Arnar tekur 17 leikmenn með til Serbíu Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Serbíu ytra á laugardaginn kemur, þann 23. apríl. Er þetta síðasti leikur Íslands í undankeppni Evrópumótsins og er ljóst að þetta er hreinn úrslitaleikur um 2. sæti riðilsins. Gefur það sæti á Evrópumótinu sem fram fer í nóvember á þessu ári. 21.4.2022 12:31
Sjáðu sigurmark Elfars Árna og öll fimm mörkin í Safamýri Tveir síðustu leikir 1. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta fóru fram í gær. KA vann Leikni Reykjavík 1-0 og KR vann 4-1 útisigur á Fram er liðin mættust í Safamýri. 21.4.2022 12:00
Framtíð tveggja leikmanna sem fóru á EM og HM í óvissu vegna meintra ofbeldis- og kynferðisbrota Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er framtíð Rúnars Más Sigurjónssonar og Sverris Inga Ingasonar með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í mikilli óvissu. 21.4.2022 11:31
Embiid mundar sópinn, samheldni Celtics sigraði einstaklingsgæði og DeRozan jafnaði metin gegn Bucks Það fóru þrír frábærir leikir fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. DeMar DeRozan var trylltur er Chicago Bulls jöfnuðu metin gegn meisturum Milwaukee Bucks. Boston Celtic komið 2-0 yfir gegn Brooklyn Nets og Joel Embiid kom Philadelphia 76ers 3-0 yfir gegn Toronto Raptors með flautuþrist í framlengdum leik. 21.4.2022 11:00
Man Utd staðfestir að Erik ten Hag sé nýr þjálfari liðsins Manchester United hefur staðfest að Erik ten Hag sé nýr þjálfari liðsins. Þetta kemur fram á vef félagsins sem og samfélagsmiðlum þess í dag. 21.4.2022 10:27
Hreinsanir hafnar á starfsliði Man Utd og búist við allt að tíu nýjum leikmönnum í sumar Tveir helstu njósnarar Manchester United hafa yfirgefið félagið. Virðist þetta vera upphafið að einni allsherjar hreinsun á bæði leikmannahóp og starfsliði félagsins. Ralf Rangnick, tímabundinn þjálfari liðsins, býst við sex til tíu leikmönnum í sumar. 20.4.2022 16:15
Nýtt ár, nýtt lið en sami gamli Óskar Örn Óskar Örn Hauksson hóf lífið eftir KR á sama hátt og undanfarin ár. Með þrumufleyg fyrir utan teig er Stjarnan gerði 2-2 jafntefli við ÍA í fyrstu umferð Bestu deildar karla. 20.4.2022 15:30
Kyrie heldur áfram að sanka að sér sektum Kyrie Irving, leikmanni Brooklyn Nets í NBA-deildinni, tókst enn á ný að koma sér í vandræði er Nets tapaði með eins stigs mun gegn Boston Celtics í úrslitakeppninni. 20.4.2022 14:47
Rúnar Þór spilaði kviðslitinn Bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson var nokkuð óvænt í byrjunarliði Keflavíkur er liðið hóf leik í Bestu deild karla. Rúnar Þór hefur verið að glíma við meiðsli á leiktíðinni og er kviðslitinn en spilaði samt sem áður 75 mínútur í 4-1 tapi á Kópavogsvelli í gær. 20.4.2022 14:01
Guðni Th. um aðstöðuleysi á Íslandi: „Þjóðarhöll stendur ekki undir nafni ef hana má ekki nota“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mætti í Bítið á Bylgjunni til að ræða stöðu þjóðarleikvanga Íslands í boltaíþróttum. Hann vill nýja þjóðarhöll hið fyrsta. 20.4.2022 12:00