Ritstjóri

Hörður Ægisson

Hörður er ritstjóri Innherja.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Feikna góð“ niður­staða og rekstrar­hagnaður Krónunnar jókst um fjórðung

Afkoma Festi á fyrsta fjórðungi ársins var í meginatriðum í takt við væntingar greinenda þar sem „feikna góð niðurstaða“ í rekstrarhagnaði Krónunnar og Elko náði að vega upp á móti samdrætti í eldsneytissölu. Horfur í rekstri eru sagðar ágætar þrátt fyrir mikla óvissu í efnahags- og alþjóðamálum.

Verðbólguþróunin í rétta átt og ætti að slá út af borðinu stóra vaxta­hækkun

Verðbólgumælingin í apríl reyndist vera í lægri kantinum miðað við meðalspá sex greinenda og ólíkt þróun síðustu mánaða voru verðhækkanir ekki á breiðum grunni, en undirliðir á borð við mat, drykk, fatnað og húsgögn stóðu nánast í stað. Skuldabréfafjárfestar brugðust vel við verðbólgutölunum sem ættu að slá út af borðinu vangaveltur um að Seðlabankinn hækki vextina um 50 punkta á næsta fundi.

Af­koman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri elds­neytis­kostnaðar

Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.

Má búast við „gífur­legri“ eftir­spurn er­lendra aðila að komast í kvóta hér á landi

Eftirspurn meðal erlendra félaga í að komast yfir aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækja verður „gífurleg“ ef Ísland gengur í Evrópusambandið, að mati sérfræðinga Arctica Finance, en þar er mikill meðbyr í átt að frekari samþjöppun í greininni. Hlutabréfaverð sjávarútvegsfélaga í Kauphöllinni rauk upp eftir greiningu verðbréfafyrirtækisins en þar var bent á að fjárhagslegt virði kvóta þeirra ætti sennilega eftir að „aukast verulega“ við inngöngu í ESB.

Guð­jón leiðir hóp fjár­festa sem kaupa allt hluta­fé í Svens

Breiður hópur einkafjárfesta, leiddur af Guðjóni Kjartanssyni, hefur nýlega gengið frá samkomulagi um kaup á öllu hlutafé í Svens, stærstu nikó­tín­púðaversl­un­ landsins. Félagið hefur vaxið ört á undanförnum árum og skilaði nærri 400 milljóna rekstrarhagnaði í fyrra.

Fjár­festar halda á­fram að minnka stöðu sína í hluta­bréfa­sjóðum

Fjárfestar héldu áfram að selja sig út úr hlutabréfasjóðum í nokkuð stórum stíl í liðnum mánuði á sama tíma og markaðir lækkuðu skarpt eftir stríðsátökin við Persaflóa. Eignir innlendra hlutabréfasjóða hafa ekki verið minni að umfangi frá því á haustmánuðum ársins 2024.

Verðmat Síldar­vinnslunnar hækkar veru­lega og væntingar um met­ár í tekjum

Horfur í sjávarútvegi á þessu ári eru „mjög góðar“, sem litast meðal annars af væntingum um áframhaldandi hátt afurðaverð samhliða sterkri eftirspurn, og hafa greindur því hækkað verðmat sitt á Síldarvinnslunni um nærri fimmtung. Hagfelld ytri skilyrði og ágætis loðnuvertíð gæti orðið til þess að 2026 verði metár í tekjum sjávarútvegsfyrirtækja en rekstrarhagnaðarhlutföll eru samt líkleg til að lækka vegna hærri veiðigjalda.

Heimilin óttast við­varandi háa verð­bólgu og flykkjast í fasta óverð­tryggða vexti

Á allra síðustu mánuðum hafa orðið talsvert umskipti á lánamarkaði en samhliða því að væntingar í efnahagslífinu hafa breyst til hins verra, með auknum líkum á þrálátri verðbólgu og háum stýrivöxtum, hafa heimilin brugðist við með því að færa sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum. Hrein ný lántaka heimila á slíku lánaformi hefur aldrei mælst meiri en í liðnum mánuði.

Fram­taks­sjóður að ganga frá kaupum á sam­lokurisanum Sóma

Samlokurisinn Sómi, sem hefur vaxið ört á undanförnum árum og árlegar tekjur samstæðunnar nema orðið um sex milljörðum, er að skipta um eignarhald en unnið er núna að því að ljúka við sölu á félaginu til innlends framtakssjóðs sem er að mestu í eigu lífeyrissjóða.

Sjá meira