Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði. 8.4.2026 20:24
„Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Jasveen Sangha, eða Ketamín-drottningin, hefur verið dæmd til fimmtán ára fangelsis fyrir að selja Friends-leikaranum Matthew Perry vímuefni sem hann neytti og leiddu til andláts hans. 8.4.2026 19:58
Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Rex Heuermann hefur játað að hafa myrt sjö konur sem tengjast áralangri rannsókn lögreglu á Gilgo-raðmorðingjanum í Bandaríkjunum. Auk þess viðurkenndi hann að hafa myrt aðra konu sem hann hafði ekki verið ákærður fyrir. Konurnar hurfu á milli 1993 og 2010. Rannsókn málsins spannar mörg ár en Heuermann var ekki grunaður fyrr en árið 2022. 8.4.2026 16:55
Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Stefán Jakobsson tónlistarmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. 8.4.2026 15:48
Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Háskóli Íslands og Landspítalinn halda ráðstefnuna Vísindi á vordögum á Hilton Nordica 8. og 9. apríl. 8.4.2026 11:41
Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Þann 9. maí 2026 stígur Yasiin Bey, betur þekktur sem Mos Def, á svið í Gamla Bíói í Reykjavík. Forsala hefst í dag, 8. apríl, en almenn miðasala þann 10. apríl. 8.4.2026 09:00
Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl. 7.4.2026 22:47
Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Samtök hernaðarandstæðinga boða til skyndimótmæla við bandaríska sendiráðið klukkan 17 á morgun, miðvikudaginn 8. apríl. Í tilkynningu segir að ræðumenn verði kynntir síðar. 7.4.2026 21:42
Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum og fyrrverandi sendiherra, segir erfitt að rýna í nýjustu yfirlýsingar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hafi á sínum forsetaferli gefið út ýmsar yfirlýsingar sem hann svo stendur ekki við. Það verði að gefa sér að það sama gildi nú. 7.4.2026 21:32
Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Útlit er fyrir að Miðflokkurinn, Viðreisn og Vinstrið verði í lykilstöðu ef mynda á þriggja flokka meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur í vor. Dreifing atkvæða á milli þeirra gæti ráðið miklu um hvort vinstri eða hægri meirihluti verður myndaður. 7.4.2026 19:17