Þrettándi sigur Hauka í röð kom liðinu upp i Subway-deildina Haukar eru komnir aftur upp í Subway-deild karla eftir að hafa fallið úr deildinni á síðustu leiktíð. Liðið vann öruggan sigur á Álftanesi í uppgjöri tveggja af toppliðum 1. deildar í kvöld, lokatölur 85-67. 14.3.2022 22:35
Aftur misstíga Englandsmeistarar Man City sig gegn Crystal Palace Crystal Palace og Manchester City gerðu markalaust jafntefli í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Palace vann fyrri leik liðanna og hefur þar með náð í fjögur stig gegn Englandsmeisturunum á leiktíðinni. 14.3.2022 22:05
Real komið með tíu stiga forskot á toppnum Topplið La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, vann 3-0 útisigur á Mallorca í eina leik kvöldsins. Karim Mostafa Benzema og Vinícius José Paixão de Oliveira Júnior með mörkin. 14.3.2022 21:55
Martin stigahæstur í naumum og mikilvægum sigri Valencia Martin Hermannsson átti frábæran leik í liði Valencia er liðið vann nauman fimm stiga sigur á Manresa í ACB-deildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 90-85. 14.3.2022 21:36
Stjarnan í undanúrslit Lengjubikarsins Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Lengjubikarskarla í knattspyrnu með 2-0 sigri á ÍA. Liðið mætir FH í undanúrslitum. 14.3.2022 21:15
Meiðslafrír Gunnar er klár í slaginn Gunnar Nelson stígur loksins inn í búrið á nýjan leik um næstu helgi er hann berst við Japanann Takashi Sato í London. Hann ræddi við Vísi og Stöð 2 í Mjölni í dag þar sem hann hefur verið að undirbúa sig fyrir komandi bardaga. 14.3.2022 20:30
Innkoma Guðmundar lykillinn að endurkomu Álaborgar Guðmundur Þórarinsson lék sinn fyrsta leik fyrir AaB er liðið vann 3-2 endurkomusigur á OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Aron Elís Þrándarson var ekki í leikmannahópi OB. 14.3.2022 20:00
Fyrrum liðsfélagi segir Maguire ekki nægilega góðan til að leiða lið Man United Harry Maguire hefur ekki sjö dagana sæla að undanförnu. Frammistöður hans með Manchester United hafa ekki verið upp á marga fiska og nú hefur fyrrverandi samherji enska miðvarðarins sagt að hann sé ekki nægilega góður fyrir enska úrvalsdeildarfélagið. 14.3.2022 19:30
„Asnalegt að Kyrie megi vera í salnum en ekki að spila“ Farið verður yfir viðtal Kevins Durant eftir sigur Brooklyn Nets á New York Knicks í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Þar ræddi Durant þá undarlegu reglugerð sem gerir það að verkum að Kyrie Irving gat setið í stúkunni og horft á leikinn en mátti ekki taka þátt í honum. 14.3.2022 18:46
Nike mun standa við samning sinn við Chelsea Íþróttavörurisinn Nike hefur staðfest að félagið mundi standa við gerðan samning við enska knattspyrnuliðið Chelsea. Mörg fyrirtæki hafa rift samningi sínum við félagið eftir að allar eignir Romans Abramovich, eiganda Chelsea, í Englandi voru frystar. 12.3.2022 08:01