Bandaríkin leggja refsiaðgerðir á forseta Venesúela Bandarísk fyrirtæki og einstaklingar mega ekki eiga nein viðskipti við Nicolas Maduro, forseta Venesúela, samkvæmt refsiaðgerðum sem Hvíta húsið tilkynnti um í dag. Aðgerðirnar eru viðbragð við atkvæðagreiðslu sem fór fram í Venesúela um helgina sem er talin tilraun Maduro til að sölsa undir sig frekari völd. 31.7.2017 19:49
Trump rekur samskiptastjóra Hvíta hússins eftir aðeins tíu daga starf Nýr starfsmannastjóri Hvíta hússins er sagður hafa krafist þess að Donald Trump forseti léti Anthony Scaramucci, orðljótan samskiptastjóra Hvíta hússins, fara. Trump hefur nú rekið Scaramucci. 31.7.2017 18:51
Næsta þætti af Game of Thrones stolið í tölvuinnbroti hjá HBO HBO segist hafa orðið fyrir tölvuinnbroti og þjófarnir hafi stolið efni. Entertainment Weekly segir að næsti þáttur Game of Thrones sé á meðal þýfisins. 31.7.2017 18:35
Pence ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Eystrasaltslöndin Varaforseti Bandaríkjanna kallaði Rússa stærstu öryggisógnina sem steðjar að Eystrasaltslöndunum í opinberri heimsókn þar í dag. Tók hann af öll tvímæli um að Bandaríkjamenn kæmu löndunum til varnar gegn yfirgangi nágrannanna í austri. 31.7.2017 18:04
Fjársvikamál Shkreli lagt í dóm Hataðasti maður internetsins, Martin Shkreli, bíður nú dóms í fjársvikamáli. Hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur. 31.7.2017 17:36
Norður-kóresk eldflaug sögð hafa lent í landhelgi Japans Neyðarfundur hefur verið boðaður í þjóðaröryggisráði Japans eftir að Norður-Kóreumenn skutu eldflaug á loft sem hafnaði innan landhelgi Japans. 28.7.2017 15:57
Vísbendingar um fyrsta fjartunglið í fjarlægu sólkerfi Fjartungl sem vísindamenn hafa séð vísbendingar um gæti verið á stærð við Neptúnus, margfalt stærri en nokkurt tungl í sólkerfinu okkar. Tungl eru talin mikilvæg fyrir lífvænleika reikistjarna en ekkert slíkt hefur fundist utan sólkerfis okkar enn sem komið er. 28.7.2017 15:37
Einn látinn í árás í matvöruverslun í Hamborg Einn maður er sagður látinn og nokkrir aðrir sárir eftir að árásarmaður réðist á fólkið í matvöruverslun í þýsku borginni Hamborg. Dagblaðið Bild segir að hann hafi ráðist að viðskiptavinum verslunarinnar með hnífi að handahófi. 28.7.2017 15:00
Pólska stjórnarandstaðan mælist stærri en stjórnarflokkarnir Fjarað hefur undan stuðningi við pólsku ríkisstjórninni eftir að forseti landsins beitti neitunarvaldi gegn umdeildum breytingum á dómstólum. Ný könnun sýnir stjórnarandstöðuna með meiri stuðning en ríkisstjórnina. 28.7.2017 14:30
Tæpur helmingur repúblikana vill að stjórnvöld geti lokað fjölmiðlum Verulegur stuðningur virðist vera við að ríkisvaldið eigi að geta lokað fjölmiðlum í Bandaríkjunum. Stuðningurinn er áberandi mestur á meðal repúblikana, mögulega vegna sleitulausra árása Donalds Trump forseta á fjölmiðla. 28.7.2017 13:44