Skjálfti af stærðinni 3,5 í Fagradalsfjalli Á síðustu klukkustund hafa sex skjálftar yfir þrír á stærð mælst við Fagradalsfjall. Skjálftanna hefur orðið vart í Grindavík en samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands eru engin merki um gosóróa. 9.3.2021 20:35
Tíu hross drepist úr hestaherpesveiru eftir hópsmit á Spáni Matvælastofnun áminnir þá sem hafa tengsl við hestamennsku erlendis eða taka á móti einstaklingum að utan í tengslum við hestamennsku innanlands að fara varlega, sinna sóttvörnum og fara að reglum um innflutning búnaðar. 9.3.2021 20:20
Þrír úrskurðaðir í fjögurra vikna farbann í tengslum við morðið í Rauðagerði Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag farbann yfir þremur einstaklingum í tengslum við morðið í Rauðagerði. Voru einstaklingarnir þrír úrskurðaði í fjögurra vikna farbann, eða til þriðjudagsins 6. apríl. 9.3.2021 19:57
Enginn Morgan á morgnana í kjölfar ummæla um Meghan Sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan hefur ákveðið að hætta sem einn þáttastjórnenda Good Morning Britain, eftir uppákomu í þættingum í gærmorgun þegar viðtal hertogahjónanna Harry og Meghan við Oprah Winfrey bar á góma. 9.3.2021 19:03
Kynferðisbrota- og heimilisofbeldismál verða ekki undir í vinnu Jóns Steinars Vinna Jóns Steinars Gunnlaugssonar fyrir dómsmálaráðuneytið mun ekki snúa að málaflokkum er varða kynferðisbrot eða heimilisofbeldi. Þetta staðfestir Áslaug Arna Sigurbjörsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við Vísi. 9.3.2021 18:24
Segja dómsmálaráðherra senda konum kaldar kveðjur Kvenréttindafélag Íslands og Stígamót segja Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra senda konum kaldar kveðjur með því að fela Jóni Steinari Gunnlaugssyni að vinna að nauðsynlegum umbótum í réttarkerfinu. 9.3.2021 17:38
„Ekki fallegt ásýndar“ að reyna að svindla sér framar, segir Kári „Það er sérstaklega ógnvekjandi að vita af þessum tveimur sem greindust utan sóttkvíar en ég hef fulla trú á því að okkur takist að ná utan um þetta og ég reikna ekki með að þetta verði stór bylgja,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri deCODE, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. 9.3.2021 17:19
„Hann gerði þetta ekki“: Íslendingur sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu „Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég trúi ekki að þetta sé að gerast,“ segir Nikolina Grnovic en faðir hennar Savo var handtekinn í Frankfurt á fimmtudag. Hann er sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu árið 1991. 6.3.2021 14:32
Öllum stafar ógn af ríkjum í afneitun og feluleik Þrjú ríki virðast í afneitun eða feluleik þegar kemur að Covid-19 og hafa ekki deilt upplýsingum um stöðu mála. Umrædd ríki eru Tansanía, Túrkmenistan og Norður-Kórea en sérfræðingar segja áhyggjuefni að SARS-CoV-2 fái mögulega að grassera óáreitt á ákveðnum stöðum. 5.3.2021 14:28
Mannapar í San Diego bólusettir gegn Covid-19 Níu mannapar í dýragarðinum í San Diego hafa verið bólusettir gegn Covid-19. Um er að ræða fjóra órangúta og fimm simpasa, sem hafa fengið tvo skammta af bóluefni frá Zoetis, fyrirtæki sem framleiðir lyf fyrir dýr. 5.3.2021 12:38