Árásarmennirnir í London reyndu að leigja 7,5 tonna sendiferðabíl Mönnunum tókst ekki að framvísa fullnægjandi greiðsluupplýsingum og þeir sóttu aldrei bílinn. Þeir notuðust því við minni sendiferðabíl í árásinni í staðinn. 10.6.2017 13:39
Helstu ráðgjafar Theresu May segja af sér Nick Timothy og Fiona Hill, tveir nánustu ráðgjafar Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, hafa sagt af sér í kjölfar ósigurs Íhaldsflokksins í nýliðnum kosningum í Bretlandi. 10.6.2017 12:59
Nýtt íslenskt „boyband“ skipað skeggjuðum gleraugnaglámum Hin nýstofnaða íslenska strákahljómsveit Never2L8 vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína í styrktarþætti UNICEF, Degi rauða nefsins, sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi. Á meðal meðlima sveitarinnar eru grínistinn og myndasöguhöfundurinn Hugleikur Dagsson og sagnfræðingurinn Stefán Pálsson. 10.6.2017 11:27
Angela Merkel segir Evrópusambandið tilbúið til Brexit-viðræðna Angela Merkel kanslari Þýskalands segist ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að hefja viðræður um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu eins og áætlað var eftir að Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, náði ekki meirihluta í nýafstöðnum kosningum. 10.6.2017 10:44
Miklar götulokanir í miðbænum í dag vegna Color Run Slökkvilið og lögregla höfuðborgarsvæðisins biðja almenning um að virða götulokanir vegna hlaupsins og skilja bílana eftir heima eða nýta sér stæði við BSÍ og Landspítalann. 10.6.2017 09:49
Sérsveitir Bandaríkjahers aðstoða Filippseyjar Sérsveitir Bandaríkjahers hafa verið kallaðar út til að aðstoða filippeyska herinn, sem reynir nú að ná aftur yfirráðum yfir borginni Marawi á suðurhluta Filippseyja. 10.6.2017 09:33
Stöðva þurfti sýningu á Mamma Mia eftir alvarlega bilun í flugkerfi Alvarleg bilun varð í flugkerfi á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu í gærkvöld er sýning stóð yfir á sýningunni Mamma Mia. Stöðva þurfti sýningu vegna bilunarinnar en engin slys urðu á fólki. 10.6.2017 08:48
Tveir stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna Á þriðja tímanum var patý, sem farið hafði úr böndunum, stöðvað í Garðabæ. Frá þessu var greint í dagbók lögreglu höfuðborgarsvæðisins. 10.6.2017 08:30
Taylor Swift komin aftur á Spotify Tónlistarkonan Taylor Swift hefur snúið aftur á allar tónlistarveitur, þar á meðal Spotify, eftir tæplega þriggja ára fjarveru. Athygli vekur að þetta útspil söngkonunnar samtvinnast útgáfu nýjustu breiðskífu Katy Perry, sem kemur út í dag, en þær hafa lengi eldað grátt silfur saman. 9.6.2017 10:45
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga segist ekki hafa komið að tillögum um breytingar á hjúkrunarnámi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga segist ekki hafa komið að vinnu að tillögum um breytingar á námi í hjúkrunarfræði fyrir fólk með aðra háskólamenntun. Formaður félagsins segir algjört áhugaleysi yfirvalda hafa ríkt í málefnum hjúkrunarfræðinga en áréttar þó að þróun á námi sé liður í fjölgun hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsum landsins. Fyrrverandi formaður segir kjör hjúkrunarfræðinga vandamálið, ekki aðsókn í námið. 8.6.2017 11:45