamenn skoruðu sex Manchester City og RB Leipzig mættust í einhverjum ótrúlegasta leik síðari tíma í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Lokatölur 6-3 heimamönnum í vil í leik sem vart er hægt að finna lýsingarorð yfir. 15.9.2021 20:55