Kínversk kona handtekin í klúbbi Trump á Flórída Minniskubbur með tölvuóværu fannst í fórum konunnar. Trump var við golfleik við Mar-a-Lago þegar konan var handtekin. 3.4.2019 08:06
Trudeau rekur uppljóstrara úr eigin flokki Tvær þingkonur sem hafa sakað kanadíska forsætisráðherrann um óeðlileg afskipti af sakamáli hafa verið reknar úr flokki hans. 3.4.2019 07:45
Brúnei leggur dauðarefsingu við samkynhneigð Sameinuðu þjóðirnar segja að sjaríalögin í landinu séu alvarlegt bakslag fyrir mannréttindi. 3.4.2019 07:28
Leitað á skrifstofum Swedbank í Eistlandi Rannsókn á peningaþvættishneyksli heldur áfram. 2.4.2019 14:23
Lok Rússarannsóknarinnar hafa lítil áhrif á vinsældir Trump Ef marka má þær kannanir sem gerðar hafa verið eftir að tilkynnt var um lok rannsóknarinnar hefur nær engin breyting orðið á ánægju Bandaríkjamanna með störf forsetans. 2.4.2019 13:06
Ryanair í hóp stærstu mengunarvalda í Evrópu Flugfélagið er eina fyrirtækið sem ekki tengist bruna á brúnkolum sem kemst á lista Evrópusambandsins yfir stærstu losendur gróðurhúsalofttegunda í Evrópu. 2.4.2019 10:35
Trump-liðar hunsuðu sérfræðinga um öryggisheimildir Sérfræðingar synjuðu að minnsta kosti 25 umsóknum vegna hættu á kúgun eða erlendum áhrifum. Yfirmenn í Hvíta húsinu virtu þær áhyggjur að vettugi og veittu öryggisheimildirnar. 2.4.2019 09:00
Önnur kona sakar Biden um óviðeigandi snertingu Konan segir að fyrrverandi varaforsetinn hafi togað hana að sér til að þau nudduðu saman nefjum á fjáröflunarviðburði í Connecticut árið 2009. 2.4.2019 08:15
Segir hægt að komast hjá útgöngu án samnings Tíu dagar eru í að Bretar gangi úr Evrópusambandinu. Þingið felldi allar tillögur um valkosti í stöðunni í gær. Samningamaður ESB segir líkur á útgöngu án samnings aukast dag frá degi. 2.4.2019 07:51
Varað við hvassviðri á Suðausturlandi fram yfir hádegi Draga á úr vindi og stytta upp eftir hádegið. 2.4.2019 07:28