Uppgötvuðu tugi nýrra sjávarlífvera við Tenerife Hópur vísindamanna hefur uppgötvað tugi nýrra sjávarlífvera undan ströndum Tenerife. Fjöldi nýrra tegunda kom vísindamönnunum á óvart. 21.1.2024 23:38
Leikarinn David Gail látinn Bandaríski leikarinn David Gail, sem var þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills, 90210 og Port Charles, er látinn 58 ára að aldri. Ekki er vitað hvernig andlát hans bar að. 21.1.2024 23:08
Kostulegur hvalaflutningur myndi toppa ráðuneytisflakk Bjarna Lögð verður fram vantrauststillaga á hendur Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á Alþingi í vikunni. Sigmundur Davíð furðar sig á því hvað Sjálfstæðismenn hafa beðið lengi eftir viðbrögðum VG vegna málsins. Hann gerir ráð fyrir að stjórnarandstaðan styðji tillöguna enda ekki verk hennar að styðja ríkisstjórnina. 21.1.2024 21:54
Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2024 fyrir ljóðið Verk að finna. Ljóðstafurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag. 21.1.2024 21:13
Ron DeSantis dregur framboð sitt til baka Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er hættur við að bjóða sig fram til embættis Bandaríkjaforseta. Hann lýsir yfir stuðningi við Donald Trump sem fulltrúa Repúblikana í forsetakosningunum sem fram fara í nóvember 21.1.2024 20:22
Vinnubrögðin ófagleg, gætu talist siðblind og beri vott um fégirni Foreldrar Bergs Snæs, fórnarlambs Sigga hakkara, segja danskt þáttargerðafólk ljúga til um að þættir um Sigurð hafi verið unnir með þeirra samþykki. Vinnubrögðin séu ófagleg og beri vott um fégirni. Kaup Stöðvar 2 á þáttunum sýni dómgreindarleysi sem jaðri við siðleysi. 21.1.2024 19:44
Segir almannavarnir fara offari og opna eigi Grindavík á ný Stefán Kristjánsson, eigandi fiskvinnslunnar Einhamar Seafood, segir aðgerðastjórn almannavarna fara offari í lokunum í Grindavík og að opna eigi bæinn á ný. 21.1.2024 18:59
Pískrað milli þingmanna að hvalveiðar verði færðar milli ráðuneyta Þingmaður Viðreisnar segir pískrað inni í Alþingi um að hvalveiðar verði færðar úr matvælaráðuneytinu yfir í umhverfisráðuneytið. Svandísi verði þannig forðað frá vantrausti í nafni náttúruverndar og um leið fái Sjálfstæðisflokkurinn stjórn á málaflokknum. 21.1.2024 18:17
Aukin átök og hækkandi spennustig í Mið-Austurlöndum Minnst fjórir meðlimir byltingarvarða íranska hersins voru drepnir í loftárás Ísraels á Damaskus, höfuðborgar Sýrlands í morgun. Nokkrir sýrlenskir hermenn voru einnig drepnir í árásinni að sögn íranskra yfirvalda. 20.1.2024 23:43
Kærir mbl til siðanefndar blaðamanna vegna skrifa um flóttamenn María Lilja Þrastardóttir hefur kært mbl til siðanefndar blaðamanna vegna fréttar um kæru á hendur palestínskum mótmælenda fyrir hatursorðræðu. María segir fréttina ekki setta fram af heiðarleika eða hlutleysi og gera saklausum mönnum upp alvarlegar sakir. 20.1.2024 22:43