Tvö vinnuslys á Suðurnesjum og stúlka týnd við gosstöðvarnar Slys varð í fiskverkunarfyrirtæki í Grindavík í gær þegar starfsmaður var að skipta um hnífa í flökunarvél skarst á hendi. Var hann fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem skurðurinn var saumaður saman. 10.9.2021 09:04
Hangandi nashyrningar og bakteríuflóra götutyggjós Hvernig er best að flytja nashyrning? Getur fullnæging dregið úr nefstíflum? Breytist líkamslykt áhorfenda í kvikmyndahúsum eftir því hvað verið er að horfa á? Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem handhafar Ig Nóbelsverðlaunanna freistuðu þess að svara. 10.9.2021 08:47
Samfylkingin skorar hæst á kvarða Samtakanna '78 en þrír flokkar fá engin stig Flokkur fólksins, Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn fá 0 stig af 115 mögulegum í einkunnagjöf Samtakann '78 þegar kemur að áherslum stjórnmálaflokkanna í málefnum hinsegin fólks. 10.9.2021 07:52
Tuttugu hafa tapað 73 milljónum í ástarsvikum á þremur árum Á síðustu þremur árum hafa lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist 20 tilkynningar um svokölluð ástarsvik, þar af 14 frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst. Fjárhagslegt tjón svikamálanna nemur samtals um 73 milljónum króna. 10.9.2021 07:09
Hækka Sjálfstæðisflokkinn í 21 stig og biðjast afsökunar á mistökum Ungir umhverfissinnar hafa hækkað stigafjölda Sjálfstæðisflokksins á kvarða sínum um stefnumál í umhverfismálum úr 5,3 í 21 stig af 100 mögulegum eftir að ábendingar bárust um að gögn hefðu ekki verið metin með réttum hætti. 10.9.2021 06:34
Bein útsending: Hinsegin Alþingi 2021 Samtökin '78 efna til fundar í dag með fulltrúum þeirra flokka sem bjóða fram til Alþingis. Yfirskriftin er „Hinsegin Alþingi 2021“ og að loknum framsögum mun þátttakendum gefast kostur á að spyrja frambjóðendurna spjörunum úr. 9.9.2021 16:51
Faðir barnsins segir Jakob Frímann aðeins hafa talið sig vera að hjálpa Faðir barns segir að Jakob Frímann Magnússon, tónlistar- og athafnamaður, hafi ekki vitað betur en hann væri að greiða fyrir málum þegar hann reit utanríkisráðuneytinu bréf og óskaði eftir liprunarbréfi til að barnið kæmist utan til föður síns. 9.9.2021 12:15
Afturkölluðu liprunarbréf vegna ósanninda í umsókn „Við höfum ítrekað viðurkennt að þarna voru gerð mistök og beðist afsökunar á því,“ segir Sveinn H. Guðmarsson, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar utanríkisráðuneytisins, um svokallað „liprunarbréf“ sem ráðuneytið neyddist til að endurkalla. 9.9.2021 10:49
Að minnsta kosti tíu látnir í eldsvoða á Covid-19 spítala Að minnsta kosti tíu hafa látið lífið í eldsvoða á bráðabirgðaspítala í Norður-Makedóníu fyrir einstaklinga sem hafa veikst alvarlega af Covid-19. Heilbrigðisráðherra landsins segir líkur á að fjöldi látinna muni hækka. 9.9.2021 08:33
Kína skýtur á Bandaríkin og heitir neyðaraðstoð til handa Afganistan Stjórnvöld í Kína hafa heitið 4 milljörðum króna í neyðaraðstoð til Afganistan, meðal annars í formi matarbirgða og bóluefna gegn Covid-19. Þá segjast þau reiðubúin til að eiga opið samtal við nýja stjórn talíbana. 9.9.2021 07:46