Kólumbíumaðurinn farinn til Katar James Rodríguez hefur yfirgefið enska knattspyrnufélagið Everton og mun nú leika listir sínar með Al Rayyan í Katar. Hvorki kemur fram hvað kappinn kostaði né hversu langan samning hann gerir í Katar. 22.9.2021 19:01
Dramatísk endurkoma er Juventus vann loks leik Ítalska stórliðið Juventus er loks komið á blað í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, eftir 3-2 útisigur á Spezia. 22.9.2021 18:36
Andri Fannar og Ísak Bergmann byrjuðu báðir er FCK hrundi út úr bikarnum | Þægilegt hjá Elíasi Rafni Íslendingalið FC Kaupmannahöfn tapaði einkar óvænt gegn Nykobing í danska bikarnum í fótbolta í kvöld, lokatölur 3-0. Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í marki Midtjylland sem fór örugglega áfram. 22.9.2021 18:00
Vill afsökunarbeiðni frá KSÍ og íhugar bótamál Lögmaður Kolbeins Sigþórssonar vill að Knattspyrnusamband Íslands biðjist afsökunar á því að hafa tekið leikmanninn úr leikmannahópi landsliðsins undir lok ágústmánaðar. Þá segir lögmaðurinn að sambandið gæti þurft að greiða miska- og fjártjónsbætur. 22.9.2021 17:15
Missti meðvitund og fékk heilahristing eftir að keyrt var aftan á bíl hans Máni Austmann Hilmarsson var ekki í leikmannahópi Leiknis Reykjavíkur er liðið mætti Keflavík í Pepsi Max deild karla um liðna helgi. Keyrt var aftan á bíl Mána nýverið og verður hann frá æfingum næstu tvo mánuðina hið minnsta. 21.9.2021 07:01
Óánægja með rauða spjaldið sem Birnir Snær fékk: Ekki snjóboltaséns í helvíti að þetta sé gult fyrir leikaraskap Birnir Snær Ingason var rekinn af velli í gríðarlega mikilvægum 1-0 sigri HK á Keflavík í fallbaráttu Pepsi Max deildarinnar í kvöld. Fékk hann sitt annað gula spjald fyrir það sem dómari leiksins taldi vera leikaraskap. 20.9.2021 23:01
Bjarni Ófeigur frábær í sigri Skövde Sænska handknattleiksliðið Skövde er komið í 8-liða úrslit sænsku bikarkeppninnar eftir öruggan sjö marka sigur á Hallby í kvöld, lokatölur 33-26. 20.9.2021 22:16
Napoli með fullt hús stiga eftir stórsigur Napoli vann 4-0 sigur á Udinese í Serie A, ítösku úrvalsdeildinni í fótbolta, í kvöld. Liðið er því með fullt hús stiga á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru búnar. 20.9.2021 21:30
Ronald Araujo hetja Barcelona Barcelona var hársbreidd frá því að tapa fyrsta deildarleik tímabilsins í kvöld er Granada kom í heimsókn á Camp Nou. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli þar sem Ronald Araujo jafnaði metin í uppbótartíma. 20.9.2021 21:00
Þorvaldur íhugar að leggja flautuna á hilluna: Ekki eins og maður poppi eftir svona leik og hafi gaman „Ég skal bara viðurkenna það að manni líður bölvanlega,“ sagði Þorvaldur Árnason, dómari leiks KR og Víkings í Pepsi Max deild karla er hann ræddi tilfinningar sínar að leik loknum. Allt sauð upp úr í leik liðanna þar sem Víkingur van dramatískan 2-1 sigur og tyllti sér á topp deildarinnar. 20.9.2021 20:16
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent