Vald Sjálfstæðisflokksins byggi á þjónkun annarra flokka Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segir Sjálfstæðisflokkinn ekki í neinum tengslum við meginþorra almennings en sækja sterka stöðu sína til „þjónkunnar forystu annarra flokka við auðvaldið“. 10.8.2021 08:32
Sjálfsvígum fjölgar í Kenía Nærri 500 manns hafa tekið eigið líf í Kenía það sem af er ári en allt árið í fyrra nam fjöldinn 320. Yngsta manneskjan var níu ára og sú elsta 76 ára, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti landsins. 10.8.2021 08:07
Ísland komið í hæsta áhættuflokk vestanhafs Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) ráðleggur Bandaríkjamönnum nú alfarið frá ferðalögum til Íslands vegna stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi. Ísland er nú komið í hæsta áhættuflokk; orðið „rautt“ í bókum vestanhafs. 10.8.2021 07:01
Fluttur á Landspítala eftir hópárás Lögregla var kölluð á vettvang rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi þegar tilkynnt var um líkamsárás í miðborginni. Þar hafði hópur manna ráðist á mann, með þeim afleiðingum að hann verkjaði um allan líkamann. 10.8.2021 06:34
Kraumandi kvika og stríður hraunelgur Magnað myndband af kraumandi kviku og stríðum hraunelg náðist þegar flogið var yfir eldgosið í Fagradalsfjalli í gær. „Gígurinn er barmafullur af kviku og byrjað að flæða yfir barmana,“ segir á Facebook-síðu Eldfjallafræði og náttúruvárhóp Háskóla Íslands. 10.8.2021 06:22
Nýtt gosop að myndast: Hraunið gæti mögulega runnið niður í Geldingadali Svo virðist sem nýtt gosop sé að taka á sig mynd í eldgosinu í Fagradalsfjalli en það sést vel á vefmyndavélum. Of snemmt er að segja til um hvort um er að ræða nýjan gíg. 9.8.2021 12:21
Framleiðandi Marlboro býður yfir milljarð punda í úðalyfjafyrirtæki Tóbaksrisinn Philip Morris hefur hækkað tilboð sitt í lyfjafyrirtækið Vecture eftir að keppinauturinn, Carlyle-fjárfestingasjóðurinn, bauð 958 milljónir punda. Boð Philip Morris hljóðar upp 1,65 pund á hlut, eða yfir einn milljarð punda. 9.8.2021 11:06
Átta ára drengur í lífshættu eftir að hafa verið ákærður fyrir guðlast Átta ára drengur er nú undir öryggiseftirliti lögreglu í Pakistan, eftir að hafa verið handtekinn fyrir að pissa á mottu í íslömskum skóla. Drengurinn, hvers fjölskylda er hindúatrúar, er yngsta manneskjan í sögu landsins til að vera ákærð fyrir guðlast. 9.8.2021 08:51
Yfirmaður hjá Alibaba sakaður um að nauðga starfsmanni Forsvarsmenn kínverska netsölurisans Alibaba hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir segjast vinna með lögreglu að rannsókn meintrar nauðgunar eins af yfirmönnum fyrirtækisins. 9.8.2021 07:12
Aðstoðarmaður Cuomo segir af sér Melissa DeRosa, aðstoðarmaður Andrew Cuomo, ríkisstjóra New York, hefur sagt upp störfum. Nafn DeRosa kemur fram 187 sinnum í skýrslu saksóknara um kynferðislega áreitni Cuomo í garð kvenna, þar sem hún er meðal annars sökuð um að hafa hylmt yfir með yfirmanni sínum og hótað að minnsta kosti einum þolanda. 9.8.2021 06:49