Greiddu unglingum til að dreifa áróðri til stuðnings Trump Ungliðahreyfing íhaldsmanna í Bandaríkjunum sem er hliðholl Donald Trump forseta hefur undanfarið greitt unglingum og ungmennum til þess að dreifa áróðri sem styður mál forsetans á samfélagsmiðlum. 16.9.2020 16:48
Saka stjórn Maduro um glæpi gegn mannkyninu Rannsakendur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fullyrða að ríkisstjórn Nicolás Maduro, forseta Venesúela, sé sek um „svívirðileg“ brot sem falli undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyninu. 16.9.2020 15:43
Ræða um að greiða milljarða til að láta FIFA-sakir hverfa Svissneski bankinn Julius Bär gæti greitt bandarískum yfirvöldum jafnvirði milljarða íslenskra króna í sátt til að losna undan ásökunum um aðild að spillingarmáli Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA). 16.9.2020 10:18
Lúkasjenkó sló milljarða lán hjá Pútín Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hét því að lána Hvíta-Rússlandi 1,5 milljarða dollara í lán þegar þeir Alexander Lúkasjenkó starfsbróðir hans hittust við Svartahaf í dag. 14.9.2020 16:32
Fundu fullkomlega varðveittan ísaldarbjörn í Síberíu Hreindýrahirðar í Síberíu fundu fullkomlega varðveitt hræ hellisbjarnar, útdauðrar bjarnartegundar frá ísöld, í þiðnandi sífrera. 14.9.2020 15:55
Fundu mögulegar vísbendingar um líf á Venusi Gastegund sem gæti verið afurð örvera fannst við rannsóknir á reikistjörnunni Venusi. Vangaveltur hafa lengi verið uppi um að líf gæti mögulega þrifist í efri lögum lofthjúps reikistjörnunnar en þetta er í fyrsta skipti sem mögulegar vísbendingar um líf þar hafa fundist. 14.9.2020 15:00
Navalní sagður á batavegi Þýskir læknar segja að Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, sé á batavegi eftir að honum var byrlað taugaeitur í Rússlandi. Navalní sé laus úr öndunarvél og hann geti nú risið úr rekkju í skamman tíma í einu. 14.9.2020 13:38
Berlusconi laus af sjúkrahúsi og hvetur fólk til að taka faraldurinn alvarlega Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu var útskrifaður af sjúkrahúsi þar sem hann var til meðferðar vegna Covid-19. Hann lýsir lífsreynslunni sem „hættulegustu áskorun“ lífs síns og hvetur fólk til þess að taka faraldrinum alvarlega. 14.9.2020 13:08
Allir núlifandi forsætisráðherrar gagnrýna Johnson David Cameron varð fimmti fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands til þess að gagnrýna áform Boris Johnson, forsætisráðherra, um að brjóta útgöngusamninginn sem hann gerði sjálfur við Evrópusambandið. Breska þingið greiðir atkvæði um frumvarp þess efnis síðar í dag. 14.9.2020 11:03
Evrópulönd taka við 400 börnum frá Moria Um fjögur hundruð börnum sem bjuggu í Moria-flóttamannabúðunum á grísku eyjunni Lesbos verður fundið hæli annars staðar í Evrópu eftir að búðirnar brunnu því sem næst til grunna í tveimur eldsvoðum í vikunni. 11.9.2020 16:37