De Bruyne orðaður við nýtt félag í MLS Belgíski landsliðsmaðurinn og leikmaður Englandsmeistara Manchester City, Kevin De Bruyne, er orðaður við lið San Diego FC sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Hann ku vera áhugasamur að færa sig um set en það er þó ekkert fast í hendi að svo stöddu. 23.5.2024 11:01
Dallas leiðir eftir stórleik Luka og Kyrie Dallas Mavericks lagði Minnesota Timberwolves í fyrsta leik liðanna í úrslitum vesturhluta NBA-deildarinnar. Leikurinn var æsispennandi og á endanum skildu aðeins þrjú stig liðin að, lokatölur 108-105 Dallas í vil. 23.5.2024 10:30
Þjálfarakapall knattspyrnusumarsins 2024: Hver tekur við Brighton, Bayern, Chelsea eða þá Man United? Það virðist sem þjálfarakapall ársins ætli að vera sá lengsti í manna minnum. Nú þegar eru Chelsea, Bayern München og AC Milan í þjálfaraleit, Manchester United gæti farið sömu leið og þá er fráfarandi þjálfari Brighton & Hove Albion gríðarlega eftirsóttur. 23.5.2024 10:01
Íslendingarnir ekki meira með á leiktíðinni Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson missa báðir af síðustu leikjum Melsungen í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta. Um er að ræða mikið áfall fyrir félagið sem er í harðri baráttu um sæti í Evrópu á næstu leiktíð. 23.5.2024 09:30
Þrennan sem eyðilagði fullkomið tímabil Leverkusen Atalanta gerði sér lítið fyrir og vann Bayer Leverkusen fyrst allra liða á leiktíðinni þegar þau mættust í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fótbolta. Mörk leiksins má sjá í spilaranum hér að neðan. Þau koma öll frá sama manninum en gætu þó vart verið ólíkari. 23.5.2024 09:01
Lærisveinar Guðmundar í úrslit: Er eiginlega orðlaus Guðmundur Þ. Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia eru komnir alla leið í úrslitaeinvígið um danska meistaratitilinn í handbolta. Þetta varð ljóst eftir stórsigur liðsins á Íslendingaliði Ribe-Esbjerg í gærkvöld, miðvikudag. 23.5.2024 08:46
LaMelo kærður fyrir að keyra á ungan dreng Móðir ungs drengs í Charlotte í Bandaríkjunum hefur kært körfuboltamanninn LaMelo LaFrance Ball, leikmann Charlotte Hornets í NBA-deildinni, fyrir að keyra yfir fótinn á syni sínum þegar Ball var að keyra frá Spectrum-höllinni, heimavelli liðsins. 23.5.2024 08:30
Mahomes ekki sammála Butker en segir hann góða manneskju Patrick Mahomes, leikstjórnandi meistaraliðs Kansas City Chiefs, hefur tjáð sig um ummælin sem Harrison Butker, sparkari liðsins, lét falla á dögunum. 23.5.2024 08:00
Íslandsmeistarinn Sverrir Þór hættur með Keflavík Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Íslandsmeistara Keflavíkur í körfubolta kvenna, tilkynnti í viðtali við Körfuboltakvöld eftir sigur liðsins á Njarðvík í þriðja leik úrslita Subway-deildarinnar að hann væri hættur sem þjálfari liðsins. Íslandsmeistararnir eru því í þjálfaraleit fyrir komandi tímabil. 23.5.2024 07:31
Yfirmenn Pep fullvissir um að félagið verði ekki sakfellt Manchester City varð um helgina Englandsmeistari í fjórða sinn á fjórum árum. Það breytir því hins vegar ekki að sem stendur hefur félagið verið ákært fyrir 115 brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. 23.5.2024 07:00