Uppljóstrar um hálfrar aldar gamalt framhjáhald fyrrum forsætisráðherra 96 ára gamall maður að nafni Joe Haines, sem starfaði um árabil sem fjölmiðlafulltrúi forsætisráðuneytis Bretlands, hefur nú opinberað framhjáhald Harolds Wilson fyrrum forsætisráðherra Breta. Að sögn Haines hélt ráðherrann við Janet Hewlett-Davies, sem var aðstoðarfjölmiðlafulltrúi í Downingstræti 10, og var 22 árum yngri en Wilson. Þau voru bæði gift. 11.4.2024 11:07
Í steininn fyrir að stela dagbók dóttur Bandaríkjaforseta Dómari í New York-ríki Bandaríkjanna hefur dæmt konu, Aimee Harris, í mánaðar fangelsi fyrir að stela dagbók og öðrum persónulegum munum í eigu Ashley Biden, dóttur Joe Biden Bandaríkjaforseta. 10.4.2024 22:32
Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“ Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum. 10.4.2024 20:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók til starfa í dag og ráðherrar komu sér fyrir í nýjum ráðuneytum. Á Alþingi sköpuðust heitar umræður um yfirlýsingu forsætisráðherra og mótmælandi var fjarlægður af þingpöllum. Við sjáum myndir frá viðburðaríkum degi í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þingmenn í beinni útsendingu. 10.4.2024 18:01
Betur fór en á horfðist Ástand manns sem lenti undir þakplötu í vinnuslysi á Völlunum í Hafnarfirði í dag er gott eftir atvikum, segir Þorsteinn Gunnarsson, aðstoðarvarstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 10.4.2024 16:57
Óku í hlið bíls til að stöðva ofsaakstur á Akranesi Ungur karlmaður hlaut á dögunum þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna tveggja brota. Annars vegar var hann ákærður fyrir að hrækja á andlit lögreglumanns. Hins vegar var honum gefið að sök að stela bíl og aka honum ansi glæfralega, þangað til lögregla stöðvaði för hans með því að keyra í hlið bílsins. 10.4.2024 08:00
Þóttist vera annar maður í þrjá áratugi Bandarískur karlmaður að nafni William Woods hefur verið til mikillar umfjöllunar í fjölmiðlum um allan heim síðustu daga. Ástæðan er sú að annar maður hefur þóst vera Woods í marga áratugi og safnað upp gríðarlegum skuldum í nafni hans. Fyrir vikið varð Woods heimilislaus um tíma, honum var stungið í steininn og lokaður á geðsjúkrahúsi. 10.4.2024 00:06
Myndaveisla: Endurnýjuð ríkisstjórn hefur verið mynduð Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar var formlega mynduð í kvöld á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Þá endurstaðfesti Guðni Th. Jóhannesson lausnarbeiðni Katrínar Jakobsdóttur úr forsætisráðuneytinu. 9.4.2024 22:06
Ávarp Guðna: Greinamunur á að vera skráður á Ísland.is og vera í framboði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði fjölmiðla að loknum fyrri ríkisráðsfundi af tveimur sem fara fram á Bessastöðum í kvöld. 9.4.2024 20:28
„Ekki biðja um að þetta sé auðvelt“ Bjarni Benediktsson, sem verður skipaður forsætisráðherra á eftir, segir að það liggi vel á sér. Hann segir að sitt fyrsta verk í nýja ráðuneytinu verði að stilla sama strengi við aðra ráðherra endurnýjaðrar ríkisstjórnar. Honum þyki mikilvægt að byrja vel. 9.4.2024 19:32