Rakel Dögg hætt með Stjörnuna Rakel Dögg Bragadóttir og Stjarnan hafa komist að samkomulagi um starfslok. Rakel Dögg verður því ekki lengur þjálfari liðsins í Olís-deild kvenna í handbolta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjörnunni. 17.1.2022 18:35
LeBron þögull eftir ummæli Magic: „Stuðningsfólk Lakers á betra skilið“ LeBron James er andlit Los Angeles Lakers í dag. Hann er maðurinn sem leitað er til þegar svara þarf fyrir slæmt gengi eða hvað sem gæti bjátað á. Eftir stórtap gegn Denver Nuggets ákvað LeBron hins vegar að tjá sig ekki við fjölmiðla. 17.1.2022 18:02
Finnst óþægilegt að spila við Brentford „Það er mjög óþægilegt að spila á móti Brentford ef ég er hreinskilinn. Þeir spila oftast öðruvísi en hvernig þeir spiluðu gegn okkur í dag gerði okkur erfitt fyrir,“ sagði Jürgen Klopp eftir 3-0 sigur sinna manna á Brentford í ensku úrvalsdeildinni. 16.1.2022 16:46
Harrison með þrjú er Leeds vann West Ham í markaleik Leeds United vann 3-2 sigur á West Ham United er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn var einkar fjörugur og undir lok leiks voru mörk dæmd af báðum liðum. Þá fékk Jarrod Bowen sannkallað dauðafæri til að jafna metin í uppbótartíma. 16.1.2022 16:16
Óvæntir markaskorarar er Liverpool gekk frá Brentford Liverpool vann öruggan 3-0 sigur á Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag. 16.1.2022 15:55
Durant meiddur enn á ný Kevin Durant, einn albesti körfuboltamaður síðari ára, meiddist í nótt og er óttast að hann gæti verð frá í dágóðan tíma. Hann fékk högg á hnéð er liðsfélagi hans lenti illa á honum. Atvikið má sjá í fréttinni. 16.1.2022 15:30
Guðlaugur Victor og félagar í Schalke 04 misstigu sig Þýska stórliðið Schalke 04 náði aðeins jafntefli er Holstein Kiel kom í heimsókn á Veltins-völlinn í Gelsenkirchen í B-deildinni þar í landi, lokatölur 1-1. Guðlaugur Victor Pálsson var fyrirliði Schalke í leiknum. 16.1.2022 14:31
Newcastle að sækja þýskan landsliðsmann Hið nýríka knattspyrnu Newcastle United er í þann mund að festa kaup á sínum þriðja leikmanni í janúarfélagaskiptaglugganum. Vinstri bakvörðurinn Robin Gosens ku vera á leið til félagsins frá Atalanta á Ítalíu. 16.1.2022 13:46
Þróttur heldur áfram að bæta við sig leikmönnum Sæunn Björnsdóttir hefur gengið til liðs við Þrótt Reykjavík á lánssamningi frá Haukum. Mun hún leika með liðinu í efstu deild kvenna í knattspyrnu í sumar. 16.1.2022 12:30
Bills slátraði Patriots og heldur áfram leið sinni í átt að Ofurskálinni Tveir leikir fóru fram í hinni svokölluðu „Wild Card“ umferð NFL-deildarinnar í nótt. Buffalo Bills vann 30 stiga sigur á New England Patriots, 47-17 og Cincinnati Bengals unnu Las Vegas Raiders 26-19. Bills og Bengals eiga því enn möguleika á að komast í leikinn um Ofurskálina. 16.1.2022 12:01