Nákvæmustu loftslagslíkönin spá verstu afleiðingunum Þegar miðað er við áframhaldandi mikla losun spá líkön sem lýsa best núverandi aðstæðum í loftslagi jarðar um 15% meiri hlýnun en önnur. 7.12.2017 14:44
Refsiaðgerðum haldið áfram þar til Rússar draga sig frá Úkraínu Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kenndi Rússum um átökin í Úkraínu og hvatti þá til að hætta að ógna sendinefndum ÖSE. 7.12.2017 12:45
Óttast að sterkir vindar geri eldana í Kaliforníu enn verri Veðurspár gera ráð fyrir að bæti í vind í sunnanverðri Kaliforníu í dag og gætu eldarnir sem þar geisað því breiðst enn hraðar út. 7.12.2017 11:27
Ungverskur Evrópuþingmaður ákærður fyrir njósnir fyrir Rússa Honum er gefið að sök að hafa njósnað um ESB auk skjalafals og fjársvika. 7.12.2017 10:31
Flynn fullyrti að refsiaðgerðir gegn Rússum yrðu „tættar í sundur“ Framburður vitnis bendir til þess að ríkisstjórn Donalds Trump hafi ætlað að afnema refsiaðgerðir gegn Rússum sem voru meðal annars settar á vegna afskipta þeirra af forsetakosningunum í Bandaríkjunum. 7.12.2017 09:42
Flestir þeirra sem Trump tilnefnir í vísindastöður eru ekki með æðri vísindamenntun Þeir sem eru með æðri menntun í vísindum hafa í mörgum tilfellum verið tengdir iðnaðinum sem þeir eiga nú að hafa eftirlit með fyrir hönd stjórnvalda. 6.12.2017 16:15
Lítið gengur að ráða við loftmengun á Indlandi Mengunin er svo mikil yfir Nýju-Delí að krikketleikmenn hafa ælt á miðjum vellinum. 6.12.2017 14:32
Rússar æfir yfir vetrarólympíuleikabanni Bannið byggir á ásökunum um að rússnesk stjórnvöld hafi skipulagt umfangsmikið lyfjasvindl íþróttamanna sinna. 6.12.2017 12:55
Lögmaður Trump neitar því að Deutsche Bank hafi fengið stefnu Greint hefur verið frá því að sérstakur rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins hafi krafið bankann um gögn um reikninga Trump-fjölskyldunnar. 6.12.2017 12:01
Breska ríkisstjórnin hefur ekki látið meta áhrif Brexit „Það er ekkert kerfisbundið mat á áhrifum til,“ sagði Brexit-ráðherra bresku ríkisstjórnarinnar þegar hann sat fyrir svörum í þinginu í morgun. 6.12.2017 11:20