Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Táningarnir Alejandro Garnacho og Kobbie Mainoo voru á skotskónum þegar Manchester United lagði nágranna sína í Man City í úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Þeir eru fyrstu táningarnir til að skora í úrslitaleik keppninnar síðan Cristiano Ronaldo gerði það árið 2004. 25.5.2024 22:31
Spánarmeistarar Real enduðu tímabilið á markalausu jafntefli Real Madríd gerði markalaust jafntefli við Real Betis í lokaumferð La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Nágrannar þeirra í Atlético lögðu Real Sociedad 2-0. 25.5.2024 21:31
PSG tvöfaldur meistari París Saint-Germain lagði Lyon 2-1 í úrslitum frönsku bikarkeppni karla í knattspyrnu. Var leikur kvöldsins að öllum líkindum síðasti leikur Kylian Mbappé fyrir félagið. Hann var ekki á skotskónum að þessu sinni. 25.5.2024 21:16
AC Milan missti niður unninn leik AC Milan gerði 3-3 jafntefli við Salernitana í lokaumferð Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Þjálfaralaust Juventus endaði tímabilið á sigri. 25.5.2024 20:50
Leverkusen bikarmeistari eftir vonbrigðin í Evrópu Bayer Leverkusen er þýskur bikarmeistari í knattspyrnu karla. Liðið stendur uppi sem bæði Þýskalandsmeistari sem og þýskur bikarmeistari eftir ótrúlegt tímabil þar sem eina tap liðsins kom gegn Atalanta í úrslitum Evrópudeildarinnar. 25.5.2024 20:20
Barcelona Evrópumeistari Barcelona er Evrópumeistari kvenna í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Mörkin má sjá í fréttinni. 25.5.2024 18:15
Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ „Þetta var síðasti möguleikinn á að ná einhverju jákvæðu út úr tímabilinu. Við vorum hér [í úrslitum ensku bikarkeppninnar] í fyrra en vorum ekki nægilega góðir þá og þurftum að horfa á þá taka við bikarnum,“ sagði Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, eftir 2-1 sigur á Englandsmeisturum Man City í úrslitum ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. 25.5.2024 16:51
Vitnaði í Wenger og segir reynslumikið lið mæta til leiks á EM Evrópumót karla í knattspyrnu fer fram 14. júní til 14. júlí í Þýskalandi. Lærisveinar Gareth Southgate í enska landsliðinu leika í C-riðli ásamt Slóveníu, Danmörku og Serbíu. Þjálfarinn vakti mikla athygli þegar hann valdi 33 manna úrtakshóp en alls má taka 26 leikmenn með sér á mótið. 23.5.2024 14:01
Hetja Atalanta í fámennan hóp og fagnaði svo innilega með mömmu sinni Ademola Olajade Alade Aylola Lookman reyndist hetja Atalanta þegar ítalska félagið varð fyrsta allra liða til að leggja Bayer Leverkusen af velli á leiktíðinni í úrslitaleik Evrópudeildar karla í fótbolta. 23.5.2024 12:30
Skilur ekki fullorðið fólk sem rífur Caitlin Clark niður LeBron James hefur fengið sig fullsaddan af því að sjá og hlusta á fullorðið fólk reyna að rífa Caitlin Clark, eina efnilegustu körfuboltakonu heims, niður með eilífu skítkasti. 23.5.2024 11:30