Epstein sem Drakúla endurfæddur Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona ritar afar athyglisverða grein sem hún birtir á Vísi undir yfirskriftinni: Hvernig höfnum við blóðsugu-hagkerfi heimsins og sameinumst um uppvaxtar-hagkerfi. Hún telur Epsteinmálið tilefni til vakningar, sem reyndar langafi hennar hafði boðað fyrir margt löngu síðan. 17.2.2026 11:38
Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Bæði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu vöruðu við nýju frumvarpi um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. 17.2.2026 10:29
„Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins gerði tilraun í fyrirspurnartíma á Alþingi til að fá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra til að staldra við varðandi frumvarp um tengingu örorkubóta við vísitölu. Kristrún sagðist engar áhyggjur hafa af málinu, hún fagni því. 16.2.2026 16:11
Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Upptaka úr tíma Arnars Eggerts Thoroddsen, doktors í rokktónlist, úr seminari sem hann heldur um hlaðvörp við Háskóla Íslands, hefur lekið út. Þar heyrist hann segja um hópverkefni sem fjallar um Blökastið: „Á ekki örugglega að taka þessa menn af lífi?“ 16.2.2026 13:33
Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogi segir um mistök í stjórnsýslunni að ræða og lækkunin sem ákveðin var í apríl í fyrra hafi ekki komist til framkvæmda. En um leið og þetta uppgötvaðist var haft samband við bæjarfulltrúa og þeim tjáð að þeir hafi fengið ofreiknuð laun eða þóknun og þurfi því að endurgreiða þóknunina. 16.2.2026 11:14
Dreymir um að hræða íslenska þjóð upp úr skónum Bragi Þór Hinriksson kvikmyndaleikstjóri stendur í ströngu. Hann er að ganga frá myndinni Röskun en nú lítur út fyrir að hún verði eina „fullorðinsmyndin“ af þessari stærðargráðu sem frumsýnd verður á árinu. 14.2.2026 07:03
Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Ómar R. Valdimarsson hæstaréttarlögmaður segist nokkrum sinnum hafa verið með mál þar sem fólk hafi leitað til hans með slíkan vanda; það var á löglegum ADHD-lyfjum en svipt bílprófi vegna amfetamínneyslu. Ástæðan: Það var ekki með læknisvottorð. Ómar segir stífa dómaframkvæmd vegna mála af þessu tagi. 13.2.2026 11:52
Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. 12.2.2026 16:50
Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Enginn friður er í sjónmáli um nýtt lagareldisfrumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Reyndar virðist hitna í kolum fremur en hitt. Ummæli Tryggva Felixsonar, fyrrverandi formanns Landverndar, um Jóhann Pál Jóhannsson umhverfisráðherra hafa vakið verulega athygli. 12.2.2026 10:36
Margrét, Elín, Kristín og Sigrún auk Ævars Þórs fá bókmenntaverðlaun Íslensku bókmenntaverðlaununum auk Blóðdropans voru veitt að Bessastöðum nú rétt í þessu með pompi og prakt. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn. 11.2.2026 21:02