Starfsmenn og íbúar dvalarheimila fremstir í forgangsröðinni Ráðgefandi nefnd við bandarísku sóttvarnastofnunina (CDC) hefur gefið út hvaða forgangsröðun hún vill viðhafa þegar bólusetningar við Covid-19 hefjast vestanhafs. 2.12.2020 06:16
Barr kannast ekki við svindl og Giuliani ekki við náðunarspjall William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir engar vísbendingar liggja fyrir um að stórfelld kosningasvik hefðu átt sér stað í nýafstöðnum forsetakosningum. „Hingað til höfum við ekki séð svindl af þeirri stærðargráðu að það hefði leitt til annarra úrslita í kosningunum,“ sagði Barr í viðtali við Associated Press. 1.12.2020 22:42
„Hentar ekki málstað sumra að ræða málefnalega um niðurstöðuna“ Í „pólitískum átökum“ um skipan Landsréttar gleymist oft að ræða hið eiginlega mál sem sem Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp dóm um í dag. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook. 1.12.2020 21:20
Eiga tvær heilbrigðar dætur eftir að hafa ættleitt áratugagamla fósturvísa Molly og Emma eru heilbrigðar, yndislegar dætur Tinu og Ben Gibson. Molly fæddist í október sl. en Emma í nóvember 2017. Og hvað er svona merkilegt við það? Jú, báðar komu í heiminn eftir að Tina og Ben ættleiddu fósturvísa sem höfðu verið frosnir í 24 ár í tilviki Emmu og 27 ár í tilviki Molly. 1.12.2020 20:38
Níu mánaða barn meðal látnu Fjórir eru látnir eftir að maður ók bifreið inn á göngugötu í borginni Trier í Þýskalandi í dag. Meðal látnu er níu mánaða gamalt barn. Lögregla hefur handtekið 51 árs gamlan mann en hann er sagður hafa verið undir áhrifum áfengis. 1.12.2020 19:54
Vísar ábyrgðinni á hendur Alþingi Það er vitleysa að „mylja eigi niður Hjörleifshöfðann fyrir námuvinnslu“. Þetta segir Einar Freyr Elínarson, oddviti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps, í færslu sem hann birti á Facebook fyrir stundu. 1.12.2020 19:23
Rússnesk yfirvöld handsama „Volgu-brjálæðinginn“ Rússnesk lögregluyfirvöld segjast hafa klófest mann sem myrti að minnsta kosti 26 konur á árunum 2011 og 2012. Var morðinginn þekktur undir viðurnefninu „Volgu-brjálæðingurinn“. 1.12.2020 19:02
Ekki verjandi að hverfa frá niðurskurðaraðgerðum Matvælastofnun telur líklegt að riðusmit sé til staðar í hjörðinni á Syðri-Hofdölum og því ekki verjandi að hverfa frá aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST vegna andmæla landbúnaðarnefndar Skagafjarðar. 1.12.2020 18:33
Leikarinn Elliot Page úr Juno er trans Leikarinn Ellen Page hefur greint frá því að hán sé trans og gengur nú undir nafninu Elliot. Page, sem sló í gegn í myndum á borð við Juno og Inception, sagðist í stöðufærslu á Twitter vera „heppið“ að vera komið á þann stað sem hán væri á í dag. 1.12.2020 18:14
Daði Freyr í jólarómans Evróvisjón-farinn Daði Freyr frumsýndi í dag nýtt myndband við jólalagið Every Moment Is Christmas With You. Þar er hefðbundið jólahald og yndislegar stundir með fjölskyldu og vinum í forgrunni... en með smá tvisti. 1.12.2020 17:44