Segir leikmenn ekki vera vélmenni og að hann hafi þurft að taka ákvörðun Þýski varnarmaðurinn Antonio Rüdiger er á leið frá Chelsea á frjálsri sölu í sumar. Hann mun að öllum líkindum ganga til liðs við Spánarmeistara Real Madríd. Honum þykir leitt hvernig dvöl hans í Lundúnum endar. 20.5.2022 23:01
HK með fullt hús stiga | Augnablik og Haukar með sigra Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld. Augnablik, Haukar og HK unnu öll sína leiki. HK er með fullt hús stiga á meðan Augnablik og Haukar voru að vinna sinn fyrsta sigur í sumar. 20.5.2022 22:30
Kórdrengir með góðan sigur | Jafnt í Mosó og á Akureyri Alls fóru þrír leikir fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. Kórdrengir unnu góða sigur á KV, Afturelding og Selfoss gerðu jafntefli í Mosfellsbæ og Þór Akureyri jafnaði í blálokin gegn Grindavík. 20.5.2022 22:01
Jafnt hjá Spánarmeisturum Real og bikarmeisturum Betis Lokaumferð La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, hófst í kvöld. Levante vann 4-2 útisigur á Rayo Vallecano og þá gerðu Spánarmeistarar Real Madríd markalaust jafntefli við bikarmeistara Real Betis. 20.5.2022 21:20
Roma tryggði Evrópudeildarsætið með fyrsta sigrinum síðan 10. apríl Lokaumferð Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, hófst í kvöld með einum leik. Lærisveinar José Mourinho gulltryggðu Evrópudeildarsæti sitt á næstu leiktíð með 3-0 útisigri á Torino. Tvö markanna komu úr vítaspyrnu. 20.5.2022 20:55
Stórskytta Arsenal áfram í Lundúnum: „Verðum að vinna titla“ Vivianne Miedema, ein albesta knattspyrnukona heims, hefur ákveðið að endursemja við Arsenal þrátt fyrir að vera orðið við lið á borð París Saint-Germain og Barcelona. Hún segir að Skytturnar verði að gera betur. 20.5.2022 20:15
Gæti leikið í ensku B-deildinni á næstu leiktíð Samningur Gareth Bale við Spánarmeistara Real Madríd rennur út í sumar. Samkvæmt fjölmiðlum ytra gæti hann tekið slaginn með Cardiff City í ensku B-deildinni á næstu leiktíð. 20.5.2022 19:31
Hörður Björgvin yfirgefur CSKA Moskvu í sumar Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon mun yfirgefa CSKA Moskvu í sumar. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum rússneska félagsins. 20.5.2022 18:30
Rosengård enn ósigrað Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård unnu 3-0 útisigur á Eskilstuna United í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 20.5.2022 18:01
Ráðherrar hræddir um að salan á Chelsea fari ekki í gegn Breska ríkisútvarpið greinir frá því að ráðherrar ríkistjórnar Bretlands telji að mögulega muni salan á enska fótboltafélaginu Chelsea ekki ganga í gegn. 17.5.2022 07:00
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti