Ríkasti maður heims sakar götublað um kúgun með vandræðalegum myndum Jeff Bezos, eigandi Amazon og Washington Post, segir að forsvarsmenn stórs götublaðs sem tengist Trump forseta hafi hótað að birta af honum kynferðislegar myndir ef hann léti ekki af rannsókn á hvernig blaðið komst yfir smáskilaboð hans. 8.2.2019 07:52
May komin til Brussel að ræða baktrygginguna Ekki er búist við miklum árangri af nýjustu viðræðum breska forsætisráðherrans við evrópska ráðamenn í dag. 7.2.2019 11:28
Facebook skipað að breyta gagnasöfnun sinni Þýsk samkeppnisyfirvöld segja að Facebook verði að leita samþykkis notenda fyrir að framsali upplýsinga frá öðrum snjallforritum og vefsíðum. 7.2.2019 10:59
Fangelsisdómur fyrrverandi forseta Brasilíu tvöfaldaður Lula da Silva var talinn hafa þegið veruleg hlunnindi frá byggingarfyrirtæki þegar hann var forseti og var dæmdur í tæplega 13 ára fangelsi ofan á 12 ára dóm sem hann afplánar fyrir. 7.2.2019 08:29
Íhaldsmaður ákærður í tengslum við rússneskan njósnara Kærasti Mariu Butina, konu sem viðurkenndi njósnir fyrir Rússa, var ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti. 7.2.2019 07:56
2018 var fjórða hlýjasta árið frá upphafi mælinga Bandarískar vísindastofnanir kynntu niðurstöður hitamælinga á jörðinni fyrir síðasta ár. Hlýnun frá upphafi iðnbyltingar nemur um einni gráðu að meðaltali. 7.2.2019 07:28
Danskur vottur Jehóva í sex ára fangelsi í Rússlandi Rússneskir dómstólar hafa dæmt votta Jehóva ólögleg öfgasamtök og handtekið tugi meðlima. 6.2.2019 11:17
Páfi viðurkennir að prestar níðist á nunnum Ásakanir um kynferðislega misnotkun presta á nunnum hafa verið á kreiki undanfarin ár en þetta er talið í fyrsta skipti sem páfi gengst við þeim opinberlega. 6.2.2019 10:40
Fyrrverandi forseti Kosta Ríka sakaður um kynferðisbrot Tvær konur hafa stigið fram og sakað Óscar Arias Sánchez um að hafa þuklað á sér og áreitt. 6.2.2019 08:29
Trump sagði frá nýjum fundi með Kim í stefnuræðu sinni Bandaríkjaforseti kom víða við í stefnuræðu sinni. Þrátt fyrir að hafa alið á sundrungu eins og fáir aðrir stjórnmálamenn hafa gert var eitt meginstefa ræðunnar að kalla eftir einingu. 6.2.2019 07:37